Íþróttablaðið - 01.12.1999, Blaðsíða 20
1 s
Sendum íþrótta- og
Olympíusambandi
s
Islands, íþróttafólki,
landsmönnum og
viðskiptavinum bestu
-*• jóla- og nýárskveðjur.
Könnun PricewaterhouseCoopers á íþróttaiðkun og líkamsrækt
Marktækur meirihluti stundar líkamsrækt
Marktækur meirihluti þjóðarinnar -
rúm 55% allra landsmanna frá 15
til 75 ára - stundar iþróttir eða Lík-
amsrækt reglulega og konur hafa til-
hneigingu til að stunda likamsrækt
frekar en karlar. Þetta kom fram i könn-
un PricewaterhouseCoopers á íþrótta-
iðkun og likamsrækt dagana 25. októ-
ber til 9. nóvember i haust. Úrtakið var
1.200 manna slembiúrtak úr þjóðskrá
og var nettósvarhlutfall um 61%.
í könnuninni kom fram að 55,1 %
þeirra sem tók afstöðu stundaði íþróttir
eða líkamsrækt reglulega. Af körlum
stunduðu 52,8% líkamsrækt regluLega
en 57,1% kvenna. 61,5% á aLdrinum 15
til 29 ára stunduðu íþróttir, 53,8% á
aldrinum 30 til 49 ára og 48,8% á aldr-
inum 50 tiL 75 ára. Á höfuðborgarsvæð-
inu stunduðu 56,5% líkamsrækt en
52,8% á Landsbyggðinni.
Þeir sem sögðust stunda íþróttir eða
Líkamsrækt regLulega voru því næst
spurðir um nánari útskýringu. 25,3%
þeirra stunduðu þolfimi, 20,2% göngu-
ferðir, 19,6% tækjaþjálfun, 16,6%
sund, 11% fótbolta, 7,1% skokk og
4,8% körfubolta en aðrar greinar voru
golf, badminton, handbolti, hesta-
mennska, hjólreiðar, skíði, lengri
gönguferðir og fjallgöngur, bLak og
annað.
í könnuninni kom fram að rúm 57%
þeirra sem tóku afstöðu og stunda
íþróttir eða Líkamsrækt æfa þrisvar til
fimm sinnum í viku, en 23,5% einu
sinni til tvisvar vikulega. Ennfremur
Leiddi könnunin í Ljós að rúm 50%
þeirra sem stunda líkamsrækt reglulega
eru með kort eða aðgang að heilsu- eða
líkamsræktarstöð.
HsMusjó«mm
f KEFLAVÍK
Orkuveita
Reykjavíkur
Þú getur gert tvennt:
Annaðhvort tekið ofan hattinn fyrir þeim sem spila í leikjum
íslenskrar getspár því að þeir leggja sitt af mörkum til
æskulýðs- og íþróttastarfs og málefna öryrkja
eða spilað sjálf/ur - einfaldlega vegna þess að það er mjög
skemmtilegt og allir njóta góðs af (jafnvel þeir sem vinna ekki).
MTTC
Til mikils að vinna!
Ágóði fslenskrar getspár rennur til:
fþrótta- og ólympíusambands fslands,
Öryrkjabandalags íslands,
Ungmennafélags fslands.
__________________________________________________
20