Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Side 9
Umhverfisvemd er lykilorðið og
eru íbúar á Sólheimum miklir
umhverfissinnar. Engin eiturefni
sem skaða umhverfíð em notuð
við ræktun og er dýmnum gefíð
lífrænt fóður. Jurtir og grænmeti er
allt lífrænt ræktað og em skordýr
látin sjá um að lífíð gangi eðlilega
fyrir sig í gróðurhúsunum.
Sumarstörfin og gróðurhúsin
vöktu forvitni mína en einnig fékk
ég að sjá starfsfólkið vinna við
smíðar, kertagerð, leirgerð, vefnað
og margt fleira. Edda Guðmunds-
dóttir var að búa til leirker í
Inguhúsi. Ég spurði Eddu hvort
hún tæki þátt í útiverkunum í
sumar, „Ég geri það ef ég verð
beðin um það. Ég raka gras og
steina. Það er alltaf gott að komast
út þegar veðrið er gott“. Við
hliðina á Eddu sat Kamma Viðars-
dóttir og sagðist hún ekki ætla að
taka þátt í útistörfum þetta
sumarið en hefur gert það hingað
til. „Ég hef líka verið að raka
saman heyi og svona. Ég verð að
vinna í eldhúsinu í sumar og ætla
að sleppa útivinnunni“. Ég spurði
Eddu og Kömmu hvort karl-
mennirnir væru duglegri við
útistörfin og neituðu þær báðar
því. „Það fínnst öllum gott að
komast út“.
Armanni Eggertssyni finnst
ágætt að búa á Sólheimum en líkar
einnig vel að búa í Reykjavík.
Hann vinnur nú á vefstofunni og
var önnum kafinn við að vefa úr
gallabuxnaefni sem offíserafrúr
ofan af Keflavíkurflugvelli komu
"Ég sé alltaf um að hella upp á
kaffl", segir Ármann
Leirinn lék í höndunum á Eddu og Kömmu
með. Þegar vefstofan fer í
sumarfrí ætlar Armann að taka
þátt í útistörfum, „Ég ætla að slá
túnið, raka heyinu saman og læt
það í svartan poka og fer með það
til hestanna. Síðan fer ég upp í ijós
og laga kaffí. Við erum núna að
leika leikrit og ég leik hermann.
Það er mikið að gera en við erum
ekkert þreytt“.
Allir fá að vinna við ræktun
ef þeir vilja
María K. Jacobsen flutti fyrst á
Sólheima 1962. Hún vinnur á
vefstofunni fyrir hádegi og við
símvörslu eftir hádegi. „Hér er allt
sem maður þarf til að lifa. Bara
nefndu það. Það er frábært hvað
við ræktum mikið hér. Ibúamir
héma skipta með sér útistörfunum.
En ég verð ekki að vinna við
útistörfín í sumar.”
Það var mikið ljör í gróður-
húsunum á Sólheimum og var
starfsfólkið á fullu að hreinsa
potta, blanda gróðurmold og
undirbúa grænmetisræktun. Þau
María sér um símvörslu
eins og önnur sumur
Guðlaug Jónatansdóttir og Reynir
Pétur Ingvarsson em ánægð með
starfið í gróðurhúsinu. „Ég er að
hreinsa potta og það er mjög
gaman“, sagði Guðlaug. Reynir
Pétur var að blanda moldina og
sýndi mér óhreina fingurna. Hann
virtist mjög áhugasamur við
blöndunina. „Ég er að blanda
mold og setja í bakka. Við emm
löngu farin að undirbúa ræktunina.
Við ræktum hér gúrkur og getur þú
séð gúrkutrén sem vaxa hér.
Gúrkuplönturnar lifa ekki eins
lengi og tómatplönturnar og
þurfum við að setja ný tré þegar
þessi görnlu deyja. Svo ræktum
við líka tómata og paprikur. Svo
ræktum við spínat, grænkál og
steinselju. Við ræktum líka
ýmislegt grænmeti sem við tökum
upp á haustin. Við emm með allt
mögulegt”. Starfsfólkið í gróður-
húsinu var önnum kafíð og þar
með kvaddi ég.
Vorið er tími grænna fingra og er
víst að nóg er af þeim á
Sólheimum.
K.Þ.
Reynir Pétur lét ekki sitt eftir liggja
frekar en fyrri daginn
tímarit öryrkjabandalagsins