Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Side 12
Verndandi þættir
Aðstoð við foreldra sem hafa
misst ung börn og konur sem
hafa þurft að fæða andvana
börn, er hluti af starfi Vigfús
ar. „Þessar mæður hafa fund
ið fyrir börnunum sínum í
marga mánuði og tengst þeim
í gegnum líkamleg viðbrögð.
Oft eru þær orðnar mjög
tengdar þessum einstaklingi,
sem strax fyrir fæðinguna
var orðinn risastór áhrifa
þáttur tilhlökkunar og gleði,
en hverfur síðan á braut. Þetta
er gríðarlega flókin reynsla
fyrir fólk. Þarna skiptir miklu
máli að virða reynsluheim
konunnar en um leið hjálpa
sambúðarfólki að vera saman
í sorginni.“
Sorgarvinna með fjölskyld
um er Vigfúsi mikilvæg og
hefur hann unnið mikið við það
í gegnum tíðina að hjálpa fólki
að skapa getu til að tala saman,
þrátt fyrir allt. „Það er vinna
sem skilar oft mjög miklum
árangri, og hjálpar hjónum að
skilja og skynja hvort annað.
Þeim fjölskyldum gengur lang
best sem ekki stunda hugsana
lestur. Það er ákveðin áfalla
vinna að kenna fólki að reyna
ekki að lesa hugsanir heldur
efla getuna til að tjá sig og
spyrja spurninga.“
Fæstum dylst að starf
sjúkrahússprests er afar
krefjandi. Hann viðurkennir
að hafa stundum hugsað að
þetta sé bara komið gott. „Jú,
jú. Mér finnst samt ekki að
neinn eigi að fá sérstakt hól
fyrir að sinna starfinu sínu.
Starf sem þetta er líka þess
eðlis að það hefur að geyma
verndandi þátt, því hægt er að
upplifa mikla gagnsemi. Sam
skiptin eru yfirleitt jákvæð
og í þeim er ákveðin mildi
sem einnig er verndandi. Það
sem er erfiðast við að yfir
gefa svona störf er að maður
getur fundið fyrir tilgangs
leysi í öðrum störfum. Það er
þó ekki rétt sýn, enda öll störf
jafn mikilvæg og tilgangsrík.
En þegar maður er vanur því
að vera í krefjandi og ögrandi
aðstæðum getur verið erfitt
að fara úr þeim.
Eitt af því sem verndar fólk
í svona störfum er að maður
sér oft svo mikinn árangur.
Ég hef séð fólk vinna í sínum
málum, rísa upp og ná tökum
á sínu lífi. Ég finn þá fyrir svo
mikilli virðingu fyrir fólki og
starfið hefur fært mér aukna
trú á mannkynið. Allir eru að
gera sitt besta. Ég held satt
að segja að mörg önnur störf
séu miklu erfiðari. Hér get ég
horft á fólk öðlast ný gildi og
nýjan styrk, upplifa að það sé
lifandi þrátt fyrir allt.“
Endurnærandi að kenna
Þá er afar mismunandi að
koma heim eftir vinnudaginn.
„Margt fylgir manni að sjálf
sögðu og maður nær ekki að
sleppa hugsuninni. Það er
mikilvægt að varðveita ákveð
in skil milli heimilis og vinnu.
Ég er þó viss um að ég hef lagt
mikið á mína fjölskyldu út af
vinnunni, en ég reyni að gera
eins lítið af því og ég get. Ég
vil ekki að heimilislífið litist
af því sem ég var að sjá eða
upplifa. Það væri ósanngjarnt
gagnvart fjölskyldunni. Stund
um er gott að tala við einhvern
áður en maður fer heim, en
stundum hefur maður ekki
þörf fyrir það.“
Auk þess að starfa á Land
spítalanum hefur Vigfús síð
ustu þrjú ár kennt sálgæslu
hjá Endurmenntun Háskóla Ís
lands. Þetta er diplómanám á
meistarastigi sem hann kennir
ásamt séra Gunnari Rúnari
Matthíassyni og fjölda gesta
kennara. „Mér finnst þetta
afskaplega skemmtilegt og
endurnærandi. Í námið kemur
fólk úr ýmsum áttum: heil
brigðisstarfsfólk, starfsmenn
kirkjunnar og félagslega kerf
isins. Við kennum bæði út frá
fræðum um sorgarkenningar
en höfum einnig verið með
verklega kennslu. Þá búum við
til aðstæður þar sem fólk get
ur æft sig í að taka erfið sam
töl. Fólk er oft feimið í byrjun
en það er alveg magnað að sjá
fólk eflast í svona hlutverka
leik.“
Vigfús er ekki nema 46
ára gamall, ánægður með
þá reynslu sem hann hefur
öðlast, og nóg eftir. „Það er
gott að eldast. Margt hefur
komið á óvart í lífinu. Þetta
er ferðalag sem geymir fullt
af tækifærum. Mér finnst
gott að gefa mér tíma í að efla
þá hluti sem hafa góð áhrif á
mig. Ég hef verið drjúgur við
að efla tenginguna við nátt
úruna, var duglegur að hreyfa
mig en þarf að verða virkari á
því sviði aftur. Mér finnst gott
að lesa og ég þarf að eiga mitt
andlega líf. Þá gengur mér
betur, ég er rólegri og æðru
lausari. Síðan finnst mér fólk
yfirleitt skemmtilegt. Það er
alltaf kostur.“ Hann nær síðan
ágætlega utan um eðli starfs
ins þegar hann segir á léttu
nótunum: „Ég vildi bara óska
að fólk þyrfti aldrei að kynn
ast mér.“ n
12 FRÉTTIR 11. SEPTEMBER 2020 DV
Vigfús Bjarni
er þriggja
barna faðir en
labradortíkin
Salka er líka
stór hluti af
fjölskyldunni.
MYND/ANTON
BRINK
Það er ákveðin
áfallavinna að
kenna fólki að
reyna ekki að
lesa hugsanir.