Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2020, Blaðsíða 13
Kristján horfir á kraumandi eldgíg eldfjallsins Nyiragongo í Kongó. menningur hreinlega lokað landinu að mestu. Ég komst á hinn bóginn einhverja 300 km en þarna var komið fram í júní 2019. Á öllum mín- um ferðalögum hef ég aldrei lagt mig í eins mikla hættu.“ Ekki helgaðist það þó af ástandinu í landinu heldur veðrinu en 50 stiga hiti var í Súdan á þessum tíma og glampandi sól. „Ég kunni ekk- ert á þetta veður; taldi mig vera með nægar vatnsbirgðir en annað kom á daginn. Mér leið ekkert sérstaklega vel þarna, einn að hjóla í eyðimörkinni, og sá engin hús, bara mold- arkofa. Það varð mér til happs að ég rakst á vegagerðarmenn sem leyfðu mér að halla mér undir sólhlíf til að jafna mig og safna kröftum, auk þess að gefa mér að borða og drekka.“ Lengra komst Kristján raunar ekki en búið var að loka veginum og ekki um annað að ræða en að snúa við. Kristján hringdi því í „redd- arann“, sem sendi hjón nokkur til móts við hann og fékk hann hjá þeim húsaskjól. Hjólið var sett á pramma og farið með það sem leið lá út á litla eyju á ánni Níl, þar sem Kristján dvaldist í þrjá sólarhringa án þess að hafa hug- mynd um hvað væri á seyði í heiminum. „Eng- inn vissi neitt og mér sagt að ég gæti alveg eins búið mig undir að vera í þrjá mánuði á eyj- unni. Suðurlandamærin við Eþíópíu voru lokuð og ég fann fyrir mikilli frelsisskerðingu, ekki síst vegna þess að ég gat ekki látið nokkurn mann vita af mér. Það var ekkert net þarna, ekkert Wi-Fi og eina leiðin til að koma skila- boðum heim var gegnum fax. Þú veist hvað það er?“ segir hann hlæjandi. „Þannig kom ég skilaboðum til Ásdísar gegnum faxnúmer í Þýskalandi. Þá kom hins vegar í ljós að hún gat hringt í mig enda þótt ég gæti ekki hringt í hana.“ Hætti við að hætta við Eftir þrjá daga á eyjunni komst Kristján aftur til Egyptalands og var frelsinu feginn, þrátt fyrir herfylgdina sem tók við að nýju. Fyrstu viðbrögð hans voru að láta þetta gott heita og snúa bara heim til Íslands. „Jæja, Ásdís mín, sagði ég við frúna, þá er þessu lokið. Hér eftir dólum við okkur bara í Ölpunum og eitthvað svona,“ rifjar hann upp. Honum snerist þó fljótt hugur. „Ætla ég að guggna á þessu? spurði ég mig, eiginlega bara næsta dag, og missa af tækifærinu til að sjá öll þessi lönd í þessari framandi heimsálfu. Svarið var einfalt: Nei!“ Fullreynt var við Súdan, þannig að Kristján hjólaði 522 km til baka til Lúxor. Þaðan lét hann senda hjólið með bíl til Kaíró en flaug þangað sjálfur. „Þessa leið hafði ég hjólað á leiðinni suður til Súdan. Síðan var hjólið sent með fraktflugi til Addis Ababa í Eþíópíu og ég tók næturflugið. Ég hef einu sinni áður þurft að láta fljúga hjólinu yfir land vegna átaka, en það var yfir Pakistan á hringferðinni minni. Það fóru tíu dagar í þetta tilstand en ekki var um annað að ræða; þetta var eina leiðin til að halda áfram.“ Kristjáni hafði verið ráðlagt að sækja um vegabréfsáritun til Eþíópíu á netinu en þegar á reyndi lá þjónustan niðri. Þá fór hann í eþíóp- íska sendiráðið í Kairó en var sagt þar að hann gæti sótt um vegabréfsáritun við komuna til Addis Ababa. Þegar á hólminn var komið féll sú beiðni þó hreint ekki í frjóan jarðveg. „Mér var sagt á flugvellinum að þannig gengi þetta ekki fyrir sig. Ég yrði að snúa við til Kaíró til að sækja um áritunina. Það leist mér illa á og reyndi að malda í móinn; að ég væri kominn langt að og hefði farið að öllum reglum en netið hefði á hinn bóginn legið niðri hjá þeim. Í fyrstu hlustaði starfsmaðurinn ekkert á þetta en eftir tveggja klukkustunda þref gaf hann sig á endanum og hleypti mér inn í landið. Það var þvílíkur léttir,“ segir Kristján. Það reyndist þó skammgóður vermir en þennan sama morgunn hafði aðalhershöfðingi Eþíópíu verið myrtur af lífverði sínum sem heyrði til öðrum ættflokki og tilraun gerð til stjórnarbyltingar. Kristján náði hjólinu út en Kristján, Ásdís Rósa og Baldur við endamarkið - Cape Horn í Suður Afríku. 34.089 km að baki. Kristján með hermönn- unum sem gættu ferðalang- anna þegar gengið var á eld- fjallið Nyiragongo í Kongó. ’ Þetta var eins og að komaaldir aftur í tímann, svofrumstætt er lífið þarna. Þettafólk er alveg meðvitað um flatskjái, snjallsíma og annan lúxus í samtímanum en kýs bara að færa sér það ekki í nyt. Samt var ekki annað að sjá en að ham- ingja og gleði svifi yfir vötnum. 26.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.