Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 84

Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 84
Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður og ömmu, Hildar Björnsdóttur Sérstakar þakkir sendum við Heimahlynningunni á Akureyri og Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Yngvi Hrafn Pétursson Helena Guðlaug Bjarnadóttir Inga Gerða Pétursdóttir Jón Ágúst Guðmundsson Jón Sigurbjörn Pétursson og barnabörn. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda i ll i undirbúnings og framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju að leiðarljósi og f fa legum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Zophanía G. Briem (Góa) Hvassaleiti 56, lést á hjúkrunarheimilinu Eirarholti miðvikudaginn 13. maí. Svanborg Briem Bragi Ólafsson Lida Briem Einar Jón Briem Anna Jóna Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigríður Magnúsdóttir Laugarhvammi, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, laugardaginn 9. maí. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju, föstudaginn 29. maí, kl. 14. Jarðsett verður í Reykjakirkjugarði. Streymt verður á facebook-síðu kirkjunnar og útvarpað í nærumhverfi hennar á FM 107,2. Erling Jóhannesson Hulda Garðarsdóttir Helgi Friðriksson Sigríður Viggósdóttir Sigurður Friðriksson Klara Jónsdóttir Jónína Friðriksdóttir Stefán Sigurðsson Sólveig Friðriksdóttir Kolbeinn Erlendsson Friðrik Rúnar Friðriksson Jóhanna Sigurðardóttir og fjölskyldur. Elsku faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir, mágur og frændi, Haukur Þorkelsson frá Hellissandi, síðast til heimilis að hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, lést þann 5. maí síðastliðinn. Bjarni Hauksson Anna Sobolewska Haukur Hauksson Veronika Björklund Kristján Hauksson Maria Babkin Sigríður Kling Baldur Bjarnason Ragnar Bjarnason Jonathan Bjarnason Kristján Þorkelsson Sigríður Markúsdóttir Ásta Gestsdóttir, Auðbjörg Friðgeirsdóttir, fjölskyldur, frændfólk og aðrir aðstandendur. Tækið sem við erum að þróa er sérstakt tölvuforrit, sem byggir á gervigreind. Það les segulómmyndir af heila og skilar nýjum og næmum upplýsingum úr þeim á sjálfvirkan hátt. Þær upplýsingar geta mögulega f lýtt fyrir greiningu á heilabilunarsjúkdómum og aðstoðað við að finna þá sjúkdóma sem eru með- höndlanlegir á byrjunarstigi, eins og fullorðinsvatnshöfuð. Það er mjög van- greindur sjúkdómur í dag, því það er svo erfitt að greina hann. Þetta segir Lotta María Ellingsen, dósent við Rafmagns- og tölvuverk- fræðideild Háskóla Íslands. Hún, ásamt þeim Hans Emil Atlasyni, doktorsnema í sömu deild, og Áskeli Löve, lektor við Læknadeild og taugaröntgenlækni á Landspítala, tók þátt í Vísinda- og nýsköpunarkeppni Háskólans í vik- unni í f lokknum Tækni og framfarir og sigraði ekki bara þann flokk heldur samkeppnina í heild. Verðlaunaféð var samanlagt þrjár milljónir sem aðstand- endur fengu. Lotta segir það muni nýtast til að vinna að verkefninu áfram. „Í okkar nýja tæki einblínum við á ákveðin svæði í heilanum sem hafa sýnt sig að vera tengd heilabilunarsjúk- dómum. Bæði stækkuð heilahólf og hvítavefsbreytingar geta verið einkenni slíkra sjúkdóma,“ segir Lotta. Hún segir rannsóknaraðferðir með tækinu mun hraðvirkari en þær sem áður hafi þekkst og þegar notendavænt viðmót hafi verið þróað geri tækið læknum á spítölum kleift að fá nýjar upplýsingar í rauntíma úr segulómmyndum, sem þeir þegar hafa. Það muni því spara tíma og hjálpa læknum að taka upplýstari ákvarðanir en mögulegt er nú. „Lítið er vitað í dag hvernig heila- hrörnunarsjúkdómar byrja. Aðferðin sem við erum að þróa notar gervigreind til að finna breytileika í heilanum sem þessir sjúkdómar valda og getur þannig hjálpað okkur að finna þá fyrr. Það gæti líka hjálpað til við að finna meingerð þeirra og leiða til þróunar í lækningum á þeim,“ segir Lotta sem kveðst hafa stundað þessa þróunarvinnu frá árinu 2015, er hún var rannsóknarprófessor við Johns Hopkins háskólann í Balti- more í Bandaríkjunum. „Ég er enn í samstarfi með læknunum við spítalann þar, ekki síst við að reyna að skilja betur þessa meðhöndlanlegu heilabilun sem kallast fullorðinsvatnshöfuð. Eftir að Lotta f lutti til Íslands 2017 fékk hún Hans Emil doktorsnema til að vinna með sér. „Hans hefur verið að þróa aðferðir sem finna hvítavefsbreytingar í heilanum og f leira, undir minni leið- sögn,“ segir hún. „Svo er hann Áskell Löve röntgenlæknir að hjálpa okkur að nákvæmnisprófa aðferðina og benda okkur á hvað væri gagnlegt fyrir starf- andi röntgenlækna. Það er mikilvægt í svona vinnu að hafa sérfræðiþekking- una á öllum vígstöðvum.“ gun@frettabladid.is Verðlaunahafi í nýsköpun Lotta María Ellingsen fór fyrir teymi sem vann Vísinda- og nýsköpunarkeppni Háskóla Íslands með því að tefla fram tóli sem mögulega getur auðveldað greiningu á heilabilun. „Aðferðin sem við erum að þróa notar gervigreind til að finna breytileika í heilanum,“ segir Lotta María. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Merkisatburðir 1966 Verslunin Karnabær er opnuð í Reykjavík og fer að hafa áhrif á tísku og klæðaburð ungs fólks á Íslandi. 1983 Vikublaðið Andrés önd kemur út á íslensku í fyrsta sinn. Fram að því höfðu Íslendingar lesið það á dönsku. 2000 Landspítali verður til við samruna Landspítalans og Borgarspítalans. 2002 Haraldur Örn Ólafsson nær á tind Everestfjalls og hefur þá klifið hæstu tinda allra heimsálfanna og komist á bæði skautin. 2009 Jóhanna Guðrún nær öðru sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með laginu Is it true. Fleiri verðlaun voru veitt Alls bárust 38 tillögur í samkeppni til Vísinda- og nýsköpunarverð- launa HÍ. Þrenn verðlaun voru veitt auk aðalverðlaunanna: í flokkunum Heilsa og heilbrigði og Samfélag og einnig sérstök Hvatningarverðlaun. Jóhanna Guðrún ásamt höfundum lagsins. 1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.