Fréttablaðið - 21.08.2020, Side 1

Fréttablaðið - 21.08.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 8 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 1 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Nýr T-Cross Brúar bilið á milli jeppa og fólksbíls www.volkswagen.is · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA Veldu þinn uppáhalds á hekla.is/volkswagensalur EFNAHAGSMÁL Samtök atvinnulífs- ins (SA) kalla eftir því að stjórnvöld framkvæmi heildstæða greiningu á hagrænum áhrifum þess að herða takmarkanir á landamærunum. Stjórnvöld þurfi að rökstyðja vel þær aðgerðir sem geta valdið ferða- þjónustunni tugmilljarða króna tjóni. Samkvæmt greiningu sem samtökin létu gera er árlegt tjón greinarinnar á næstu árum metið á 150 milljarða króna. „Við viljum sjá greiningu sem rök- styður svona íþyngjandi aðgerðir. Það verður að vera hægt að sýna fram á að ávinningurinn af þessum aðgerðum vegi upp tjónið,“ segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, í samtali við Fréttablaðið. Gagnsæi og fyrirsjáanleiki vegi þungt í þessu samhengi. Ef spár Seðlabanka Íslands fyrir og eftir tilkomu kórónaveirunnar eru bornar saman má álykta að heildartjón vegna veirunnar geti hlaupið á 400-500 milljörðum króna á hverju ári, að sögn Önnu Hrefnu. Þá geti tjónið sem ferðaþjónustan horfir fram á árin 2020 til 2022 vegna kórónaveirunnar hlaupið á 150 milljörðum króna árlega miðað við minnkandi hlutdeild greinar- innar í landsframleiðslu. „Það er vissulega mikið hrun í erlendri eftirspurn og mikil fækkun f lugferða milli landa vegna takmarkana annarra landa, sem við getum ekki haft áhrif á. Við getum þó haft einhver áhrif á þessar stærðir,“ segir Anna Hrefna. „Við teljum að hertar aðgerðir eða tilslakanir geti skipt máli upp á tugi milljarða til eða frá fyrir ferða- þjónustuna.“ Þá bætir hún við að greiningin þurf i að vera heildstæð. „Öll af leiddu áhrifin, þó að þau séu ekki auðmælanleg, hafa ekki fengið nægjanlega athygli. Langvarandi atvinnuleysi hefur gífurlega slæm áhrif, bæði fjárhagslega og félags- lega. Við þurfum að taka tillit til þessara þátta rétt eins og við tökum tillit til fjölda smitaðra.“ Hagræn greining á aðgerðum er sérstaklega mikilvæg, að mati Önnu Hrefnu, í ljósi þess að aðgerð- ir íslenskra stjórnvalda eru harðari en stjórnvalda í helstu nágranna- löndum. „Stefnan var upphaf lega sú að f letja út kúrfuna og koma í veg fyrir of mikið álag á heilbrigðis- kerfið. En miðað við það hvernig seinni bylgja faraldursins hér á landi fór af stað, og hversu hörð viðbrögð stjórnvalda voru, hljóta önnur sjónarmið að búa að baki. Það virðist vera að stjórnvöld sætti sig ekki við neitt smit,“ segir Anna Hrefna. – þfh Þurfa að rökstyðja tugmilljarða tjón SA kalla eftir heildstæðri greiningu á hertum aðgerðum stjórnvalda. Þurfa að rökstyðja aðgerðir sem geta valdið ferðaþjónustunni tug- milljarða tjóni. Árlegt tjón greinarinnar er metið á 150 milljarða króna. Þurfa að taka afleidd áhrif atvinnuleysis með í reikninginn. Það verður að vera hægt að sýna fram á að ávinningurinn af þessum aðgerðum vegi upp tjónið. Anna Hrefna Ingi- mundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA Það var nokkur fyrirgangur í Óseyrarhöfn í Hafnarfirði laust eftir hádegið í gærdag þegar skipinu Jökli var lyft upp af hafsbotni þar sem það hafði legið frá því að það sökk fyrr í vikunni. Sæta varð sjávarföllum og á háfjöru tókst að lyfta skipinu. Jökull, sem kominn er nokkuð til ára sinna, er 80 tonna línubátur og er gerður út frá Sauðárkróki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.