Íþróttablaðið - 01.12.1998, Page 1
J
J
. t b / „ 5 8 . á r g a n g u r 13 3 8
gefið út af íþróttm- ag Ólympíusambandi íslands
J
f
afl gegn fíkniefnum
sína forvamarátakið Landstið
efnabaráttunni sitt iíðsínni. Af-
valið að virkja hana enn frekar
■
efnum. Markmið þessa verk-
sem íþróttahreyfingin er sem
jarc .
um
■
þeim vágesti sem fikniefni eru.
[ tengslum við þetta er hug-
■
verði boðið upp á námsefni þar
' ;..piýsim3s:
íþróttaiðkenda. i framtíðinm er
stðan ráðgert að halda ráð-
uðum landsins þar sem rædd- ý
verk íþróttahreyfingarinnar í
forvörnum og hvemig hægt sé
Sex af hverjum tíu iðkendum
innan íþrúttasamtakanna eru
börn og unglingar innan við
sextán ára aldur, sem segir okkur
að iþróttir eru uppeldi og að því
uppeldi þarf að standa af
nærgætnf þekkingu og veita því
gúða aðstöðu.
Skipulag íþróttamála
er enn til skoðunar
Sameining íþróttasámbands ís-
lands og Olympíunefndar Islands í
ein samtök fyrir liðlegu ári hefur
þegar skilað miklum árangri, að
sögn Stefáns Snæs Konráðssonar,
framkvæmdastjóra ISI, en skipu-
lagsbreytingum innan íþrótta-
hreyfingarinnar er ekki lokið með
þeirri sameiningu.
“Sameiningin hefur sýnt að
nauðsynlegt er að halda áfram að
skoða skipulagsmál hreyfingar-
innar og ekki er nóg að einblína á
toppinn. Við megum ekki gleyma
að hreyfingin samanstendur af
tugþúsundum félagsmanna og
iðkenda og 60% þeirra eru börn
og unglingar innan við sextán ára
aldur. Skipulagið þarf að mótast
með hliðsjón af þörfum þessa
æskufólks og breyttum aðstæðum
nútímans. Ekki fortíðinni eða
hentisemi þeirra sem eru í yfir-
stjórninni.
Þetta þýðir að okkar mati, að ef
íþróttafélögin eiga að sinna hlut-
verki sínu, þarf að breyta rekstrar-
umhverfi þeirra og þar eru menn
farnir að þróa sig áfram með
stofnun hlutafélaga um rekstur
einstakra deilda eða liða og þar
þarf að sameina félög eða krafta
þeirra. Þeirri þróun verður að taka
með opnum huga.
Nú liggja fyrir tillögur á Alþingi
um breytta kjördæmaskipan og
skipting íþróttahéraða mun óhjá-
kvæmilega taka mið af þeim
breytingum ef þær ná fram að
ganga.
Ég ligg heldur ekki á þeirri
skoðun minni að ISÍ og UMFÍ
þurfa að taka höndum saman og
helst að sameinast, vegna þess að
úrelt skipulag í yfirstjórn má ekki
koma í veg fyrir að íþróttahreyf-
ingin þjóni ungviðinu og hreyfing-
in má ekki daga uppi eins og
nátttröll með einhverjum kredd-
um eða gamaldags hugsunarhætti.
Það gengur ekki öllu lengur að
vera með eina hreyfingu en tvö
höfuð.
fþróttahreyfingin þarf á skil-
virku og einföldu skipulagi að
halda og hún þarf á peningum að
halda. Hún veltir samtals 3,2
milljörðum króna en stöðugt
vantar fjármagn og því verða
menn að vera opnir fyrir nýjum
leiðum.
Það eitt að ÍSÍ og UMFÍ samein-
uðust sparar hreyfingunni umtals-
verðar upphæðir, með vísan til
þess að hvort sambandið um sig
heldur úti tugmílljóna króna
rekstri”.
“Það hlýtur líka að vera eitt af
stóru verkefnum íþróttasamtak-
anna“, sagði Stefán, “ að opna sig
fyrir íþróttaiðkun almennings og
beina þeim áhuga öllum inn í okk-
ar verkahring, til viðbótar við
æskulýðs- og uppeldisstarfið og til
viðbótar við afreksstefnuna. Enda
er það vissulega einn megintil-
gangur skipulagðs íþróttastarfs,
að efla almenna líkamsrækt, fólki
til heilsubótar og vellíðunar”.
Sjá nánar á bls. 2
.