Íþróttablaðið - 01.09.1944, Side 25
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
17
um, sérstaklega um miðju vallarins og allt í allt
lá meira á A-liðinu. En sókn B-liðsins strandaði
alltaf við vítateig á vörninni.
Ráðið sýndi áhorfendum þá rausn, að bjóða þeim
ókeypis á þennan leik, sem þeir liöfðu sjálfir val-
ið liðin í.
I^andsmót 1. fl. vann K.R.
Landsmót 1. flokks hófst hér 15. ágúst. Tóku 7
félög þátt í þeim, eða Fram, Í.R., K.R., Valur og'
Víkingur, öll úr Reykjavík, en utan Reykjavíkur
voru flokkar frá Akranesi og Hafnarfirði. Keppni
þessi var svokölluð útsláttarkeppni, þar sem það fé-
lag er úr íeik, sem tapað Iiefur einum leik, og fékk
K.R.R. undanþágu frá gildandi reglum um þetta
atriði.
í fyrstu umferð kepiitu eftirtöld félög, og fóru
leikar þeirra þannig: Akranes—Víkingur 2:0, Iv.H.
—Í.R. 3:0, K.R.—Fram. Valur sat yfir, en lék
í annari umferð við K.R. og tapaði með 5:1. Hinn
leikurinn í þessari umferð var milli Akranes-
inga og Hafnfirðinga og töpuðu þeir síðarnefndu
2:0. Til úrslita mættu svo K.R. og Akranesingar.
Var leikur þeirra jafn og hefði eins vel getað
endað með jafntefli. Er þetta góð frammistaða
hjá Akurnesingum. Úrslit 2:1 fyrir K.R.
K.R. vann II. fk landsmótið.
Aðeins 4 félög tóku þátt i þessu móti eða Fram,
K.R., Valur og flokkur úr Hafnarfirði. Frá K.H.
komu fram í þessum floklcum mörg góð knatt-
spyrnumannaefni, sem með góðri æfingu ættu að
geta orðið góðir arftakar liinna eldri.
Leikar í þessu móti fóru þannig: Valur—Fram
1:1, K.R.—K.H. 4:0, K.R.—Valur 1:0, Fram—K.H.
4:3, Valur—K.H. 4:0, K.R.—Fram 4:1.
K.R.-Iiðið ræður yfir miklum krafti og töluverðri
leikni. Leikur Fram og Vals er einhver bezt leikni
II. fl. leikur, sem ég hefi séð og voru bæði lið
þeirra jöfn. Furðu mikil leikni og oftast tilraun
til samleiks. í þessum flokki hefur Valur unnið
(5 mót í röð, þar til nú K.R. har verðskuldaðann sig-
ur úr hýtum.
Valur vann III. fl. landsmótið.
í þriðja flokki vann Valur landsmótið sem hófst
16. ágúst. Aðeins félög úr Reykjavík tóku þátt í
inótinu eða Fram, K.R., Valur og Víkingur. Hafn-
firðingar, sem undanfarin ár liafa staðið sig vel
í þessu móti voru ekki með.
Leikar fóru þannig: .Fram—Vikingur 2:0, K.R.
—Valur 0:0, Valur—Vikingur 3:0, Fram—K.R.
1:0, K.R.—Víkingur 0:0, Valur—Fram 1:0.
K.R. Vann Reykjavíkurmótið.
Þetta Reykj avíkurmót var ekki eins skemmti-
legt og ætla mætti, þegar teldð er tillit til þess, að
það fer fram á þeim tíma, sem leikmenn ættu að
vera í fullri þjálfun. Það undarlega skeði þó, að
ekkert liðið var í sómasamlegri þjálfun nema K.R.,
jió er það svo, að þeir tapa fyrir Víking, en i þeim
leik er Birgir ekki með og liefur það sína þýð-
ingu fyrir K.R. og býzt ég við að enn sé hann of
stór hluti af liðinu.
Þetta æfingarleysi félaganna má að nokkru leyti
afsaka með lélegum æfingaskilyrðum og sumpart
ódugnaði og viljaleysi. K.R. var eina félagið, sem
æfði nkokurnveginn eins og liægt var og hlaut
fyrir það sigur. Engin sérstök athöfn fór fram í
sambandi við setningu mótsins, og þvi síður fóru
slit þess betur fram, en venja hefur verið. Þó voru
gerðar smátilraunir til að fá fólkið til að fara ekki
inn á völlinn, að leik loknum, en áhorfendur
kunna sig ekki betur en þetta, að það tókst ekki, og
sama þyrpingin, og svo oft áður, safnaðist kringum
leikmenn.
K.R.-liðið.
Eins og fyr segir, byrjaði þetta mót ekki vel fyrir
Iv.R. þar sem það tapaði fyrir Víking, og er or-
sökin þegar nefnd. Annars féll liðið vel saman og
vann óvenjulega vel saman með stuttum samleik.
Það má segja að liðið samanstandi af gömlum og
þaulreyndum leikmönnum, s. s. Óla B., Jóni Jóns-
syni, Birgi og Haraldi Guðm., og svo eru hinir flestir
kornungir en áhugasamir og efnilegir leikmenn. Má
þar nefna miðframherjann Hörð Óskarsson, sem er
duglegur, en stundum of ákafur í aðgerðum sínum.
Matthías og Kjartan sýna báðir miklar framfarir
og Ólafur, hægri útherji, er fylginn sér og djarfur
i sóknaraðgerðum sínum en stundum nokkuð ein-
ráður. Hafliði virðist vera búinn að ná sér eftir
lasleika í fæti og er það mikill styrkur fyrir liðið.
Hin liðin.
Allir hinir flokkarnir höfðu það sameiginlegt
að mæta illa þjálfaðir til þessa móts og fengu þvi