Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 104

Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 104
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Margrétar Kristmannsdóttur BAKÞANKAR Laugarásvegur 1 Pantaðu á skubb.is OG FÁÐU HEIMSENT Það er frábær veðurspá fyrir helgina og miðaldra hjón ákveða að þetta sé rétti tíminn í vorverkin. Nú sé lag að láta hendur standa fram úr ermum. Farið er snemma í háttinn og þegar lagst er á koddann um tíuleytið gantast hjónin með það að hér áður fyrr hafi þetta verið tíminn sem þau hefðu verið að leggja af stað á djammið. Það er hins vegar löngu liðin tíð. Um morguninn tekur við bjartur og fagur dagur – ekki ský- hnoðri á himni en lofthitinn ekki mikill eða um 5°C. Eftir morgun- kaffið er bóndinn sendur af stað í röðina hjá Byko að kaupa það sem til þarf, en frúin fer kappklædd út í daginn. Og hjónunum fellur ekki verk úr hendi. Pallurinn er sópaður og þrifinn, hekkið klippt, gluggar þvegnir að utan, blóma- beðin hreinsuð og borið er á allt tréverk í kringum húsið. Í lok dags er farið í röðina hjá Sorpu með garðaúrgang, tómar dósir utan af pallaolíu og annað dót sem hefur safnast upp í bílskúrnum. Það er ekki laust við að það örli á samkeppni í röðinni um hver hafi áorkað mestu þann daginn. Seinnipartinn finnur frúin sér skjól undir húsvegg og sest í sólina til að láta líða úr sér. Lofthitinn er hins vegar hvorki nægur til að fara úr lopasokkunum né til að taka af sér húfuna – en sólin vermir ekki síst þegar búið er að hella örlitlu púrtvíni í glas. Á sama tíma gerir bóndinn heita pottinn kláran og byrjar að undirbúa kvöldmatinn – nú skal sko grillað og fagna góðu dagsverki. Þetta er hefðbundin verkaskipting á heimili þessara hjóna í Kópavogi. Sólin yljar í skjóli og frúin mætir til vinnu á mánudegi með freknur. Er íslenska vorið ekki dásamlegt! Vorverk miðaldra hjóna © Inter IKEA System s B.V. 2020 Verslun opin 11-19 alla daga - IKEA.is Veitingastaður er tímabundið lokaður 1.290,-/5 í setti HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst orn@frettabladid.is. *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.