Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 46

Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 46
Dómsmálaráðuneytið f.h. Sýslumannaráðs auglýsir laust til umsóknar starf verk- efnastjóra Sýslumannaráðs. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% stöðugildi, með möguleika á framlengingu. Verkefnastjóri verður Sýslumannaráði til stuðnings við framkvæmd verkefna sem ráðinu eru falin með lögum, auk ann- arra verkefna sem eru sameiginleg öllum sýslumannsembættum. Starfið er auglýst án staðsetningar en þó þannig að aðsetur starfsmanns verði á skrifstofu eins sýslumannsembættis. Samkvæmt 6. gr. laga nr. 50/2014 um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, tilnefna sýslumenn árlega úr sínum hópi þrjá fulltrúa í Sýslumannaráð. Ráðið hefur það hlutverk að vinna með ráðuneytinu að stefnumótun fyrir sýslu- mannsembættin í heild og gera tillögur um hvað eina sem getur orðið til úrbóta í störfum sýslumanna eða löggjöf sem um verkefni þeirra gildir. Þá ber ráðinu jafnframt að vinna að sameiginlegum verkefnum sýslumanna og vera til ráðgjafar um þróun starfs- og upplýsingakerfa embættanna, að annast sameiginlega vefsíðu embættanna og stuðla að símenntun og þjálfun starfsmanna þeirra. Helstu verkefni eru dagleg umsjón og stýring verkefna, þ. á m. umbótaverkefna varðandi samræmingu þjónustu á landsvísu, þátttaka í stafrænum verkefnum og greiningarvinnu, gerð tíma- og verkefnisáætlana, samskipti við starfsmenn sýslu- manna og vera tengiliður við ráðuneytið auk annarra verkefna sem verkefnastjóra eru falin til umsjónar. Umsækjendur skulu hafa háskólapróf eða aðra framhaldsmenntun sem nýtist í starfi. Reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði. Aðrar hæfniskröfur eru: • Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum. • Fagmennska, frumkvæði og drifkraftur. • Reynsla og þekking á verkefna- og gæðastjórnun. • Reynsla í breytingastjórnun. • Reynsla af þjónustustjórnun er kostur. • Reynsla og þekking á stafrænum verkefnum er kostur. • Þekking á persónuvernd er kostur. • Góð almenn tölvukunnátta. • Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar er kostur. • Góð þekking og/eða reynsla af störfum á málefnasviði sýslumanna er kostur. • Rekstrarþekking og/eða reynsla er kostur. • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráð- herra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsóknir skulu berast í gegnum starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfylli hæfnis- kröfur fyrir starfið. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Bjarni Ragnarsson, lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu, í síma 5459000. Staða verkefnastjóra Sýslumannaráðs er laus til umsóknar Til hvers að auglýsa ? Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma í úrvinnslu innsendra umsókna. Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni. Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum. STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031 stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is. Með starf fyrir þig Starfsemi STRÁ ehf. býr að aldarfjórðungs reynslu og þekkingu á sviði starfs- manna- og ráðningarmála en stofan hefur unnið fyrir mörg helstu og leiðandi fyrirtæki landsins um árabil. Rík áhersla er lögð á trúnað varðandi vörslu gagna og upplýsinga bæði gagnvart umsækjendum, sem og vinnuveitendum. Ánægðir viðskiptavinir til margra ára hafa notið þjónustu STRÁ, en stofan hefur jafnframt umsjón með ráðningum í sérfræði- og stjórnunarstöður. www.stra.is Rannsakandi hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa - umferðarsvið Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) óskar eftir að ráða til starfa rannsakanda við slysarannsóknir á um- ferðarsviði með starfsstöð í Reykjavík. RNSA starfar samkvæmt ákvæðum laga um rannsókn samgönguslysa nr. 18/2013 og reglugerðar nr. 763/2013. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.RNSA.is Helstu verkefni: Í starfinu fellst m.a. rannsóknir á orsökum umferðarslysa, þar með talið vettvangsrannsóknir og sinnir rannsakandi bakvöktum. Rannsakandi stýrir einstaka rannsóknum hefur umsjón með þeim verkefnum sem þeim tengjast svo sem greiningarvinna við rannsóknir, skýrslugerð og eftirfylgni með þeim tillögum sem lagðar eru fram til úrbóta í öryggis- málum. Æskilegar menntunar og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg. • Hafa þekkingu eða reynslu á starfrækslu, viðhaldi og búnaði ökutæka. • Þekkja til reglna og laga sem gilda um umferðarmál. • Hafa reynslu af stjórnun verkefna. • Mjög góð þekking og færni í rituðu og töluðu máli á íslensku og ensku. Kunnátta í einu Norðurlandamáli er æskileg. • Hafa þekkingu og reynslu af notkun algengustu hugbún- aðarforrita. • Gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun. • Hafa reynslu af stjórnun og færni í mannlegum samskiptum. • Hæfni til að starfa sjálfstætt, sem og í hóp. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum við ríkissjóð. Um er að ræða fullt starf. Umsóknir skal senda til Rannsóknarnefndar samgöngu- slysa, Hús FBSR, Flugvallarvegi 7, 101 Reykjavík eða á netfangið „ thorkell@rnsa.is „ Umsókn þarf að fylgja ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veitir Þorkell Ágústsson (thorkell@rnsa.is). Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið. Áætlað er að umsækjandi hefji störf í lok sumars eða samkvæmt samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 31. maí 2020 MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menntunarsjóði Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur Sjóðurinn er ætlaður þeim sem hyggja á nám á skólaárinu 2020-2021 Umsókn verður afgreidd þegar öll umbeðin gögn hafa borist og staðfesting hefur fengist á skólavist. Um er að ræða styrk til greiðslu skólagjalda (að ákveðnu hámarki), bókakaupa eða annars sem gerir umsækjanda kleift að stunda og ljúka námi. Umsóknarfrestur rennur út 25. júní 2020 Umsókn þarf að fylgja - skattskýrsla síðustu 2ja ára - staðfesting á námsvist Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og allar nánari upplýsingar eru á heimasíðu Menntunarsjóðsins á vef Mæðrastyrksnefndar - www.maedur.is - og Facebook síðu Menntunarsjóðsins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.