Íþróttablaðið - 01.11.1969, Síða 25
Skólakennarinn Colette Besson ásamt nemendum sínum.
slitahlaupinu, hljóp hún síðustu
100 metrana á undraverðum
hraða og sigraði hina brezku Lill-
ian Board, sem var enn frcmst,
aðeins þrem skrefum frá snúr-
unni. Sigurinn var stórkostlegur.
tíminn 52.0 sekúndur, nákvæm-
lega sá sarni og þjálfarinn hafði
lofað, og þar að auki Evrópumet.
— Þannig varð Colette Besson á
einum degi frægasta kona Frakk-
lands. Hún kom fram í sjónvarpi,
útvarpi og skrifað var um hana
í öll blöð. Henni var sýndur mik-
ill heiður og var boðin í stór-
veizlur og gjafir bárust hvaðan-
æva að. Þrátt fyrir alla þessa \ ið
höfn og frægðina, var Colette
hin sama, — hlédræg, tilfinn-
inganæm ung stúlka, en ham-
ingjusöm og fullviss um, að þessi
sigur væri aðeins áfangi að því
rnarki, sem hún hafði sett sér.
Colette hugsar stöðugt til fram-
LYKILL LÍFSINS GÆÐA
EK SPARNAÐUR
Yerzlunarbanki
Islands
Bankastræti 5, Reykjavík, sími 22190.
Útibú, Laugavegi 172, Reykjavík, sími 20120.
Útibú, Hafnargötu 31, Keflavík, sími 1788.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
49