Íþróttablaðið - 01.02.1995, Síða 49
inum, líklega aðeins tíundi hluti þess
sem við notum. Á þeim velli er sand-
urinn aðeins í botninum. Sandurinn
er tiltölulega ódýr en mesti kostnað-
urinn við rekstur vallarins er heita
vatnið.
Þótt gervigrasvöllurinn í Hafnar-
firði sé hugsaður sem fjölnota völlur
finnst mér persónulega gott að leika
þar þegar grasið er vel blautt. En þar
sem um eins og hálfs sentímetra hol-
rúm er frá mottu að snjónum, bráðn-
ar snjórinn hægar þar en á Kópavogs-
vellinum. Ég vil helst ekki tala um
gervigrasvöllinn í Laugardal því þar
endaði minn knattspyrnuferill —
vegna meiðsla.
Aðalvöllurinn í Kópavogi var
byggður árið 1975 og hefur hann
einu sinni verið tekinn allur upp og
hlutar hans nokkrum sinnum. Við
höfum ekki verið í neinum vandræð-
um með hitann en undirlag vallarins
erekki nógu gott. Það, sem hefurgert
útaf við Kópavogsvöllinn, er gríðar-
legt álag en segja má að hann hafi
verið drepinn á hverju ári."
í skýrslu frá mannvirkjanefnd KSÍ
kemur fram að álagið á völlum í
Kópavogi nemi um 350 klukkustund-
um á ári en hjá ÍA aðeins um 146
stundum. Flestireru sammála um að
um 200 klst. á ári sé í rauninni há-
marks álag sem hægt sé að bjóða
grasvöllum hér á landi. Við mat á
álagi er tekið félag sem hefur alla
flokka karla og kvenna innan sinna
vébanda. Þessi flokkar þurfa um 54
klst. á viku í æfingar og keppni og er
gert ráð fyrir að æfingarnar fari allar
fram á grasi. Álag á grasvellina hjá
meðaltalsfélögunum í 1. og 2. deild
verður þá sem hér segir: 1. deild: 200
klst./ári — 2. deild: 350 klst./ári.
Sum félög, eins og til dæmis ÍA,
eru að gera mjög góða hluti með sitt
grassvæði með því að dreifa álaginu
og leita sér faglegrar aðstoðar vegna
viðhalds og almenns reksturs.
í dager það Ijóst að knattspyrnulið
eru hætt að líta á gervigrasvelli sem
lausn allra mála. Þeir er síður en svo
besti kosturinn á veturna en á vorin
og haustin er ekki um annað svæði
að ræðafyrir æfingaleiki nema menn
vilji fara aftur á gömlu góðu mölina
sem er reyndar alls ekki svo slæm.
Knattspyrnuforkólfar líta hýru auga
til yfirbyggðra valla en hvenær slíkt
mannvirki verðurað veruleikaerenn
óvíst.
BIKAR
Erlingur Kristjánsson, fyrirliði bikarmeistara KA í handknattleik og Sigmar
Þröstur Óskarsson, hampa hinum glæsilega bikar eftir gríðarlega spenn-
andi úrslitaleik gegn Val.
Grindavík hafði betur gegn íslandsmeisturum Njarðvík í úrslitaleiknum um
bikar körfuknattleikssambandsins. Hér eru piltarnir kampakátir eftir hafa
fengið gripina afhenta.
49