Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Síða 6
6 FRÉTTIR 11. SEPTEMBER 2020 DV
U m þessar mundir er rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur þar sem tveir menn,
þeir Matthías Jón Karlsson
og Vygantas Visinskis, eru
ákærðir fyrir aðild að stór-
felldu fíkniefnalagabroti. Þeir
félagar eru sagðir hafa fram-
leitt amfetamín úr svoköll-
uðum amfetamínbasa, sem
mikið hefur verið til umfjöll-
unar í fréttum undanfarið.
Amfetamínbasi er sterk
formúla amfetamíns, sem flutt
er inn erlendis frá í vökva-
formi. Úr litlu magni amfeta-
mínbasa má vinna talsvert
magn af amfetamíni, sem er
svo þynnt út áður en það er selt
á götunni.
Magnið sem þeir Matthías
og Vygantas eru sagðir hafa
framleitt er 11.217 grömm.
Þar af höfðu 3.936 grömm af
efninu um 20% styrkleika,
og restin, 7.261 grömm um
6-9% styrkleika, samkvæmt
ákærunni sem DV hefur undir
höndum.
Eru tvímenningarnir
ákærðir fyrir framleiðslu
á fíkniefnum, en í því sama
ákvæði er lagt bann við sölu
og dreifingu fíkniefna.
Sami refsirammi
en ólíkar refsingar
Ljóst er af lestri ákvæðisins,
að löggjafinn hefur lagt al-
varleika þess að flytja inn
efni og að framleiða þau að
jöfnu, og falla þessi tvö brot í
sama refsirammann. Engu að
síður er af dómaframkvæmd
undanfarin ár ekki hægt að
ráða annað en að mun þyngri
dómar falli í málum sem
tengjast framleiðslu, en þeim
sem tengjast innflutningi efna
eða sölu þeirra innanlands. Í
fyrsta dóminum vegna fram-
leiðslu amfetamíns hér á
landi, frá árinu 2009, sagði
reyndar berum orðum að
meta bæri alvarleika fram-
leiðslu meiri en smygls.
Mörgum hefur jafnframt
þótt það skjóta skökku við að
umbreyting amfetamínbasa
yfir í amfetamínnítrat, eða
amfetamín í duftformi, geti
talist framleiðsla. Benda lög-
menn mannanna, Guðni Jósep
Einarsson og Þorgils Þorgils-
son, á að þarna sé einfaldlega
verið að breyta amfetamíni í
amfetamín. Það geti varla tal-
ist vera framleiðsla, enda efn-
ið þegar fullframleitt amfeta-
mín í basaformi. Á þetta benda
lögmenn þeirra Matthíasar og
Vygantas meðal annars í yfir-
standandi réttarhöldum.
Amfetamín er ekki
bara amfetamín
Lögmennirnir ganga raun
enn lengra og benda á að
taka verði tillit til styrkleika
efnanna. Ef eitt kíló af 100%
hreinu amfetamíni er þynnt
með kílói af íblöndunarefnum,
sem í langflestum tilfellum
séu lögleg efni í duftformi, til
dæmis kreatín eða mjólkur-
sykur, fáist tvö kíló. Engu
TEKIST Á UM AMFETAMÍN Í
RÉTTARSÖLUM HÉRAÐSDÓMS
Dómar fyrir amfetamínframleiðslu eru fáir á Íslandi en nema sam-
anlagt mörgum áratugum. Nú er skoðað hvað framleiðsla felur í sér.
Niðurstaðan gæti skekkt grundvöll margra þungra fangelsisdóma.
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Lögmennirnir
Guðni Jósep
Einarsson
og Þorgils
Þorgilsson á
lögmannsstof-
unni Juvo láta
lítið fyrir sér
fara, en hafa á
undanförnum
árum tekið
að sér mörg
af stærstu
sakamálum
landsins.
Saman standa
þeir að kröfu
um sérfræði-
mat á því hvað
amfetamín-
framleiðsla
er, í máli sem
nú fer fram í
Héraðsdómi
Reykjavíkur.
MYND/SAMSETT
að síður er um sama magn
virka og ólöglega efnisins að
ræða þó þyngri dóms væri að
vænta fyrir tvö kílóin en það
eina hreina.
