Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 11. SEPTEMBER 2020 DV
Bestu vinir
fræga fólksins
Það er sagt að hundurinn sé besti vinur
mannsins. Samfélag hundaeigenda á
Íslandi er stórt og er fræga fólkið ekki
undanskilið. Franskur bolabítur virðist
vera vinsæl tegund meðal stjarnanna.
TANJA ÝR OG EGILL HALLDÓRSSON
Áhrifavaldaparið og frumkvöðlarnir Tanja Ýr Ástþórs-
dóttir og Egill Halldórsson eiga Chihuahua-hundinn
Bellu sem er aðeins komin á aldur. Hún fær að ferðast
með parinu um landið og fregnir herma að hún sé al-
gjör dekurrófa.
JÓN GNARR
Grínistinn og fyrrum borgarastjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, er mikill hunda-
vinur. Jón átti lengi vel hundinn Tobba af Terrier-kyni sem vinur hans og
samgrínari Sigurjón Kjartans hugsaði um þegar Jón bjó tímabundið í
Bandaríkjunum. Þegar Jón kom heim voru Sigurjón og Tobbi orðnir svo
miklir mátar að Sigurjón fékk að eiga Tobba. Í dag á Jón hundinn Klaka.
GÍSLI MARTEINN
Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson á Gol-
den Retriver sem fékk nafnið Tinni, í höfuðið á teikni-
myndapersónuninni og rannsóknarblaðamanninum
Tinna. Hundurinn Tinni er með sína eigin Twitter-síðu
og tæplega 650 fylgjendur.
SVALA BJÖRGVINSDÓTTIR
Söngkonan fékk sér hund af
tegundinni Pug í febrúar 2019.
Hundurinn fékk nafnið Sósa og
er eins og hálfs árs gömul. Nafnið
passar vel við Sósu, en hún elskar
kokteilsósur og pítsur.
SÖLVI TRYGGVA
Fyrr í vikunni greindi fjölmiðla-
maðurinn Sölvi Tryggvason frá
því að nýr fjölskyldumeðlimur
væri mættur. „Algjört ofurkrútt
og strax orðinn mikill gleðigjafi,“
sagði hann á Instagram. Sölvi
greindi ekki frá nafni hvolpsins
sem virðist vera af tegundinni
French Bulldog.
SARA SIGMUNDSDÓTTIR
CrossFit-stjarnan Sara Sigmunds-
dóttir fékk sér hund í byrjun júlí
2020. Krúttið fékk nafnið Moli
Söruson og viðurkenndi Sara að
hún væri orðin biluð hundakona.
„Moli er stærsti, þyngsti og mesti
klaufinn af fimm hvolpum sem
hundur systur minnar eignaðist í
miðri sóttkví […] Ég get með sanni
sagt að ég hef aldrei elskað neinn
eins mikið,“ sagði hún.
DORRIT MOUSSAIEFF
Það komst í heimspressuna þegar Dorrit tilkynnti komu hins nýja Sáms,
sem er klónn af Sámi, gamla hundi hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar.
Fráfall hins upphaflega Sáms tók mikið á Dorrit og ákváðu hjónin að leita
óhefðbundinna leiða í leit að nýjum hundi. Þau höfðu samband við banda-
ríska klónunarfyrirtækið ViaGen Pets og kom hinn nýi Sámur í heiminn í
október 2019. Hann fékk nafnið Samson og kom loksins til Íslands í júlí 2020.
GYLFI SIGURÐARSON OG ALEXANDRA HELGA ÍVARSDÓTTIR
Hjónin hafa átt hundinn Koby frá árinu 2012. Þau halda árlega upp á af-
mæli Koby með köku og öllu tilheyrandi. Hann er ekki skilinn útundan og
það má sjá hann á brúðkaupsmyndum hjónanna. Hann flaug einnig með
þeim í einkaþotu til Ítalíu eftir brúðkaupið. Koby er af tegundinni Cavalier.
BIRGITTA LÍF
Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifa-
valdur og markaðsstjóri World
Class, á hundinn Bellu af tegund-
inni French Bulldog. Birgitta fékk
Bellu í mars 2019 og hefur síðan
þá verið dugleg að birta myndir af
henni á Instagram.
MYND/AÐSEND
MYND/ANTON BRINK
MYND/ANTON BRINK
MYND/TWITTER
MYND/INSTAGRAM @ALEXANDRAHELGA
MYND/INSTAGRAM @BIRGITTALIF MYND/INSTAGRAM @SARASIGMUNDS MYND/INSTAGRAM @SOLVITRYGG
MYND/INSTAGRAM @TANJAYRA