Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Síða 8
ÓVENJUMÖRG MORÐMÁL Í EINU
Þrjú morðmál eru nú til meðferðar í íslenskum dómsölum og það fjórða er í rannsókn.
Fórnarlömbin eru sex í málunum fjórum en tvö málanna eru meint heimilisofbeldi.
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
DV sagði frá því í vikunni að Arturas Leimontas hefði verið
ákærður fyrir morð og að
málinu hefði verið þinglýst
í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ákæran yfir honum var birt
honum í júní á þessu ári, en
var fyrst birt opinberlega í
liðinni viku. Arturas er fimm
tugur Lithái og sá látni 57 ára
gamall landi hans. Í ákærunni
á hendur Arturasi kemur fram
að hann hafi, 8. desember síð
astliðinn, að Skyggnisbraut
í Úlfarsársdal í Reykjavík,
slegið landa sinn ítrekað og
sparkað í hann. Samkvæmt
ákærunni hefur Arturas not
að þungt áhald í árásinni og í
kjölfarið kastað honum fram
af svölunum. Fallið niður var
um 7 metrar á steypta stétt og
lést fórnarlambið af áverkum
sínum. Mál Arturasar er eitt
þriggja morðmála sem er nú
til meðferðar í dómsölum
landsins.
Óhugnanleg mál
í samkomubanni
Í júní var karlmaður á sex
tugsaldri ákærður fyrir að
bana sambýliskonu sinni í
Sandgerði í lok mars. Málið
vakti mikinn óhug enda var
maðurinn ekki handtekinn
fyrr en fjórum dögum eftir
að tilkynnt var um andlát
sambýliskonu hans. Maður
inn var dæmdur í gæsluvarð
hald. Konan lést 28. mars og
fór lögreglumaður á staðinn
eins og venja er. Í fyrstu benti
ekkert til þess að nokkuð sak
næmt hefði átt sér stað, og
staðfesti líkskoðun þá stað
hæfingu lögreglumannsins.
Það var ekki fyrr en 1. apríl, í
kjölfar skoðunar réttarmeina
fræðings, að grunur vaknaði
um að maðurinn hefði átt þátt
í andláti konunnar en skoðun
réttarmeinafræðings leiddi í
ljós áverka á hálsi hennar. Það
mál er nú rekið í Héraðsdómi
Reykjaness.
Maður á þrítugsaldri er
svo ákærður fyrir að hafa
banað móður sinni í Hafnar
firði í byrjun apríl. Málinu
var þinglýst í byrjun júlí. Er
maðurinn í ákærunni sagður
hafa stungið móður sína í tví
gang með hnífi. Í kjölfarið
réðst hann að öðrum manni,
skar hann í andlit og stakk í
handlegg. Í sömu ákæru er
ofsaakstur mannsins fyrir
tveimur árum tekinn fyrir.
Er hann þar sagður hafa ekið
á 197 km hraða, með þrettán
lögreglubíla á eftir sér.
Málin í Sandgerði og Hafn
arfirði þóttu sérstaklega
óhugnanleg enda komu þau
bæði upp í miðju samkomu
banni og hafði þá umræða um
aukna hættu á heimilisofbeldi
skapast vegna þjóðfélags
aðstæðnanna.
Bræðraborgarstígsmálið
Þann 25. júní barst lögreglu
og slökkviliði tilkynning um
bruna í íbúðarhúsi við Bræðra
borgarstíg 1 á horni Vestur
götu. Þrír létust í brunanum,
einn lést við að stökkva út um
glugga en hinir tveir inni í
alelda húsinu. Nánast á sama
tíma og fyrstu viðbragðsaðilar
voru að mæta vegna brunans,
var maður handtekinn við
rússneska sendiráðið, þar sem
hann lét ófriðlega. Sá maður
var daginn eftir úrskurðaður
í gæsluvarðhald þar sem hann
situr enn. Ennþá hefur ákæra
ekki verið gefin út, en áður
hefur komið fram að grunur
leikur á að hann hafi hellt
bensíni á gólf jarðhæðar húss
ins og lagt eld að. Þeir látnu
voru allir pólskir ríkisborg
arar.
Málin óvenjumörg
Að þrjú morðmál séu í gangi
í dómskerfinu og enn eitt í
rannsókn, er mjög óvenju
legt á Íslandi. Hér á landi
eru að meðaltali um tvö morð
framin á ári og árin 1998,
2003, 2006 og 2008 voru
engin morð framin. Fórnar
lömbin í málunum fjórum sem
nú eru til meðferðar eru sex
talsins. Þrír Pólverjar, tveir
Íslendingar og einn Lithái.
Langalgengast er að þeir sem
fundnir eru sekir um morð
hljóti 16 ára dóm, þó dæmi
séu um annað. Þannig hlaut
til að mynda morðingi Birnu
Brjánsdóttur 19 ára fangelsis
dóm fyrir morðið á Birnu og
alvarlegt fíkniefnabrot sem
kom upp við morðrannsókn
ina.
Ef gengið er út frá því að
mennirnir fjórir sem sæta nú
ýmist morðákæru eða rann
sókn fái allir 16 ára fangelsis
dóm og reynslulausn á eðli
legum tíma, má gera ráð fyrir
að þeir muni dvelja samanlagt
í 42 ár í fangelsum landsins. n
Sex eru látnir í fjórum morðmálum. Málin vekja mikinn óhug. MYND/EYÞÓR
Hryllingur
blasti við 25.
júní á Bræðra-
borgarstíg þar
sem þrír létust
í húsbruna.
MYND/SIGTRYGG-
UR ARI
Hér á landi
eru að
meðal tali
um tvö morð
framin á ári.
8 FRÉTTIR 4. SEPTEMBER 2020 DV