Íþróttablaðið - 01.09.1944, Page 14
6
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Oliver Steinn í 100 m. hlaupi.
því lítið kynnst leikfimi og öðr-
um íþróttum fyrr en cg kom í
Flensborgarskólann, sem varð þó
heldur lítið þar, þar eð ég sakir
iasleika varð að slep])a leikfim-
inni, sem þó var skyldugrein í
skólanum. Samt sem áður varð
það úr, einhverra liluta vegna,
að ég tók þátt í þessu móti, ég
man nú ekki gjörla hver aðdrag-
andinn var, en hitt er víst, að ég
keppti þarna í langstökki, sem
seinna átti eftir að verða mín
sterkasta grein, þó stökklengd
mín væri ekki mikil þá, aðeins
5.70 m., enda niunu aðstæður
hafa verið öi’ðugar því sigurveg-
arinn stökk 6.02 m. Einnig kepjiti
ég þarna í boðhlaupi, ekki þó
vegna þess að ég væri svo dug-
legur að hlaupa, heldur vegna
hins, að þetta voru 10 manna
sveitir. Ég held að mönnum séu
valdar brautir yfirleitt eftir styrk-
leika þeirra í svona boðhlaup-
um, og sá bezti fái þá venjulega
beztu brautina. Hlaupastyrk minn
mátti því dæma í þetta sinn á
því, að ég mun hafa fengið ein-
hverja lélegustu brautina, sem
um var að ræða.
Um þetta leyti ríkti hin mesta
deyfð yfir frjálsnm íþróttilm hér,
þvi 1939 keppti ég í fyrsta sinni á
opinberu móti í Rvík þ. 17. júní
og var þá t. d. aðeins ég og Sig.
Sigurðsson frá Vestmannaevj-
um, sem kepptum i hástökki,
svipað var með ýmsar aðrar
greinar t. d. mættu þarna 3 kepp-
endur í langstökki, sem betur fer
er þetta öðruvisi nú. Mér var sagt að
Oliver í langstökki.
lágmarkshæð i hást. væri 1.55 m.
og mun það hafa fæll þátttakend-
ur frá því, því þá þótli allgott að
komast vfir 1.60 m., og 1.70 m.
var afbragðsgott, nú er öldin önn-
ur. Nú hugsa menn vfirleitt 20
cm. hærra. Beztu árangrar mínir
þetta fyrsta sumar, sem ég keppti
voru þessir: Hástökk 1.60 m., lang-
stökk 6.18 og þrístökk 12.83 m.
Ekki nægði þetta til þess að
sigra i neinni af þessum grein-
um, þó mun ég hafa hlotið ann-
að sætið fyrir þau. Á Allsherjar-
móti Í.S.Í. árið eftir sigraði ég
í fyrsta sinn í þríst., þó aðeins
með 1 cm. í síðasta stökkinu,
stökk þá 12.84 m. og sýnir það
hezt hversu mjög árangrar voru
Iakari þá en þeir eru núna, raun-
ar voru stökkin þá heldur „lengra
niðri“ en sumar hinna greinanna.
A Meistaramótinu þetta ár varð
ég svo tvöfaldur íslandsmeistari,
í langstökki, stökk 6.37 m., sem
þótti, held ég, allgott þá, og í
þrístökki, stökk rétta 13 m. og
þótti þá sæmilegt. Bezta afrek
mitt í hástökki þetta sumar var
1.67 m.
Sumarið 1941 urðu framfarir
ekki að sama skapi og búast
hefði mátt við, því það sumar
byrja ég í rauninni að æfa fvrir
alvöru. Til þessa hafði ég keppt
fyrir F.H. en nú kom ýmislegt
til greina, sem virtist ætla að
hinda enda á þátttöku mina í
frjálsíþr. t. d. fór Hallst Hin-
riksson og ýmsir helztu frjáls-
íþr.nlenn Hafnarfjarðar úr bæn-
um yfir sumartímann, svo var
hernámið, Iierinn hafði lagt veg
Oliver i hástökki.