Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Page 22
Andre Stander fæddist í Suður-Afríku á fimmta áratug síðustu aldar.
Stander þótti ágætis náms-
maður framan af, en féll þó
á stúdentsprófinu sem kom
foreldrum hans mikið á
óvart. Í stað þess að taka allt
árið aftur fór hann í lögreglu-
skólann. Faðir hans var yfir-
maður í lögreglunni og setti
mikla pressu á að sonurinn
skyldi feta í fótspor sín. Á
fyrsta ári sínu í lögreglu-
skólanum var hann valinn
„besti nýliðinn“ og nokkrum
árum seinna var hann sjálfur
orðinn yfirmaður í rann-
sóknardeild lögreglunnar í
Jóhannesarborg, einungis 31
árs gamall. Það var einmitt
þá, árið 1977, sem hann fór að
gera óvenjulega hluti.
Fyrstur á vettvang að
rannsaka eigin rán
Talað er um að Stander hafi
framið fyrstu ránin sín þegar
hann var í fríi. Þá hafi hann
keypt flug til borgarinnar
Durban snemma um morgun,
þar á hann að hafa komið
sér í dulargervi, rænt bíl
og síðan keyrt á áfangastað,
sem yfirleitt var banki. Þar
hafi hann framið vopnað rán
með byssu sem hann otaði að
bankastarfsfólki. Þegar hann
fékk svo peningana keyrði
hann aftur upp á flugvöll,
eins og ekkert hefði í skorist.
Ránin urðu fleiri og fleiri. Í
matarpásum átti hann það til
að skreppa og ræna banka og
mæta aftur á vakt. Hann var
jafnvel fyrsti rannsóknar-
lögreglumaðurinn á vett-
vang eigin glæps. Stander
yfirheyrði jafnvel vitni, sem
ótrúlegt en satt, könnuðust
ekki við hann. Svo virðist
vera að hann hafi fengið
mikið út úr því að ræna.
Átti erfitt með að halda
hlátrinum niðri
Stander sagði vini sínum,
sem starfaði einnig hjá lög-
reglunni, frá ránunum.
„Hann viðurkenndi þetta fyr-
ir mér. Fyrst fannst honum
þetta óþægilegt, en svo gat
hann hreinlega ekki stoppað.
Hann gat ekki hamið sig,
horfði á andlit fórnarlamba
sinna og átti erfitt með að
halda hlátrinum niðri. Það
var einhver sadískur ein-
eltis-kjarni í þessu.“ Vinur
hans gerði lögreglu viðvart
sem handtók Stander, eftir
að hún lagði hald á stolinn
bíl með dulargervunum sem
hann notaði.
Stander var árið 1980
ákærður fyrir að fremja 28
rán. Hann var dæmdur sekur
í 15 ákæruliðum og fékk 75
ára fangelsisdóm. Hann á að
hafa rænt að minnsta kosti
100.000 suður-afrísk rönd,
sem í dag yrði metið á tugi
milljóna íslenskra króna „Ég
neyddi hann til að fara í lög-
regluna gegn hans eigin ósk-
um. Hann hefði átt að hætta
þar fyrir mörgum árum.“
sagði faðir Standers eftir
réttarhöldin.
Slapp úr fangelsi
Í öryggisfangelsinu Zon-
derwater kynntist Stander,
Patrick McCall og Allan
Heyl, en báðir voru banka-
ræningjar. Árið 1983 tókst
þeim Stander og McCall að
flýja fangelsisvistina. Þeir
lugu um veikindi og fengu
tíma hjá sálfræðingi sem
starfaði utan fangelsisins.
Þeim tókst að yfirbuga þrjá
fangaverði sem áttu að fylgj-
ast með þeim og stela bíl sál-
fræðingsins til að komast á
brott.
Í tvo mánuði létu þeir lítið
fyrir sér fara, eða þangað til
þeir brutust inn í sérstakan
endurmenntunarskóla fyrir
fanga. Þar var Allan Heyl að
taka próf, en hann fór á brott
ásamt Stander og McCall.
Nokkur rán á dag í
sögulegu ránsæði
Strax í kjölfarið tók við
ótrúlegt ránsæði þeirra um
Jóhannesarborg, en vegna
þess hlutu þeir nafnið Stan-
der-gengið í fjölmiðlum. Eitt
fyrsta ránið var í vopnabúð,
þar sem þeir byrgðu sig upp
af vopnum sem þeir notuðu
svo í hin ránin. Tríóið rændi
fyrst og fremst banka og
það í stórum stíl. Ránin voru
framin á skömmum tíma
og þar af leiðandi frömdu
þeir stundum nokkur á dag,
þegar mest gekk á voru þau
fjögur á einum og sama deg-
inum.
Stander genginu tókst allt-
af að vera nokkrum skrefum
á undan lögreglunni, til að
mynda notuðust þeir við
þrennt húsnæði á mismun-
andi stöðum í borginni. Talið
er að heildarþýfi þeirra hafi
verið metið á um það bil
700.000 rönd, sem í dag væru
hátt í 200 milljónir króna.
Bílaþjófnaður varð
Stander að falli
Í byrjun árs 1984, þegar
ránsæðið hafði staðið yfir í
meira en tvo mánuði, fóru
þremenningarnir að átta
sig á því að tíminn færi að
verða naumur. Lögreglan
virtist alltaf vera nær því
að góma þá og því fóru þeir
að huga að því að koma sér í
burtu. Á endanum voru það
fylgdarkonur sem gerðu lög-
reglunni viðvart um eitt hús-
næði þeirra.
Þá voru Stander og Heyl
búnir að koma sér úr landi,
en McCall var eftir. Lög-
regla umkringdi húsnæðið,
en McCall ákvað að heyja
skotbardaga við hana, frekar
en að gefast upp. Það endaði
með dauða hans. Heyl flúði
til Evrópu þar sem hann
flakkaði á milli staða, en
var á endanum handtekinn
í Bretlandi. Hann sat í fang-
elsi til ársins 2005, en lést í
apríl á þessu ári.
Stander flúði aftur á móti
til Flórída-fylkis. Hann
var tekinn af lögreglunni
á óskráðum Ford Mustang.
Honum tókst að sannfæra
lögregluna um að hann væri
ástralskur rithöfundur, en
missti bílinn. Stander tók
það ekki í mál og stal bílnum
aftur af lögreglustöðinni. Í
kjölfarið komst lögreglan að
því að þarna væri eftirsótt-
asti maður Suður-Afríku á
ferð. Þegar átti að handtaka
Stander reyndi hann að flýja,
sem varð til þess að lögreglu-
þjónn skaut á hann með þeim
afleiðingum að hann lést.
Einfaldur og sorglegur
endir á ótrúlegum glæpa-
ferli eins afkastamesta þjófs
heims. n
SAKAMÁL
Xxxxx
RANNSAKAÐI SÍNA EIGIN GLÆPI
Afbrotaferli hins suður-afríska lögreglustjóra Andre Stander hefur verið lýst sem
„goðsagnakenndum“. Stander framdi bankarán og var jafnvel fyrstur á vettvang.
Kvikmynd
var gerð eftir
sögu Andre
sem kallaðist
Good cop,
great criminal.
MYNDIR/SCOOP
WHOOP.COM
Lögreglustjórinn stelsjúki Andre Stander.
Jón Þór
Stefánsson
jonthor@dv.is
22 FÓKUS 11. SEPTEMBER 2020 DV