Ef reiknað er út magn
hreins amfetamíns sem þeir
Matthías og Vygantas voru
að sýsla með, fæst út að þeir
hafi „aðeins“ verið með um
1.330 grömm. Rök lögmann-
anna snúa þannig að því að
munur sé á 1,3 kílóum og
11,2. Raunar eru til fordæmi
fyrir notkun útreikninga af
þessu tagi í íslenskum lögum.
Til dæmis er áfengisskattur
reiknaður af hverjum cl. af
„hreinum vínanda.“
Lögmenn þeirra Matthíasar
og Vygantas láta nú reyna á
þessi atriði fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur. Í þar síðustu viku
úrskurðaði dómari að kallaður
skyldi til sérfræðingur í efna-
fræði og að hann skyldi leggja
fram mat sitt á því hvort um-
breyting basans í duft sé fram-
leiðsla eða ekki. Verður það í
fyrsta skipti sem það fæst
staðfest af sérfræðingi fyrir
íslenskum dómstól. Þetta þykir
sérstaklega áhugavert í ljósi
þess að bara á þessu ári hafa
þegar fallið þungir dómar fyr-
ir einmitt þennan glæp. Í júní
dæmdi Landsréttur þrjá menn
í samtals 16 ára fangelsi fyrir
að hafa breytt amfetamínbasa
í duftform í sumarbústað í
Borgarfirði.
Hikandi Hæstiréttur
og skökk fordæmi
Í Borgarfjarðarmálinu reynir
reyndar á fleiri atriði og hef-
ur einn mannanna sótt um
áfrýjunarleyfi til Hæstarétt-
ar. Hæstiréttur hefur hingað
til virst veigra sér við að taka
sakamál til skoðunar. Hér ber
þó að taka fram að í vikunni
veitti Hæstiréttur áfrýjunar-
leyfi í sakamáli Þórhalls Guð-
mundssonar, sem oftast er
kallaður Þórhallur miðill.
Í áfrýjunarleyfisbeiðninni
sem DV hefur undir höndum
er fjallað um rök fyrir veit-
ingu áfrýjunarleyfisins. Er
þar nefnt að dómurinn yfir
Borgarfjarðarþremenning-
unum sé aðeins annar dómur-
inn sem fellur um framleiðslu
amfetamíns á Íslandi og að
hann hafi byggt, skv. niður-
stöðukafla dómsins, að miklu
leyti á fordæmi frá þeim
fyrsta. Þar var þó um fram-
leiðslu amfetamíns frá grunni
að ræða og málin því, að sögn
lögmanns, ekki samanburðar-
hæf. Segir í áfrýjunarleyfis-
beiðninni að þessi dómur, sem
Héraðsdómur kallar fordæm-
isgefandi, hafi takmarkað for-
dæmisgildi „sama hvað gildi
fyrrgreindan héraðsdóm.“
Enn fremur segir þar: „Rétt-
urinn þarf að taka afstöðu til
þess hvort ákvæði sem slíkt
geti staðið undir mismunandi
refsingum vegna brota sem
öll heyra undir ákvæðið.“ Er
þar vísað til þess hvort rétt-
mætt sé að refsa meira fyrir
framleiðslu en sölu.
Áratugalangir dómar undir
Staðan nú er því sú að tvö stór,
veigamikil og fordæmisgef-
andi mál, eru nú á leið sinni í
gegnum réttarkerfið. Fyrst
mál Matthíasar og Vygant-
asar þar sem kallaður verður
til efnafræðingur og þeirri
spurningu svarað hvort hægt
sé að framleiða amfetamín
úr amfetamínbasa, eða hvort
um umbreytingu sé að ræða.
Annað er mál borgfirsku þre-
menninganna, sem nú bíður
niðurstöðu Hæstaréttar um
hvort rétturinn muni taka það
fyrir.
Niðurstöður þessa tveggja
mála gætu haft veigamikil
áhrif á líf þeirra níu einstakl-
inga sem hlotið hafa samtals
38 ára fangelsisdóma vegna
amfetamínframleiðslu á síð-
astliðnu ári auk Matthíasar
og Vygantas, sem nú bíða síns
dóms. n
Benda lögmenn mannanna á að
þarna sé verið að breyta amfeta-
míni í amfetamín.