Mosfellingur - 20.02.2020, Blaðsíða 18
- Mosfellingurinn Rúnar Þór Guðbrandsson18
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni.
Árið 2003 stofnuðu hjónin Rúnar Þór og Hulda Sóllilja fyrirtæki utan um framleiðslu á hnakknum Hrímni.
Fyrirtækið hefur vaxið hratt undanfarin
ár og í dag reka þau öfluga vefverslun
ásamt því að vera með 100 endursöluaðila
á vörum sínum í 20 löndum.
Hjónin segja það forréttindi að geta
sameinað störf sín og áhugamál en líf
þeirra hefur snúist meira og minna um
hestamennsku undanfarna áratugi.
Rúnar Þór er fæddur í Reykjavík 8. maí
1972. Foreldrar hans eru þau Egilína S.
Guðgeirsdóttir starfsmaður Fasteignasölu
Mosfellsbæjar og Guðbrandur E. Þor-
kelsson heimilislæknir. Uppeldisfaðir er
Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka
atvinnulífsins.
Rúnar Þór á sex systkini, Rafn, Reyni Inga
og Róbert sammæðra og Snorra, Rannveigu
og Sigríði Stellu samfeðra.
Alltaf vel tekið á móti manni
„Ég er alinn upp í Vík í Mýrdal og þar
var gott að slíta barnsskónum. Að alast
upp í litlu þorpi umkringdur ættingjum
og stórbrotinni náttúru var frábært. Móðir
mín var ung að árum þegar hún átti mig og
við bjuggum hjá ömmu og afa fyrstu árin.
Það voru algjör forréttindi og mótaði mig
mjög mikið.
Þorpið var öðruvísi en það er í dag, mað-
ur þekkti alla og allar dyr voru opnar en nú
er bærinn fullur af ferðamönnum.
Amma var dugleg að fara með mig í
heimsóknir til ættingja og þegar maður fór
svo sjálfur að þvælast um þá kíkti maður
við hjá þessu frábæra fólki enda alltaf tekið
vel á móti manni.“
Las af mælunum með afa
„Minningarnar úr æsku eru margar, eftir-
minnileg eru leikskólaárin í Suður-Vík, einu
elsta húsi Víkur með dvalarheimili aldraðra
á efri hæðinni, oft var kíkt í heimsókn og
mikið spjallað.
Ég gleymi aldrei fyrstu
launuðu vinnunni, þá var ég
innan við 10 ára og var í því að
skera melgresi. Dýrmætustu
minningarnar eru líklega ferðirnar með
afa sem keyrði um sveitirnar til að lesa
af rafmagnsmælum en hann starfaði hjá
Rarik. Alls staðar var okkur vel tekið og víða
var boðið inn í kaffi, þarna kynntist maður
fjölmörgu áhugaverðu fólki.
Allar ferðirnar sem maður fékk að sitja í
með vörubílstjórum eða Þorbergi ruslakalli
voru eftirminnilegar en hann var í drauma-
starfinu að mínu mati á þeim tíma og svo
auðvitað reglulegar heimsóknir til mömmu
og pabba í vinnuna.“
Fluttu til Bandaríkjanna
Rúnar hóf skólagönguna í Víkurskóla en
fjölskyldan flutti svo til Reykjavíkur og þá
sótti hann nám í Hólabrekkuskóla í tvö ár.
Þau fluttu í Mosfellsbæinn og þá lá leiðin í
Varmárskóla og svo tók Rúnar einn vetur í
Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar.
„Fjölskyldan flutti til Banda-
ríkjanna og þar bjuggum við í
3 ár, þar gekk ég í Junior High
School. Árin þarna úti voru frábær og mað-
ur stundaði íþróttir af krafti.
Þegar ég flutti heim fór ég í Fjölbrautar-
skólann við Ármúla og má segja að þar hafi
áhugi minn á félagsstöfum kviknað.“
Kynntust í Skagafirðinum
Á fyrstu önn Rúnars í skólanum 1989 var
farið í afdrifaríkt skólaferðalag, í stóðréttir
í Skagafjörð. Þar kynntist hann eiginkonu
sinni, Huldu Sóllilju Aradóttur. Hún á ættir
að rekja í Mosfellssveitina en afi hennar er
Guðmundur frá Miðdal. Hún fetaði síðar í
fótspor ömmu sinnar og afa og lærði leirlist
við Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Rúnar og Hulda giftu sig í Lágafellskirkju
1999. Þau eiga saman synina Andra Dag
f. 1997, Aron Mána f. 2003 og Egil Ara f.
2008.
Búðarferðin varð að ævistarfi
„Daginn sem ég lauk við síðasta prófið
í framhaldsskóla kom ég við í hestabúð
í Ármúlanum til að kaupa mér skeifur.
Mig vantaði vinnu og spurðist fyrir um
starf í leiðinni, sem ég fékk. Ég hef verið
í hestavörubransanum nánast samfleytt
síðan þá.
