Fréttablaðið - 05.09.2020, Page 79

Fréttablaðið - 05.09.2020, Page 79
Við rekum líka sendibíl sem er á fullu allan daginn, nú er hann í búslóðaflutningum úti í bæ. Okkar ástkæri Baldur J. Guðmundsson Bólstaðarhlíð 41, (áður Álftamýri 4) í Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 1. september. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður I. Baldursdóttir Karl S. Sigurðsson Guðmundur H. Baldursson Harpa Gunnarsdóttir Sævar B. Baldursson Sigríður O. Marinósdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts og útfarar móður okkar, ömmu og langömmu, Önnu Jónasdóttur Lillu Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Jaðars í Ólafsvík. Garðar Rafnsson Guðrún Pétursdóttir Lydia Rafnsdóttir Hjálmar Kristjánsson Svanur Rafnsson Gabriela Morales ömmubörn og langömmubörn. Okkar ástkæra dóttir, systir og frænka, Hildur Jónsdóttir lést á krabbameinsdeild Landspítalans 15. apríl 2020. Minningarathöfn fer fram í Lindakirkju 8. september kl. 11. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða fjöldatakmarkanir í kirkjunni. Jón Jónsson Valdimar Jónsson Sverrir Helgi Jónsson Ásta Hjördís, Jón Ágúst, Sölvi Mar Jón Þröstur, Elísa, Emil og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og kærleik vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Sigurðar Guðbergs Helgasonar frá Þorlákshöfn, Sigga Helga frá Seli. Sérstakar þakkir til starfsfólks Áss í Hveragerði fyrir góða umönnun. Ragna Erlendsdóttir Linda Björg Sigurðardóttir Vilhelm Á. Björnsson Guðlaug Sigurðardóttir Björgvin Jón Bjarnason Jónas Sigurðsson Áslaug Hanna og fjölskyldur. Systir okkar, mágkona og frænka, Guðbjörg Stefanía Andrésdóttir Borgarbraut 65, lést í Brákarhlíð miðvikudaginn 2. september 2020. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 10. september kl. 14.00. Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin eingöngu fyrir boðsgesti en henni verður streymt á www.kvikborg.is Ragnhildur Andrésdóttir Ölver Benjamínsson Bragi Andrésson Júlíanna María Nielsen Jóhann Óskar Sigurðsson Friðbjörg Óskarsdóttir og systkinabörn. Elsku eiginmaður minn, faðir, afi, bróðir og sonur, Milvin Vidal Olaer (Dandan) Hnoðravöllum 44, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans þann 9. ágúst 2020. Útförin hefur farið fram í Landakotskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning barna hans. Reikningsnúmer 0545-14-003713, kt. 050675-2039. Anabelle Valle Aron Valle Adrian Valle Magnús Valle Pamell Cabusor Olaer Lorna Vidal Olaer Danillo Orcullo Olaer Mark Vidal Olaer Ainaflor Olaer Herbert Olaer Govanie Olaer Francis Nhyl Jun Elskuleg móðir okkar, Guðrún Margot Ólafsdóttir lést sunnudaginn 30. ágúst á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund. Útför hennar fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. september kl. 13.00. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánir ættingjar og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt í gegnum Facebook: Útför – Guðrún Margot Ólafsdóttir. Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug. Egill Helgason Halla Helgadóttir og fjölskyldur. Við erum með þróttmikið starf. Unglingarnir koma til okkar frá Félagsþjón-ustu og Vinnumálastofn-un og við erum með tutt-ugu og einn á skrá núna, bæði í námi og starfi,“ segir Þorvarður Guðmundsson, kallaður Þorri. Hann er forstöðumaður Fjölsmiðjunnar á Suður- nesjum, sem grundvölluð var fyrir tíu árum og hóf starfsemi í mars 2011. Þorri hefur stýrt Fjölsmiðjunni í sex ár og segir um fjölbreytt verkefni að ræða þar. „Við erum með nytjamarkað sem heitir Kompan, tókum hann í gegn fyrir stuttu og salan sér okkur fyrir rekstrarfé. Opnuðum líka hjólaverk- stæði í sumar og erum að setja af stað saumaverkefni í samstarfi við Rauða krossinn. Þannig erum við að bregðast við atvinnuástandinu. Því miður erum við nefnilega ekki að útskrifa fólk til vinnu annars staðar núna, eins og við höfum gert gegnum árin. Við leggjum líka áherslu á að unga fólkið sé í námi, ýmist í Fjölbrautaskólanum eða á vegum Miðstöðvar símenntunar, auk þess sem skjólstæðingar okkar sækja ýmis nám- skeið. Þetta er virkniúrræði, við reynum að hafa verkefni við hæfi fyrir hvern og einn og þannig stuðla að því að allir séu á réttri leið fram á við.“ Vinnuframlag unga fólksins felst meðal annars í að sinna nytjamarkað- inum og hjólaviðgerðum, að sögn Þor- valdar. Einnig að gera upp gömul hús- gögn, fara yfir raftæki og afeinangra víra. „Svo rekum við eldhús þar sem framreiddur er bæði morgunmatur og hádegismatur fyrir þá sem hér eru. Ég er að stýra eldhúsinu núna á sama tíma og ég er að tala við þig! Við rekum líka sendibíl sem er á fullu allan daginn, nú er hann í búslóðaflutningum úti í bæ,“ lýsir hann. Húsakynni Fjölsmiðjunnar eru að Smiðjuvöllum 5. Þorri segir fólk stoppa þar misjafnlega lengi. „Þetta er ekki eilífðarstoppistöð, heldur ýtum við fólki áfram þegar það er hægt. Á fyrstu árunum fengum við fólk sem hafði ekki verið í virkni lengi, þá tekur meiri tíma að komast í gírinn, en nú er meðaltím- inn hjá okkur svona 16 til 18 mánuðir. Mætingarskylda? Já, það er lykilatriði að ungmennin fái borgað fyrir sína vinnu og þau sem eru í skóla eru atvinnunáms- menn og fá hér aðstoð við heimanám, eftir þörfum.“ gun@frettabladid.is Rétta leiðin fram á við Stofnað var til Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum 7. september 2010. Markmiðið var að hjálpa ungu fólki á aldrinum 16 til 24 ára að auka möguleika sína í atvinnu og námi. „Við reynum að hafa verkefni við hæfi hvers og eins,“ segir Þorvarður, forstöðumaður Fjölsmiðju Suðurnesja. Á reiðhjólaverkstæði Fjölsmiðjunnar geta handlagnir haft nóg fyrir stafni. Nytjamarkaðurinn Kompan er nýtekin í gegn og þar er margt fallegt að finna. T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 39L A U G A R D A G U R 5 . S E P T E M B E R 2 0 2 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.