Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Page 14
ins úr 9 í 128 milljónir króna.
Nine Kids eru stórtæk í sölu
barnabílstóla. Fyrirtækið er í
eigu Sigríðar Rúnar Siggeirs-
dóttur og Helgu Sigurðar-
dóttur. Hagnaður þess nam
rúmri milljón á árinu.
Ólavía og Óliver hefur rekið
sína verslun í Glæsibæ síðan
1995 og er í eigu Breks ehf.,
sem er alfarið í eigu Þór-
unnar Ólafar Sigurðardóttur.
Af rekstrarreikningi Ólavíu
og Ólivers að dæma, virðist
fyrirtækið hafa misst spón
úr aski sínum yfir til sam-
keppnisaðilanna á árinu, því
tekjurnar drógust saman um
13 milljónir á árinu.
Minimo stendur
höllum fæti
Fatura ehf., sem rekur versl-
unina Minimo hélt áfram að
skila tapi á árinu. Tap ársins
2018 var rúmar fjórar millj-
ónir og jókst í rúmar fimm í
fyrra. Þó tvöfaldaðist veltan
úr sjö í fjórtán milljónir og er
eigið fé þeirra neikvætt um
13 milljónir. Skuldir félagsins
jukust um 11 milljónir á árinu
en eignir aðeins um sex millj-
ónir. Athygli vekur að aðeins
er einn skráður starfsmaður
hjá versluninni í 70% starfi
samkvæmt ársreikningi.
Barnaloppan og Bíumbíum
á grænni grein
Barnaloppan í Skeifunni sér-
hæfir sig í sölu notaðra barna-
fata, en þar geta foreldrar
leigt bása og selt notuð barna-
föt á sínu verði. Barnaloppan
þjónustar svo viðskiptavini
sína með starfsfólki sem sér
um eiginlega sölu, en fyrir-
tækið þykir einnig skila já-
kvæðum samfélagslegum
ávinningi með því að hvetja til
ábyrgrar endursölu á barna-
vörum. Fyrirtækið er í eigu
Guðríðar Gunnlaugsdóttur.
Tekjur af sölu stórjukust á
liðnu ári og námu heilum
73 milljónum króna í fyrra.
Hagnaðurinn nam rúmri
þremur og hálfri milljón og
jukust enn fremur eignir fé-
lagsins um á fjórðu milljón.
Eigendur Barnaloppunnar
opnuðu Extra-loppuna sumar-
ið 2019, sem er byggð á sömu
hugmyndafræði nema á fatn-
aði og vörum fyrir fullorðið
fólk. Merkjavörur eru þar vin-
sælar og hefur fjöldi þekktra
einstaklinga selt merkjavöru-
safn sitt í Extra-loppunni.
Bíumbíum skilaði vel á ár-
inu. Tekjur félagsins jukust
um 34 milljónir á milli ára og
námu í fyrra 139 milljónum.
Hagnaður nam tíu og hálfri
milljón. Bíumbíum er með
verslun í Síðumúla. Eignir
félagsins námu í lok síðasta
árs um 45 milljónum. Vó þar
þyngst vörubirgðaliður, sem
nam rúmum 43 milljónum.
Samanlögð 700
milljóna velta
Samanlögð velta þessara fyr-
irtækja, sem öll eiga það sam-
merkt að sérhæfa sig í sölu
barnavara og -fatnaðar, nemur
rúmum 700 milljónum. Mest-
ur var hagnaður bíumbíum og
Petit ehf. Petit var jafnframt
langtum stærsta verslunin,
með nánast tvöfalt hærri veltu
en næsta verslun.
Þessi velgengni fyrirtækj-
anna er sérstaklega áhuga-
verð í ljósi áðurnefndrar
ferða- og kaupgleði Íslend-
inga erlendis og að H&M og
Lindex eiga engu að síður
stóran hluta af barnafata-
markaðnum. Það vekur enn
fremur athygli að eigendur og
rekstraraðilar margra þess-
ara verslana er ungt fólk á
barneignaaldri. Anna Linnea
hjá Petit verður til að mynda
33 ára á næsta ári og konurn-
ar á bak við Nine Kids eru 34
og 35 ára. Guðríður í Barna-
loppunni er líka 35 ára. n
14 FRÉTTIR 11. SEPTEMBER 2020 DV
700 MILLJÓNA KRÓNA VELTA
UNGAR KONUR GERA ÞAÐ GOTT
MEÐ BARNAFATAVERSLUNUM
Rífandi gangur virðist vera í rekstri barnafataverslana, en þeim hefur fjölgað talsvert
og velta þeirra aukist mjög. DV hefur undir höndum ársreikninga fjölda þeirra og ljóst
að um er að ræða risamarkað, enda hleypur samanlagður rekstur þeirra á milljörðum.
E kki er langt síðan Ís-lendingar flykktust er-lendis í verslunarferðir
og voru barnaföt stór hluti
góssins sem dregið var upp
úr smekkfullum ferðatöskum
erlendis frá. Síðan þá hefur
þeim fjölgað hér og verslanir
eins og H&M og Lindex opnað
hér á landi. Mikil sala hefur
verið í barnafatnaði innan-
lands og má sem dæmi nefna
að mikill vöruskortur hefur
verið hjá H&M hérlendis og
þá sérstaklega í barnafatnaði
í útibúi verslunarinnar í mið-
borginni. Hillur H&M hafa
verið hálftómar svo mánuðum
skiptir og segja starfsmenn
mikla kergju vera í viðskipta-
vinum vegna vöruskorts.
Ekki er lengur eins hag-
stætt að versla barnafatnað
erlendis sé verið að panta
hann í gegnum vefsíður, þar
sem heimsendingarkostnaður
og tollur bætist ofan á verðið
og er í ríkara mæli þá um
sambærilegt verð og í versl-
unum að ræða. Hátt gengi
krónunnar spilar þar einnig
stórt hlutverk.
Kvartmilljarða
velta hjá Petit ehf.
DV skoðaði ársreikninga
barnafataverslana fyrir árið
2019 og kom þar ýmislegt
áhugavert í ljós. Til dæmis
tvöfaldaði Petit ehf., sem
rekur verslunina Petit í Ár-
múla, sölu sína frá árinu
áður og námu þær í fyrra
258 milljónum króna. Á sama
tíma jukust eignir félagsins
umfram skuldir um rúmar
7 milljónir og tekjurnar um
86 milljónir. Hagnaður Pe-
tit nam á síðasta ári um 7 og
hálfri milljón. Petit er í eigu
þeirra Önnu Linnea Charlotte
Ahle og Gunnars Þórs Gunn-
arssonar. Það ber að nefna
að Petit er umboðsaðili vin-
sælla barnavagna sem heita
Bugaboo og kosta vinsæl-
ustu tegundirnar í kringum
190.000 þúsund.
Nine Kids, barnavöruversl-
un á Grensásvegi, kom til
sögunnar árið 2018 og hefur
tekið vel við sér. Á öðru ári
rekstrar fór velta fyrirtækis-
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Guðríður,
eigandi Barna-
loppunnar,
fann gat á
markaðnum
og með
tilkomu
sölubása
fyrir notaðan
barnafatnað
hefur hún
slegið í gegn.
MYND/
SIGTRYGGUR ARI
Petit selur mörg vinsælustu barnamerki heims. MYND/PINTEREST