Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1968, Page 13

Íþróttablaðið - 01.12.1968, Page 13
ráði ÍSÍ, og hefir þeirra tveggja fyrri verið ýtarlega getið hér í blaðinu, en 35. fundur Sambandsráðs ISl var haldinn í húsakynnum sambandsins laugardaginn 18. maí 1968. Forseti ISl, Gísli Halldórsson, setti fundinn og bauð sérlega velkominn í hópinn nýkjörinn formann Fim- leikasambands Islands, Valdimar Örnólfsson. Síðan flutti hann skýrslu framkvæmdastjórnar ISl frá sambandsráðsfundi 10. nóvember 1967 til sambands- ráðsfundar 18. maí 1968, og var í þeirri skýrslu getið margra þeirra atriða, sem hér hafa verið talin að framan. Þá voru teknar fyrir skýrslur sérsambandanna, en formenn þeirra (eða varaformenn) gáfu hver um sig stutt yfirlit yfir störfin hjá hverju einu sambandi. Er ekki ástæða til að rekja efni þeirra skýrslna hér, því að flestra þeirra atriða, sem fram komu í skýrsl- unum, hefur verið getið í blaðinu, eða er getið í þessu tölublaði annars staðar. Urðu nokkrar umræður um skýrslurnar, og í sam- bandi við þær m. a. rætt nokkuð um ferðareglur íþrótta- manna og brot á þeim, einkum að því er snerti áfengis- neyzlu íþróttamanna á ferðalögum, svo og eftirlitsleysi fararstjóra þeirra, sem fylgja yngri flokkunum til keppni i önnur héruð. Voru menn sammála um, að ferðareglurnar væru sízt of strangar, og kvað forseti ISl það mjög tímabært, að reglurnar yrðu endurskoðaðar. £>á voru ræddar og siðan samþykktar eftirfarandi tillögur: „Fundur haldinn í Sambandsráði ISl 18. maí 1968 samþykkir að skipta helmingi skatttekna ISl á milli hinna 10 sérsambanda á þann veg, að hluti þeirra verði jafn, þ. e. kr. 5.000,00 komi í hlut hvers sérsambands.“ „Fundur haldinn í Sambandsráði ISl laugardaginn 18. maí 1968 samþykkir eftirfarandi skiptingu á fé því, sem áætlað er til útbreiðslustyrks sérsamband- anna í fjárhagsáætlun Iþróttasambandsins fyrir árið 1968: Badmintonsamband Islands ......... kr. 20.000,00 Fimleikasamband Islands ............ — 10.000,00 Frjálsiþróttasamband Islands ....... — 55.000,00 Glímusamband Islands ............... — 30.000,00 Golfsamband Islands ................ — 30.000,00 Handknattleikssamband Islands ...... — 55.000,00 Knattspymusamband Islands .......... — 55.000,00 Körfuknattleikssamband Islands ..... — 55.000,00 Skíðasamband Islands ............... — 50.000,00 Sundsamband Islands ................ — 40.000,00 Samtals kr. 400.000,00 „Með tilvísun í 8. gr. áhugamannareglna iSl og meðmæli Knattspyrnusambands Islands samþykkir sambandsráðsfundur ISl 18. mai 1968 að veita Þórólfi Beck áhugamannaréttindi að nýju.“ „Sambandsráðsfundur ISl, haldinn 18. maí 1968, sam- þykkir, að fé því, er íþróttanefnd ríkisins úthlutar úr íþróttasjóði 1968 til ISl (kennslustyrkir), verði skipt á milli aðila í réttu hlutfalli við útreiknaðan kennslu- kostnað, gerðan eftir kennsluskýrslum, og fjárhæð þá, er Iþróttanefnd veitir í þessu skyni.“ Að tillögunum samþykktum var kosinn fulltrúi ISl í Iþróttanefnd ríkisins. Var það Gunnlaugur J. Briem, og til vara Sveinn Björnsson, en að því loknu voru tekin fyrir lög FSl (Fimleikasambands íslands), og staðfesti fundurinn lögin, eins og þau höfðu samþykkt verið á stofnþingi sambandsins. Á þessum fundi Sambandsráðs mættu: Úr framkvæmdastjórn ISl: Gísli Halldórsson, Guðjón Einarsson, Gunnlaugur J. Briem, Þorvarður Árnason og Sveinn Björnsson. Fulltrúar kjördæmanna: Jens Guðbjörnsson, Jón F. Hjartar, Guðjón Ingimundarson, Ármann Dalmannsson, Þórarinn Sveinsson, Stefán Runólfsson, Yngvi R. Bald- vinsson og Björn Magnússon. Formenn og fulltrúar sérsambandanna: Kristján Benjamínsson frá Badmintonsambandi Is- lands, Örn Eiðsson frá Frjálsíþróttasambandi Islands, Kjartan B. Guðjónsson frá Glímusambandi Islands, Axel Einarsson frá Handknattleikssambandi íslands, Helgi V. Jónsson frá Knattspyrnusambandi Islands, Magnús Björnsson frá Körfuknattleikssambandi Islands, Stefán Kristjánsson frá Skíðasambandi Islands, Garð- ar Sigurðsson frá Sundsambandi Islands. Auk þess Þórður Sigurðsson, ritstjóri Iþróttablaðs- ins, Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi og Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Isl. ÚTGÁFUNEFND ISl. 1 útgáfunefnd ISI eru: Þorsteinn Einarsson, for- maður, Sigurgeir Guðmundsson, Jens Guðbjörnsson og Hermann Guðmundsson. Á vegum Bókaútgáfu ISl komu út þessi rit: Leik- reglur í borðtennis, 1. útgáfa, Leikreglur í glímu, 5. útgáfa, Leikreglur I lyftingum, 1. útgáfa, Leikreglur í sundi, 6. útgáfa, Leikreglur í körfuknattleik, 4. út- gáfa. IÞRÓTTAMERKJANEFND. Iþróttamerkjanefnd skipa þessir menn: Jens Guð- björnsson, formaður, Bragi Kristjánsson. Hannes Þ. Sigurðsson, Stefán Kristjánsson, Þorvarður Árnason. Á árunum 1966 og 1967 bárust skýrslur um töku íþróttamerkisins frá eftirtöldum aðilum: 1966 Ungmennasamband Skagafjarðar .......... 35 Héraðssambandið Skarphéðinn ............ 6 Ungmennasamband Eyjafjarðar ........... 11 Iþróttabandalag Akureyrar.............. 18 Héraðssamband Snæfellinga ............. 26 Frjálsíþróttaráð Reykjavíkur ........... 5 U. S. V. H.............................. i 253

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.