Íþróttablaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 6
Aldurínn skiptir ekki máli
Sameinuðu þjóðirnar tileinka öldruðum líðandi ár. Á morgun, föstudaginn
1. október, verður haldið upp á dag aldraðra með sérstakri dagskrá í
Borgarleikhúsinu, en laugardagurinn 2. október verður alþjóðlegur göngu-
dagur aldraðra að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna. Félag áhugafólks um
iþróttir aldraðra, FÁÍA, hefur ákveðið að taka þátt í göngudeginum, að sögn
Guðrúnar Nielsen, formanns félagsins. „Við ætlum að hittast við Ársel í
Glæsibæ og ganga um Laugardalinn," segir Guðrún, sem er 76 ára íþrótta-
kennari og hefur verið formaður FÁÍA frá upphafi en félagið var stofnað 13.
júní 1985. „Við vonumst til að ná til sem flestra gönguhópa og reynum að
fá lúðrasveit til að gefa tóninn og hita upp á planinu."
Að sögn Guðrúnar er markmið fé-
lagsins að vinna að vellíóan aldr-
aðra með iðkun leikfimi, sunds og
annarra íþrótta, stuðla að mennt-
un kennara og leiðbeinenda i
iþróttum fyrir aldraða og styðja
féLagana í starfi þeirra við aó út-
breiða íþróttir aLdraðra sem hafa
eflst mjög að undanförnu.
Guðrún segir að ákveðið hafi
verið að stofna félagið á sínum
tíma eftir kynni af starfi fyrir
aldraða í Danmörku. „Ég var í
orlofi ásamt fteiri íþróttakenn-
urum í Danmörku þar sem við
sóttum námskeið og kynntumst
svona féLagi. Við sáum strax að
þörf var á sliku félagi hérna
heima og höfum frá 1986 haldið
námskeið um íþróttir aldraðra
fyrir kennara og leiðbeinendur
annað hvert ár. Þessir kennarar
og leiðbeinendur eru samtaLs á
þriðja hundrað og hafa komið
frá 46 stöðum á Landinu."
Blómlegt starf
Starfsemi félagsins hefur verið
Það er auðvefdara að safna
upplýsingum en afla þekkingar
Fyrirtækið þitt er fullt af upplýsingum. Samt er eins
og enginn viti neitt þegar á þarf að halda. Upplýsingar eru
nefnilega einskis virði ef þú hefur ekki aðgang að þeim og getu
til að vinna úr þeim þekkingu.
Á hverjum degi tekur þú mikilvægar ákvarðanir sem varða afkomu
þ(ns fyrirtækis. Þitt starf er að vega og meta hvaða leikur sé réttur
í stöðunni hverju sinni. Ef þú lætur gabbast af ofgnótt óaðgengilegra
upplýsinga er hætt við að komi að skuldadögum fljótlega.
Réttar ákvarðanir eru byggðar á þekkingu og þekkingu á áreið-
anlegum uþplýsingum. Gagnahögun frá EJS kemur skipulagi
á þær upplýsingar sem fyrirtækið býr yfir og gerir
upplýsingaöflun í framtíðinni markvissa og skilvirka.
Þannig gerir gagnahögun þér kleift að safna þekkingu
fremur en eintómum upplýsingum.
Sérfræðingar QS veíta þér ráðgjöf um gagnahögun og úrvinnslu
upplýsinga. Hafðu samband.
EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfi + EJS hf. -í- 563 3000 4* www.ejs.is + Grensásvegi 10 108 Reykjavík
\
\
\
\
\
\
\
\
\
\
i
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
blómleg frá byrjun. „Við erum
sjö í stjórninni og þar á meðaL
Þorsteinn Einarsson, fyrrverandi
íþróttafulLtrúi ríkisins, sem hef-
ur unnið með okkur íþróttakenn-
urunum af miklum dugnaði frá
því félagið var stofnað. Maður-
inn er svo fróður og hefur mikLa
reynslu."
MikiL fjölbreytni er i starfinu
og er reynt að ná til sem flestra
en félagið er ölLum öldruðum
opið. „Árlega erum vió með
hefðbundinn íþróttadag á ösku-
daginn. Til að byrja með vorum
við úti á gervigrasveLlinum í
LaugardaL en síðan fLuttum við
okkur inn og höfum verið í
íþróttamiðstöðinni í Austurbergi
undanfarin ár. Þar koma fram
flokkar eLdri borgara frá féLags-
miðstöðvunum og víðar að og
sýna leikfimi, og dansa. ALLir sem
mæta koma út á gólf og taka
þátt í leikfimi og dönsum og
mikið er sungið en undanfarin
ár hafa um 700 manns tekið
þátt í þessari skemmtun árLega.
Á hverju sumri erum við með
svonefnda sæluviku á Laugar-
vatni þar sem Lögð er áhersLa á
íþróttir - göngur, sund, Leik-
fimi, leiki, söng og dans.
Tvisvar á ári, vor og haust,
höldum við mót i boccia, þar
sem keppt er um farandbikara.
Sama gildir um pútt, og auk
þess höfum við verið með rat-
Leik í gróðrarstöðinni i Laugar-
dalnum. Síðan erum við með
sunddaga og í fyrra byrjuðum
við með göngudag."
Auknir möguleikar
í Laugardalshöll
Ekki fer mikið fyrir þessum hópi
en starfið segir sina sögu. „Mik-
ið starf Liggur þarna á bak við.
Borg og ríki hafa styrkt okkur
en annars er alLt unnið i sjálf-
boðavinnu og við erum fólk sem
fer veL með. Fyrr á árinu fengum
við BLáa saLinn, nýju viðbygg-
inguna við LaugardalshöLl, til
afnota. Við kölLuðum tiL kynn-
ingar þar sem um 150 manns
mættu. Vorum með Leikfimi og
kynntum ýmsa leiki en leikfimin
hjá Höskuldi Goða KarLssyni var
vinsæLust, aLlt upp í 80 manns
mættu í tíma hjá honum. Nú er
hann farinn norður og við erum
aó reyna að fá annan kennara en
vió höfum fengið vilyrði fyrir
því að fá salinn aftur. Við aug-
lýsum þetta þegar að því kemur
en hugmyndin er að vera með
Leikfimi fram til áramóta og sjá
þá hvernig gengur, hvort grund-
vöLLur er fyrir því að auka starf-
semina. Þar er hængur á því
HölLin er leigð út og þegar við
vorum með tímana misstum við
marga tíma, meðal annars einu
sinni háLfan mánuð út í einu.
Það er ákafLega sLæmt því starf-
ið dettur alveg niður. Hins vegar
6