Lýðvinurinn - 15.04.1951, Blaðsíða 1
jGýðvinurinn
Ritstjóri: Grimur S. Engilberts. — Prentað sem handrit.
5 tölublaö ♦ J951 ^ U árgangur
Hac Arihur
sefctur af.
Þann 11. apríl var Douglas Mác Arthur hershöfðingi sviptur
hernámsstjórn i Japan, yfirstjórn herja Vesturveldanna í
Kóreu og yfirstjórn alls Bandaríkjahers í Austur-Asíu með
einu símskeyti sem Truman forseti sendi honum. Stefna
Mac Arthurs að hefja sem fyrst stórstyrjöld gegn Kína
vakti svo eindregna andstöðu allra friðelskandi manna
hvarvetna í hehninum, að Truman sá þann kost vænstan,
að sparka striðsæsingamanninum úr öllum ábyrgðarstöð-
um. í höfuðborgum Vestur-Evrópu og aðalstöðvum S.Þ. í
New York draga menn andann léttara eftir brotvikningu
Mac Arthurs. Eftirmaður hershöfðingjans hefur verið settur
Matthew B. Ridgway yfirhershöfðingi í Kóreu. Mál þetta
hefur vakið mikla æsingar í Bandarikjunum, og hafá
Republikanir hótað Truman að fá hann settan af Búist
er við mestu stjórnmálaátökum í Bandaríkjunum síðan á
dögum þrælastríðsins.