Spássían - 2013, Síða 56

Spássían - 2013, Síða 56
56 inn af gestum Bókmenntahátíðar í haust var breski rithöfundurinn Rachel Joyce. Áður en hún hóf að skrifa skáldsögur samdi hún útvarpsleikrit fyrir BBC og leikgerðir og þætti fyrir sjónvarp. Árið 2012 kom fyrsta skáldsaga hennar út, Hin ótrúlega pílagrímsganga Harolds Fry. Bókin sló í gegn og hefur verið þýdd á mörg tungumál og hlotið mikið lof. Í ár kom önnur skáldsaga hennar út, Árið sem tvær sekúndur bættust við tímann. Bækurnar tvær eru sjálfstæðar sögur og ólíkar um margt en grunnþemu þeirra beggja eru uppgjör við fortíðina, einmanaleiki, skortur á samskiptum og tjáningu og hversu langvarandi áhrif atburðir geta haft á líf fólks. Sögusvið fyrri bókarinnar er England nútímans. Harold Fry er kominn á eftirlaun þegar hann fær bréf frá fyrrverandi samstarfskonu sinni sem hann hefur ekki hitt í tuttugu ár þar sem fram kemur að hún sé dauðvona. Eftir samtal við afgreiðslustúlku á bensínstöð fyllist Harold krafti og innblæstri og í stað þess að póstleggja svarbréf leggur hann af stað í göngu yfir England endilangt í þeirri von að hann geti bjargað samstarfskonu sinni. Pílagrímsgangan verður þó fremur til að bjarga Harold sjálfum Á leiðinni gerir hann upp við fortíð sína, fer yfir líf sitt, þau tækifæri sem hann hefur misst af og allt það sem hefur runnið honum úr greipum sökum hlédrægni hans, sem og samskipti hans við foreldra, eiginkonu og son. Uppbygging bókarinnar er einföld og er ferð Harolds í forgrunni. Stöku sinnum er þó skotið inn köflum um eiginkonu hans Maureen og líðan hennar og gerðir á meðan hann er í göngunni. Fólk sem Harold hittir á leiðinni segir honum gjarnan frá ævi sinni og vandamálum og mynda þær frásagnir nokkurs konar samfélagsspegil. Sagan líður vel áfram; það er auðvelt að hrífast af sálarlífi Harolds og upplifun hans af göngunni og því hvernig hann nær að sættast við sjálfan sig og líf sitt. Í Árinu sem tvær sekúndur bættust við tímann eru tvær sögur fléttaðar saman, sögur Byrons og Jims, sem gerast á sömu slóðum með fjörutíu ára millibili og snúast um sömu atburðina, önnur um aðdraganda þeirra og hin um afleiðingarnar. Sumarið 1972 er Byron ellefu ára gamall, gengur í einkaskóla og á yfirborðinu er fjölskylda hans skipulögð og fullkomin. Þegar James, besti vinur Byrons, segir honum frá að til standi að bæta tveimur sekúndum við tímann verður Byron heltekinn af tilhugsuninni um þær og hversu afdrifaríkir atburðir geti orðið á tveimur sekúndum. Þegar óhapp verður kennir Byron sekúndunum tveimur um það og eftirmála þess: „Allt gerðist þetta út af örlitlu hiksti tímans, öll sagan. Áhrif þess endurómuðu í gegnum árin.“ (9) Eftir því sem á líður söguna fer lesandinn að efast um að þetta litla hikst tímans hafi haft úrslitaáhrif, heldur hefðu brestir fjölskyldunnar komið í ljós fyrr eða síðar og svipaðir atburðir orðið. Sagan er sögð út frá sjónarhorni Byrons sem skilur ekki allt sem gerist og mistúlkar sumt, svo að lesandinn verður að lesa á milli línanna. Ásamt James reynir hann að vernda móður sína fyrir afleiðingum óhappsins en tilraunir þeirra hafa öfug áhrif. Hinn rúmlega fimmtugi Jim er í forgrunni í hinni sögunni sem gerist í nútímanum, um vetur. Hann hefur eytt stærstum hluta fullorðinsára sinna á geðsjúkrahúsi og alltaf endað þar aftur því hann kann ekki að fást við raunveruleikann. Hann vinnur við að þrífa borð á veitingastað í verslunarmiðstöð og hefur sínar eigin aðferðir til að halda hugarró og koma í veg fyrir hugsanleg óhöpp. Saga Jims minnir að mörgu leyti á sögu Harolds Fry. Líkt og Harold er Jim fjarlægur umhverfi sínu í upphafi, en á meðan á sögunni stendur kynnist hann fólki og finnur að lokum ró. Hann á eftir að gera upp við skelfilegan atburð í fortíðinni og forðast að hugsa um hann, en þokast sífellt nær því að sættast við sjálfan sig. Líkt og í sögu Harolds er flakkað á milli fortíðar og nútíðar, en saga Byrons er öll í núinu. Sá hluti bókarinnar sem fjallar um Byron og sumarið 1972 er mjög sterkur og saga Jims í nútímanum stendur í skugga hennar og er að mestu ofaukið. Inn í sögu Byrons fléttast nefnilega svo mörg athyglisverð þemu, sem tengjast annars vegar Byroni sjálfum; tap á sakleysi bernskunnar og hjálparleysið þegar skilin á milli foreldra og barna mást út. Hins vegar er myndin sem máluð er upp af samfélagi á tímamótum. Mikið er gert úr stétt og stöðu og þeirri togstreitu sem fylgir slíkri skiptingu, hvernig framtíð drengjanna Byrons og James er ákveðin frá fæðingu; þeir eiga að feta í fótspor feðra sinna. Mæður drengjanna í einkaskólanum mynda svo einn hóp og andstæðan er fólkið í félagslegu íbúðunum á Digby-vegi. Andstæðurnar birtast ítrekað í Díönu, móður Byrons, og Beverley, konunni sem hún kynnist eftir óhappið, en því meiri tíma sem þær eyða saman því meira renna þær saman. Kvenréttindi og fordómar vegna kynþátta og geðsjúkdóma eru líka umfjöllunarefni, sem og kúgun og meðvirkni og það að standast ekki kröfur samfélagsins Bækurnar eru vel skrifaðar og þýddar og frágangur allur til fyrirmyndar. Joyce hefur mjög þægilegan stíl, hún stafar hlutina ekki ofan í lesendur en samt vantar ekkert í sögurnar. Það má hiklaust mæla með þessum tveimur bókum, þær velta upp áleitnum spurningum um stétt og stöðu, fullkomleika, mikilvægi samskipta og það að sættast við sjálfan sig og fortíðina. Eftir Kolfinnu Jónatansdóttur Rachel Joyce. Hin ótrúlega pílagrímsganga Harolds Fry og Árið sem tvær sekúndur bættust við tímann. Þýðandi: Ingunn Snædal. Bjartur. 2012 og 2013. pílagrímurinn og sekúndurnar tvær E

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.