Þegar ég var 24 ára ákvað ég og konan
mín að fara út í eigin rekstur og opnuðum
við ásamt félaga okkar hestabúðina Reiðlist
í Skeifunni en 3 árum síðar sameinuðust
við tveimur öðrum í eina stóra verslun.
Í rekstrinum féll það í minn hlut að vinna
að markaðsmálum og varð það til þess að
við hjónin ásamt 4 ára syni okkar fluttum
til Providence í Rhode Island fylki í Banda-
ríkjunum. Þar hóf ég nám við Johnson &
Wales University og útskrifaðist með há-
skólagráðu í markaðsfræðum. Árin okkar
þarna úti voru frábær og við eignuðumst
góðar minningar og vini.“
Stofnuðu fyrirtæki
„Við fluttum heim 2003, en þá var ég ráð-
inn sem umdæmisstjóri VÍS á höfuðborg-
arsvæðinu. Árin hjá VÍS voru lærdómsrík,
þar sem ég tók þátt í miklum breytingum
hjá félaginu og starfaði síðasta árið sem
deildarstjóri einstaklingsviðskipta ásamt
því að ljúka MBA námi við Háskólann í
Reykjavík.
Á meðan ég var í námi í Bandaríkjunum
stofnuðum við hjónin fyrirtæki utan um
framleiðslu á hnakknum Hrímni en aðsetur
fyrirtækisins hefur ávallt verið í Mosfells-
bæ. Fyrstu árin rákum við þetta með öðrum
störfum, en haustið 2009 ákváðum við að
gefa fyrirtækinu fulla athygli ásamt því að
byggja okkur hús í Leirvogstungu.“
Allir geta notið góðs af
„Fyrirtækið hefur vaxið hratt síðustu
ár en 2013 fluttum við dreifingarmiðstöð
okkar frá Íslandi til Frankfurt í Þýskalandi.
Í dag rekum við öfluga vefverslun, www.
hrimnir.shop, fyrir bæði smásölu og heild-
verslunina ásamt því að vera með um 100
endursöluaðila á vörum okkar í 20 löndum.
Árið 2015 hófum við framleiðslu á reið- og
útivistarfatnaði og framleiðum nú rúmlega
200 vörur undir okkar vörumerkjum.
Fyrir ári hófum við einnig framleiðslu
á vönduðu kennsluefni sem við höfum
aðgengilegt á síðunni okkar. Þar sem við-
skiptavinir okkar eru fyrst og fremst eig-
endur íslenskra hesta sem búa um allan
heim þá lítum við á þetta sem gott samfé-
lagsverkefni þar sem allir geta notið góðs af
óháð staðsetningu.“
Snýst allt um hestamennskuna
„Það eru forréttindi að geta sameinað
störf okkar og áhugamál, hestamennskan er
lífsstíll og það snýst allt meira og minna um
það hjá okkur. Við erum með litla hrossa-
rækt og erum með hesthús á félagssvæði
Harðar að Varmárbökkum. Við erum svo
lánsöm að synir okkar deila áhugamálinu
með okkur og við ferðumst mikið á hestum
á sumrin.
Auk hestamennskunnar hef ég mikinn
áhuga á fluguveiði og Laxá í Aðaldal er í
miklu uppáhaldi. Félagsmálin hafa líka átt
stóran þátt á undanförnum áratugum og er
það gríðarlega gefandi. Sem stendur starfa
ég með frábæru fólki í stjórn Hestamanna-
félagsins Harðar og í stjórn Íbúasamtaka
Leirvogstungu svo maður getur ekki kvart-
að yfir því að hafa ekki nóg að gera,“ segir
Rúnar brosandi er við kveðjumst.
Árið 2015 hófum við fram-
leiðslu á reið- og útivistar-
fatnaði og í dag framleiðum við
rúmlega 200 vörur undir okkar
vörumerkjum.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
HIN HLIÐIN
Hvar líður þér best?
Heima í Leirvogstungunni.
Draumaborgin? Boston, því við
eigum góðar minningar þaðan frá
því við bjuggum í New England.
Uppáhaldsgræjan á heimilinu?
Nespresso-vélin.
Hvaða freistingu stenst þú ekki?
Jólasmákökurnar.
Við hvaða aðstæður færðu gæsahúð?
Þegar strákarnir okkar eru að njóta sín
með mér á hestbaki og svo við að hlusta
á góða tónlist.
Morgunhani eða náttugla? Náttugla
sem er rólega að breytast í morgunhana.
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki
um? Var eitt sinn Íslandsmeistari
í grindahlaupi, var reyndar eini
keppandinn.
Hver er besta setning sem þú hefur
heyrt? „There ain’t no such thing
as a free lunch“
Hjónin Rúnar Þór og Hulda Sóllilja í Shanghai.
í réttunum
Hestamennskan er lífsstíll
Rúnar Þór Guðbrandsson framkvæmdastjóri Trostan framleiðir hestavörur undir vörumerkinu Hrímnir
rúnar og synirnir
ungur að árum