Íþróttablaðið - 01.11.1939, Blaðsíða 17
ÍÞRÖTTABLAÐÍÖ
13
en vantaði meiri styrk í fæturnar. GuSjón stekkur
sæmilega en er nokkuS þungur. Besta stökkstílinn
haföi Sig. Norödahl, sem var 4. maöur, en hann
er auösjáanlega ekki í æfingu.
400 metra hlaup.
1. Sigurgeir Ársælsson (Á.) ............. 53.2 sek.
2. Sveinn Ingvarsson (K. R.) ............ 53.6 —
3. Ólafur Símonarsson (Á.)............ 54.6 —
Þessir 3 menn lentu saman í riöli og haföi Sigur-
geir ystu braut, en Sveinn innstu. Sigurgeir leiddi
hlaupiö alla leiö, en á síöustu 100 mtr. bjuggust
menn viö að Sveinn myndi spretta úr spori og fara
fram úr Sigurgeir, en úr því varð þó ekki. Á und-
anförnum mótum hefir engum þýtt aö þreyta þetta
hlaup við Svein, þar til loks nú, að hann var sleg-
inn út. Æfingin hefir mikið að segja, Sveinn. í
síðara riðli hlupu þeir Gunnar Sigurðsson (Í.R) á
56.0 og Guðjón Sigurjónsson (F.H.) á 55.8 og var
það spennandi keppni og- mátti ekki á milli sjá, hvor
betur hefði, fyr en á síðustu 10 mtr., að Guðjón
píndi sig fram úr keppinaut sínum.
5000 metra hlaup.
1. Sigurgeir Ársælsson (Á.) .... 16 mín. 6.4 sek.
2. Ólafur Símonarsson (Á.) .... 17 — 4.2 —
3. Indriði Jónsson (K.R.) ....... 17 — 8.8 —
Tími Sigurgeirs er sá næstbesti, sem náðst hefir
hér á landi. Guðjón Júlíusson hljóp fyrir mörgum
árum á 16 mín. og 6 sek. Á okkar mælikvarða er
því tími Sigurgeirs ágætur, sérstaklega með tilliti
til þess, að hann hljóp án allrar samkeppni og að
nokkur vindur var og ekki nægilega hlýtt í veðri.
Hann virðiíit ætla að verða fyrsti íslendingurinn,
sem hleypur 5 km. undir 16 mín., að undanskildum
Jóni Kaldal, en met hans, 15:23, er sctt í Dan-
mörku.
Fimmtarþraut.
1. Anton B. Björnsson (K.R.) .......... 2374 stig.
2. Jóhann Bernhard (K.R.) ............. 1971 —
Árangur hvors um sig í hinum einstöku greinum
var þessi: Langstökk : Anton 5.58 mtr. Jóhann 6.26
mtr. Spjótkast: A. 44.36. J. 38.64. 200 mtr.: A, 25.6
sek. J. 24.3 sek. Kringlukast: A. 30.47. J. 20.37.
1500 mtr.: A. 4 mín. 51 sek. J. 6 min. 8.6 sek.
Knattspyrnii'
111 ót íslands.
Fram íslandsmeistari í 11. sinn.
Knattspyrnumót íslands hófst 26. júlí og lauk 3.
ágúst. Svo sem kunnugt er, varð Fram sigurvegari
—■ nú í 11. sinn —- en það félag hefir ekki unnið ís-
landsmót síðan árið 1925. Hér skal skýrt stuttlega
frá einstökum leikjum.
1. K. R.—Fram5:2.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og vel leikinn á
báða bóga, en seinni hálfleikur miklu síðri og sást
þá lítið af góðri knattspyrnu. Bæði liðin voru nokk-
uð götótt, en K. R. var öruggara. Einstöku sinnum
náði Fram góðum samleik, sem þó hélst alltof stutt.
Ilér á eftir verður sýnt stigagildi bestu afreka í
hverri íþróttagrein;
1. 1500 mtr.: Sigurgeir Ársælsson..... 797 stig
2. 5000 mtr.: Sigurgeir Ársælsson..... 752 —
3. 800 mtr.: Sigurgeir Ársælsson...... 748 —
4. Kringlukast: Kristján Vattnes...... 743 —
5. Kúluvarp: Sigurður Finnsson ....... 729 ■—
6. Hástökk: Sigurður Sigurðsson ...... 727 —
7. 200 mtr.: Sveinn Ingvarsson........ 711 —
8. 400 mtr.: Sigurgeir Ársælsson...... 706 —
9. Sleggjukast: Vilhjálmur Guðmundsson 687 —
10. 100 mtr.: Sveinn Ingvarsson......... 686 —
11. Þrístökk: Sigurður Sigurðsson....... 639 —
12. 110 m. grindahlaup: Sveinn Ingvarss. 629 —
13. Langstökk: Jóhann Bernhard ......... 615 —
14. 10.000 mtr.: Indriði Jónsson........ 607 —
15. Stangarstökk: Hallsteinn Hinrriksson 575 •—•
16. Spjótkast: Ingvar Ólafsson ........ 550 —
Þetta yfirlit sýnir manni, hve ágætum árangri
hinn ferfaldi meistari Sigurgeir Ársælsson hefir
náð. Hann á 3 bestu afrekin, einmitt í þeim grein-
um. sem við höfum verið frekar aftarlega í hin
síðustu ár. Og þetta er fyrst og fremst að þakka
góðri og reglusamri æfingu og einbeittum vilja. —-
íþróttamenn, fetið í fótspor Sigurgeirs, og þá munu
íslensku metin hrynja hvert af öðru.
íkon.