Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 23

Víkurfréttir - 26.03.2020, Qupperneq 23
23 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 26. mars 2020 // 13. tbl. // 41. árg. HEIMSFARALDUR COVID-19 OG ÁHRIF HANS Á SUÐURNESJAFÓLK Verkefnin hafa að miklu leyti snúist um þessar aðstæður undanfarnar vikur. Við hjá HS Veitum skiptum okkur í tvo hópa á öllum starfsstöðvum þar sem annar hópurinn vinnur að heiman í viku og hinn á staðnum. Svo er allt sótthreinsað fyrir komu næsta hóps og við tryggjum að þeir hittist ekki. fannst skynsamlegt að taka þessu af nokkurri alvöru í ljósi viðkvæmrar stöðu hjá mínum nánustu og þess að halda vel utan um starfsfólk HS Veitna og lágmarka áhættuna á smiti á vinnustaðnum“. — Hvað varð til þess? „Mér fannst það hvernig almanna- varnir, sóttvarnar- og landlæknir brugðust við gefa fullt tilefni til að taka þetta alvarlega. Þeirra vinnu- brögð hafa verið mjög fagleg frá upp- hafi og þó fólk kunni að hafa aðra skoðun á nálgun, þá eru þau sér- fræðingarnir og hafa komist ótrúlega vel frá þessu“. — Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum? „Ég held að með því að tefja út- breiðslu eins og hægt er séu þau á hárréttri leið til að heilbrigðiskerfið okkar sé sem best í stakk búið að sinna þeim sem á aðhlynningu þurfa. Það þykir mér ábyrg nálgun sem eykur líkurnar á að þetta sprengi ekki kerfið okkar með tilheyrandi erfiðleikum“. — Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? „Mikilvægast er að við hlúum hvert að öðru og sýnum hvert öðru tillitsemi og nærgætni. Fylgjumst vel með fólkinu í kring um okkur og styðjum þá sem hafa áhyggjur eða líður illa vegna þessa. Þetta má allt gera með góðum skammti af gleði og léttleika sem fleytir okkur ótrúlega langt. Samstarfsfólk mitt stendur sig t.d. ótrúlega vel í því með allskonar uppátækjum sem létta lundina og kalla fram bros. Síðast en ekki síst verðum við að axla ábyrgð á eigin hegðun, að fara eftir því sem ráðlagt er, ekki bara fyrir okkur sjálf heldur fyrir alla hina sem eru e.t.v. veikari fyrir“ — Finnst þér að sveitarfélagið þitt gæti gert meira? Hvernig finnst þér sveitarfélagið standa sig í þessum málum? „Ég held að öll sveitarfélög séu að bregðast við á þann hátt sem talinn er vænlegastur til árangurs miðað við fyrirliggjandi upplýsingar hverju sinni. Við megum ekki gleyma því að þó gott sé að rýna til gagns, að þá erum við að upplifa aðstæður sem ekkert okkar hefur upplifað áður og engar handbækur til um viðbrögð“. — Er samkomubannið að hafa áhrif á þig? „Ekkert sem ég sakna eða læt trufla mig. Vissulega hafa þó nokkrir viðburðir verið felldir niður sem maður hefði sótt ef allt væri í lagi“. — Notar þú netið við innkaupí dag? „Við erum ekki byrjuð á því en ég er farin að kynna mér möguleikana“. — Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi? „Ég fylltist ákveðinni bjartsýni þegar 10. apríl var gefinn upp sem mögulegur viðsnúningur. Þ.e. að þá hefðum við náð hápunktinum. Ætli við þurfum ekki að eiga í þessu eitt- hvað fram í júní?“. — Hvernig eru börnin á heimilinu að upplifa þetta? „Strákarnir okkar urðu 16 ára um liðna helgi þ.a. við erum ekki með ung börn heima. Þeir eru ótrúlega rólegir yfir þessu en vilja vita um hvað málið snýst og allt skólahald er auðvitað úr skorðum. Mér þykir frábært að fylgjast með hvernig unga fólkið sem við umgöngumst er að tækla þetta. Ekkert of stressað en ábyrgt og fróðleiksfúst“. — Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innan- lands eða utan? „Við hjónin ætluðum að vera á þó nokkrum flækingi í vor, æfingaferð til Spánar stóð til í lok mars og erum skráð í keppni í hálfum járnkarli á Mallorca í maí. Þær ferðir verða vonandi farnar með haustinu eða um leið og þetta er yfirstaðið. Nú krossum við bara fingur og vonum að Team Rynkeby verkefnið sé ekki í uppnámi en það er góðgerðar- verkefni til styrktar SKB þar sem hápunkturinn er að hjóla frá Kolding í Danmörku til Parísar. Brottför er áætluð 3. júlí, eigum við ekki að segja að þetta verði komið í gott lag þá og við getum tekið sumarfríið með strákunum í kjölfarið?“. AÐALFUNDI FRESTAÐ! Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja hefur ákveðið að fresta aðalfundi sem halda átti þann 15. apríl nk. um óákveðinn tíma í ljósi aðstæðna. Stjórnin. HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR www.vf.is/vikurfrettir/tolublod Til að einfalda málið getur þú farið inn á vf.is og skráð þig á póstlista og fengið Víkurfréttir glóðvolgar í tölvupóstinn þinn í hverri viku!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.