Íþróttablaðið - 01.09.1944, Qupperneq 33
IÞRÓTTABLAÐIÐ
25
Þorsteinn Einarsson:
»Eg vil læra að syndatc
Lítill drengur hefur horft á
sundkennslu í seftjörn. Hann er
sem heillaður af að sjá stráka
og stelpur þeytast um tjörnina á
sundi. Sumir eru komnir á flot,
en öðrum lialda sundhelgir uppi.
Hvernig væri að reyna þetta
hugsaði drengurinn og hugsunin
er framkvæmd. Drengurinn legst
í tjörnina með sundbelg á sér.
Þegar út á tjörnina kemur losn-
ar sundbelgurinn og flýtur
á yfirborðinu, en drengurinn
sekkur, — ósjálfbjarga — van-
kunnandi.
Drengurinn kemst upp á tjarn-
arbakkann þjakaður og íullur af
vatni, en úti á tjörninni flýtur
útblásinn skinnsokkurinn, þá
beit þessi óharðnaði drengur á
jaxlinn og hét því með sjálfum
sér: „Ég skal læra að synda“.
Þessi sami drengur varpar sér til
sunds í Eyjafirði í sjóklæðum
og sjóstígvjelum. Hann kastar á
sundi klæðum með frábærum
endurgjaldslaust það sem eftir var
dagsins. Var það rækilega notað af
ungum og gömlum. Var oft um 40
manns í lauginni í einu. Formaður
nefndarinnar gat þess í ræðu sinni,
að þennan dag og næstu daga á undan
hefðu nefndinni borizt um 15 þúsund
kr. og þegar eftir vígsluna bárust
henni og nokkur þúsund kr.
KI. 8% um kvöIdiS var haldin
skemmtun i Bíóhöllinni til ágóða fyr-
ir laugina. Þar talaði Þorsteinn Ein-
arsson íþróttafulltrúi uin'sundíþróttina
hér á landi. Ennfremur Þorgeir Ibsen
um sama efni, þar var og sungið og
afhent verðlaun.
Þetta er fyrsta laugin á landi liér
sem hefur áhorfendasvæði.
fimleik og syndir yfir fjörðinn.
Á bezta sundskóla Dana fær
liann liæstu einkunnir, er hann
tekur sundkennarapróf. Haim
ferðast erlendis á milli baðstaða
Lárus J. fíist.
og hann gerir meira en að baða
sig i sól og vatni. Hann athugar
fyrirkomulag og rekstur. Sú hug-
sjón fæðist hjá honum, að bað-
staði þurfi að reisa á Islandi.
Við fylgjum starfsferli þessa
drengs, sem hét því við seftjörn-
ina að læra að svnda. Hann
kennir fimleika og sund skóla-
fólki og almenningi á Akureyri.
Jafnframt hinu líkamlega upp-
eldi befur hann áhuga fyrir bólc-
menntum og landsmálum. Hann
tekur sér ferð á hendur til Vest-
urheims og ferðast þar meðal
íslendinga og heldur fyriríestra.
Árin líða og krafta sína og
gáfur helgar hann félagsmálum
og kennslustörfum, og 65 ára
gamlan hittum við liann við barm
inn á 50 metra sundiaug. Hann
hefur með bjartsýni og skarp-
skyggni séð baðstaðnum stað og
fengið samvinnu ýmissa aðila,
til þess að hrinda hugmyndinni
af stað. Á hverju ári nálgast bað-
staðurinn fullkomnun. Fjöldi
baðgesta innlendra og erlendra
sækja baðstaðinn og hundruð
sunnlenzkra barna hafa lært að
synda í lauginni. Lægni kennar-
ans við að koma öllu á flot er
rómuð.
18. júní s.l. þegar 2 sundnám-
skeið barna af Suðurlandsund-
irlendi fór fram, átti Lárus Rist
65 ára afmæli. Börnin og kenn-
arar þeirra hittu Lárus og' fjöldi
manna heimsótti hann og ótal
kveðjur og heillaóskir bárust
lionmn.
Hér eru nokkrar afmælisóskir,
Eg þakka liðnu árin, ég þakka unnin
störf.
í þágu líkamsmennta var sókn þín
traust og djörf.
Þig samtíð krýndi heiðri. Þig hylli
lands vors saga.
Þú hátt og og frjálst barst merkið um
langa æfidaga.
Magnús Pétursson.
Þér ógnar aldrei svalur sjór
en syndir áfram reifur, glaður.
Lifðu heill í hundrað ár
hálfsjötugi æskumaður.
Gnnnar fíenkdiktsson og frú.