Lýðvinurinn - 15.07.1951, Qupperneq 1
JB$ð vinurinn
Riutjói'i: Grímur S. Engilberts. — Prentað sem handrit.
11 tSlublað •♦• 1951 11 írgangur
Pýzkur her
skipulagður.
•fc Utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Bandaríkjanna
koma saman á fund í Wasliington
i i-eptember til að ræða endur-
vopnttn Þýzkalands. Er talið að
ráðherrarnir þrír muni leyfa Bonestjórninni að hefja þegar
skinulagningu vestuþýzks hers, án þess að þurfa að biða eftir
eadanlegri ákvörðun um stærð hans. Tillögur Pjóðverja unt
nýjan her eru i aðalatriðum þessar: 1. 250.000 manna herskyldu-
her myn iaður á næstu tveimur árum. 2. Borgaraleg yfirstjórn
hersins i líkingu við hermálaráðuneyti. 3. Þýzkir fulltrúar i ölluni
stofnunum Atlanshafsbandalagsins. 4. 2000 flugvéla flugflota, er í
séu léttar sprengjuflugvélar og a. m. k. 600 þrýstilofts-orustuflug-
vélar. 5. Öflugar flotadeildir lítilla herskipa til varnar ströndum
Þýzkalands. 6. Pátttaka Pýzkalands i iðnaði og vigbúnaði Evrópu.
Vopnahlésumræður í Kaesong.
•Síðan 10. júlí hafa staðið yfir vopnahlésumræður um styrjöldina
f Kóreu i Kaesong. Bandaríkjastjórn hefur reynt allt til að hindra
árangur samningana. Mörg blöð í Bandarikjunum hóta því, að
ef samnigar nást ekki, þá munu Bandaríkjamenn varpa kjarn-
orkusprengjum á Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu.