Íþróttablaðið - 01.02.1995, Blaðsíða 43
SPÉHRÆDDAR í
FYRSTA LEIKNUM
- segir ODDNÝ ERLENDSDÓTTIR
blakkona í íslandsmeistaraliði Víkings
Texti: Jóhann Ingi Árnason
Oddný Erlendsóttir hefur stundað
blak í 16 ár og hefur engin önnur
spilað fleiri landsleiki. Hún á tvo ís-
lands- og bikarmeistaratitla að baki
og allt bendir til þess að hún, ásamt
Víkingsstelpunum, tryggi sér ís-
landsmeistaratitilinn í ár. Oddný hóf
ferilinn hjá Breiðabliki og var þar allt
til ársins 1993 en þá var blakdeild
félagsins lögð niður. Umfjöllun um
blak hefur verið í lágmarki en hver
ætli sé staða íþróttarinnar í dag?
„Blakið sjálft er ekki í neinni lægð
og deildarkeppnin hjá okkur er mjög
spennandi. Starfsemi yngri flokkanna
hefur hins vegar verið í lágmarki en
verið er að gera bragarbót á því.
Blaksambandið hefur sent fólk í alla
grunnskóla á Reykjavíkursvæðinu til
kynningar á blaki. Einnig hefur verið
lögð meiri áhersla á það að lið tefli
fram yngri flokkum og m.a. reynt að
koma á reglugerð þar sem lið, sem
ekki hafði yngri flokk, mátti ekki taka
þátt í deildarkeppninni. Við í Víkingi
erum með yngri flokk en það hefur
vantað fleiri stelpur í hann. Þetta hef-
ur komið sér illa þar sem nú vantar
nokkrar árganga sem ættu að vera að
skila sér í liðin. Við erum með mjög
þröngan hóp og okkar vantar ungar
og efnilegar stelpur til að taka við af
okkur."
— Er það rétt að íslandsmeistarar
HK í karlaflokki hafi ekki ætlað að
vera með í vetur vegna mannekklu."
„Þeir áttu í basli með að ná í lið en
það tókst. Það er lítil breidd hjá flest-
um liðum en þó meiri hjá körlunum
en okkur."
— Er eitthvað hægt að gera til að
vekja áhuga ungmenna á blaki?
„Umfjöllun skiptir mjög miklu
máli eins og sést best á körfuboltan-
um. Fjölmiðlar hafa ekki sýnt okkur
nægan áhuga og við höfum heldur
ekki verið nógu duglegar að kynna
okkur. Ég tók eftir því í fyrra, þegar
úrslitaleikur okkar gegn ÍS var sýndur
í beinni útsendingu, að fólk var að
stoppa mann úti á götu og segja
hversu spennandi leikurinn hafi
verið."
— Heldurðu að spennan í deild-
inni sé minni vegna þess að aðeins er
leikið í einni deild og því ekki hægt
að falla?
„Nei, ég tel það ekki skipta máli.
Deildin er mjög spennandi og þótt
við í Víkingi höfum nú ellefu stiga
forskotbyrja liðin fjögur, sem komast
í úrslitakeppnina, á núlli."
— Hvað er að gerast í landsliðs-
málunum?
„Annað hvert ár leikum við á Ól-
ympíuleikunum og svo förum við
alltaf á Smáþjóðaleikana. Þegar við
héldum Smáþjóðaleikana árið 1990
bárum við sigur úr býtum en hins
vegar höfum við ekki náð verðlauna-
sæti á Ólympíuleikunum."
— Hvar stöndum við í saman-
burði við hinar Norðurlandaþjóð-
irnar?
„Við fórum á Norðurlandamót
fyrir nokkrum árum en áttum lítið að
segja í hinar þjóðirnar. Þær eru heil-
um gæðaflokki fyrir ofan okkur."
— Er styrkleikamunurinn svipað-
ur hjá körlunum?
„Við höfum reyndar verið að ná
betri árangri en þeir en það er
kannski vegna þess að karlaþjóðirnar
eru sterkari á heimsvísu. Það hefur
hins vegar háð báðum landsliðunum
hversu seint undirbúningur fer yfir-
leitt af stað. Við höfum oft lent í því
að náekki almennilega saman fyrren
í lok mótanna."
— Er einhver samkeppni um stöð-
ur í landsliðinu eða eiga leikmenn
fast sæti í liðinu þar til þeir kjósa að
hætta?
„Það er ekki mikil endurnýjun í
blakinu svo þetta eru mikið til sömu
stelpurnar sem er að leika landsleiki
ár eftir ár. Maður á samt aldrei fast
landsliðssæti því núna eru t.d. að
koma inn nýliðar sem verða með
okkur á næstu mótum."
— Yfir í aðra sálma — ÍS stúlkur
spila í hjólabuxum, þið í skýlum og
HK í stuttbuxum. Hver er ástæðan?
„Þetta er búið að vera mikið deilu-
mál hjá Víkingi, þ.e. hvort við ættum
að spila í stuttbuxum eða bara þess-
um gömlu. En skýlubuxurnar eru
mun þægilegri. Hjólabuxurnar eru
að verða vinsælar úti í heimi. Við
höfum verið alveg hrikalega hallær-
islegar á mótum erlendis í þessum
karlabuxum en þar spila öll lið í skýl-
um. Það voru voðaleg viðbrigði hjá
okkur í Víkingi aðfara í skýlurnar og í
fyrsta leiknum leið manni ekkert sér-
staklega vel. Það munaði minnstu að
við töpuðum leiknum vegna
spéhræðslu."
43