Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Page 11
Utivist
Ungur knapi úr Safamýrarskóla
með aðstoðarmanni
Hreyfíng upp og niður (allur
búkurinn)
Hreyfing fram og aftur (hreyfmg
í mjaðmagrind og upp hrygg)
Hreyfíng til beggja hliða (vinstri
og hægri síðu líkamans).
Auk þess verkar ylurinn frá
hestinum mjög vel á spastíska
nemendur. Þeir ná góðri slökun
með því að liggja á maganum á
baki hestsins (eins og að framan
greinir) og fá hreyfínguna frá
hestinum samtímis ylnum og ilmi.
Starfsmenn Reiðskólans Þyrils
og ITR leggja sig alla fram um að
sinna hverjum og einum en þeir
eru sér mjög meðvitaðir um þarfír
svo mikið fatlaðra nemenda eins
og eru í Safamýrarskóla.
Björk Jónsdóttir,
aðstoðarskólastjóri
Safamýrarskóla
Þá er bara að þeysa af stað
Ferðafélagið VÍÐSÝN
Eitt af mörgum ferðafélögum fatlaðra
Víðsýn heitir ferðafélag
sem er rekið innan
Vinjar að Hverfisgötu 47
í Reykjavík. Vin er eitt þriggja
athvarfa fyrir geðfatlaða sem
Rauði kross íslands rekur af
miklum myndarskap. Hin eru
Dvöl í Kópavogi og Laut á
Akureyri.
Félagar í Víðsýn voru um
síðustu áramót 43, gestir og
starfsfólk Vinjar. Félagar greiða
1000 kr. árgjald en að rnestu er þó
byggt á velvild aðila eins og
Oryrkjabandalagsins og Reykja-
víkurborgar sem hafa stutt
starfsemina dyggilega. Auk þess
hafa fyrirtæki gefíð vaming sem
seldur hefur verið í Kolaportinu.
Þegar þetta er skrifað stendur fyrir
dyrum að halda bingó til að afla
Ijár fyrir Edinborgarferð sem
ákveðin er í september n.k.
I fyrra fómm við í dásamlega
ferð um Vestfírði, þar sem Rauða
kross deildir á hverjum stað
bókstaflega báru okkur á höndum
sér. Sú ferð var m.a. undirbúin
með sérstöku námskeiði á vegum
Námsflokka Reykjavíkur, þar sem
fjöldi fyrirlesara kynnti sín sérsvið
um Vestfírði.
Nú stendur yfír námskeið fyrir
Edinborgarfarana, einnig á vegum
Námsflokkanna. Þar miðlar
Sigríður Tómasdóttir af fróðleik
sínum um Skotland, auk þess sem
hún gefur nýgræðingum eins og
undirrituðum góð ráð, en
Edinborgarferðin verður mín
fyrsta utanlandsferð, þó orðinn sé
48 ára gamall.
Fatlaðir hafa sömu þörf og
ófatlaðir til að lyfta sér upp frá
amstri hversdagsins, m.a. með því
að ferðast. Geðfatlaðir eru oft í
slæmri stöðu hvað þetta varðar.
Fjölskylda og ættingjar eru
stundum ekki til staðar til að
ferðast með og erfitt er að kaupa
almennar ferðir. Þær eru dýrar og
íjárráð oft takmörkuð. Aðalgallinn
er þó sá að íyrsta spuming frá
ókunnugum sessunaut í slíkum
ferðum er yfírleitt: „hvað starfar
þú”?
Ef maður er sannleikanum
samkvæmur fylgir oft ítarleg
Garðar Sölvi
yfírheyrsla um
persónulegustu
mál. Þá sem
hafa orðið fyrir
slíkri reynslu langar yfírleitt ekki
til að endurtaka hana.
Það má því ljóst vera að
starfsemi Víðsýnar, eins og annað
sem gert er í Vin, er nauðsynlegt.
Hún gefur lífsfyllingu, eykur
öryggistilfínningu og vinnur gegn
streitu.
Það er sannfæring undirritaðs að
félagsstarfsemi í þágu geðfatlaðra
utan sjúkrahúsa, eins og Rauði
krossinn, Geðhjálp og Klúbburinn
Geysir reka, hafí sparað
þjóðfélaginu háar fjárhæðir með
færri innlögnum. Mestu máli
skiptir þó að þessi starfsemi hefur
bætt líðan þeirra sem þjónustunnar
njóta, oft umtalsvert, eins og
undirritaður getur borið um.
Garðar Sölvi Helgason,
gjaldkeri Ferðafélagsins
Víðsýnar
tímarit öryrkjabandalagsins
11