Íþróttablaðið - 01.09.1944, Qupperneq 24
16
IÞRÓTT ABL AÐIÐ
Frímann:
Knattspyrnuhjal
Valur vann II. fl. mótið í Reykjavík.
fvrir nokkru fór fram Reykjavikurmót II. fl.
Lauk því með sigri Vals, mun þetta vera 6. mótið í
röð sem Valur vinnur í þessum flokki. Aðeins 3 félög
tóku þátt í mótinu, eða Fram, K.R. og Valur.
Leikar fóru þannig að K.R. vann Fram 5:0, Val-
ur Fram 4:0, en í úrslitaleik vann Valur K.R. með
2:1.
K.R. vann fjórða flokks mótið.
Aðeins þrjú félög tóku þátt í því, þau Fram,
K.R. og Valur.Fóru leikar þannig: K.R. Fram
3:1, Valur—Fram 0:0. K.R.—Valur 2:0 og vann
K.R. því mótið. Fram hefur að undanförnu sigrað
í þessum flokki og oft átt góðar sveitir. Lið K.R.
var mun hezt, að þessu sinni.
K.R.R. 25 ára.
Elsta íþróttaráð þessa lands varð 25 ára 29.
maí s.l., en það er Knattspyrnuráð Reykjavíkur,
stofnað 1919. Knattspyrnan varð hrátt það um-
fangsmikil hér, að sjálfsagt þótti, að stofna sér-
ráð um liana í Reykjavík. Hefur K.R.R. liaft fram-
kvæmd allra knattspyrnumála í höfuðstaðnum
og verið í mörgu ráðgefandi Iþróttasambandinu
um knattspyrnumál. Það hefur gengizt fyrir heim-
sóknum erlendra flokka og utanförum íslenzkra
knattspyrnumanna.
Hefur ráðið unnið þarft verk á þessum aldar-
fjórðungi og sérstaklega liafa þó störfin gengið
betur síðan það varð þingbundið.
Fyrsti formaður ráðsins var Egill heitinn Jacob-
sen, sem var drengur góður og mikill knattspyrnu-
unnandi, og var það ráðinu vissulega lán, að fá
liann sem formann í byrjun.
I tilefni 25 ára afmælisins fékk ráðið vegg-
skjöld Í.S.Í. fvrir gott starf.
Samsæti.
I tilefni af þessu afmæli hélt ráðið ýmsum
knattspyrnufrömúðum og íþróttaforráðamönn-
um kaffisamsæti. Var borgarstjórinn i Reykjavík
þar og boðinn. Allir þeir, sem verið hafa fulltrú-
ar i K.R.R. frá byrjun, og til var liægt að ná, voru
boðnir. Var hóf þetta skemmtilegt og gaman að
heyra hina eldri rifja upp atvik og atriði úr
knattspyrnusögunni. Voru þar sagðar margar kát-
broslegar sögur um félagakritinn, sem nú er orð-
inn, sem betur fer, gömul saga, og heyrir fortið-
inni til. Atriði, sem maður getur hlegið að nú.
Kappleikur.
A vann B.
Ráðinu fannst tilhlýðilegt að í sambandi við
afmælið færi fram knattspyrnuleikur. Fór hann
fram með nokkuð sérstökum hætti. Undirbúin
bafði verið atkvæðagreiðsla í blöðunum um það
hverjir kæmu til greina í A- og B-lið. Attu þeir,
sem flest atkvæði fengu á hverjum stað að leika
með A-liði, en sá, sem næst flest fékk léki í B-liði.
Þetta var sem sagt nokkurskonar skoðanakönnun.
Niðurstaðan úr þessari skoðanakönnun varð sem
hér segir:
A-lið: Hermann (Val), Björn Ólafsson (Vai),
Frímann (Val), Geir (Val), Högni (Fr.), Jóhann
Eyjólfss. (Val), Óli B. Jónss. (K.R.), Birgir Guð-
jónsson (K.R.), Albert Guðmundsson og Ellert
Sölvason. (Báðir úr Val).
B-lið: Anton Sigurðsson (Vík.), Guðbjörn Jóns-
son(K.R.), Haukur Antonsson (Fr.), Gunnlaugur
Lárusson (Vík.), Brandur Brynjólfsson (Vík.),
Sæmundur Gíslason (Fr.), Jón Jónasson (K.R.,
Ingvi Pálsson (Vík.), Hörður (K.R.), Haukur Ósk-
arsson (Vík.) og Isebarn (Vík.).
Þegar á völlinn kom gátu þrír ekki keppt með
í A-liði, þeir óli B., Geir og' Högni og áttu þá eðli-
lega tilsvarandi menn úr B-liði að ganga upp í A-
lið, en svo varð þó elcki, varamenn komu í A-lið-
ið þeir Anton Erlendsson (Val), Hörður Ólafs-
son (Vík) og Einar Pálsson (Vík).
Þessum leik lauk með sigri A-liðsins 3:1. Það
einkennilega var þó, að B-liðið átti meira í leikn-