Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Side 26
26 FÓKUS 11. SEPTEMBER 2020 DV
Hér kynnist fólk
Stærsta spilaverslun landsins hefur nú opnað kaffihús þar sem öl í
krús og slagur á borði geta orðið upphafið að nýrri vináttu, en opin
spilakvöld njóta mikilla vinsælda. Pítsa og pakk er góð kvöldstund.
Eigendur spilavina sáu tækifæri á markaðnum og opnuðu kaffihús í verslun sinni. MYNDIR/ANTON BRINK
Hér er ekkert
gefið eftir og
einbeitingin í
botni.
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
E igendur Spilavina, vin-konurnar Svanhildur Eva Stefánsdóttir og
Linda Rós Ragnarsdóttir,
stofnuðu verslunina árið 2007,
rétt áður en kreppan skall á.
Það á því vel við að þær stofni
næsta anga af starfseminni í
miðjum faraldri. Nýlega opn-
uðu þær kaffihúsið Spilakaffi í
versluninni í Skeifunni ásamt
Eðvarði Arnóri Sigurðarsyni
og Þorláki Lúðvíkssyni, en
þar getur fólk fengið sér kaffi-
bolla, kruðerí, mat og bjór á
meðan það spilar.
„Við vorum bara búin að
ákveða þetta fyrir löngu.
Kaffihús og Spilavinir er svo
fullkomið samband. Þetta er
búið að vera í vinnslu í langan
tíma og núna erum við loks
búin að opna,“ segir Þorlákur.
Lífið heldur áfram
„Leyfin komu akkúrat í
miðjum faraldrinum, við vor-
um búin að sækja um þetta
fyrir COVID og þá vorum við
náttúrulega ekkert að fara að
láta það stoppa okkur. Jú, það
er faraldur í gangi en lífið
heldur áfram, við verðum að
halda áfram,“ segir Svan-
hildur og bendir á mikilvægi
þess að fólk eyði tíma saman.
„Við vildum ekki gefast upp
og sleppa því að opna vegna
faraldursins, heldur vildum
við frekar breyta vinnureglum
og haga okkur öðruvísi. Það er
eitthvað sem við erum góð í að
gera, við erum góð í að laga
okkur að aðstæðunum.“
Eitthvað sem marga vantar
Svanhildur segir að í Spila-
vinum hafi alltaf verið hlustað
á óskir viðskiptavina versl-
unarinnar. Þaðan kom bæði
hugmyndin og einnig þrýst-
ingurinn á að opna kaffihús í
versluninni. „Það að hafa pláss
til að hitta vini sína og spila —
það hafa ekki allir aðstöðu til
að bjóða heim til sín — og geta
jafnvel fengið sér eitthvað með
því, veitingar, bjór eða kaffi,
er eitthvað sem mörgum vant-
ar,“ segir Þorlákur. Einnig er
vinsælt að halda barnaafmæli
á staðnum, en á neðri hæðinni
er hálfgerð ævintýraveröld
fyrir spilakát börn.
Á kaffihúsinu er boðið upp
á afar heimilislegt umhverfi
og er spilasvæðinu á neðri
hæðinni skipt í nokkrar stofur.
„Þegar maður situr í stofunni
líður manni frekar eins og
maður sé staddur í heimsókn
hjá einhverjum, frekar en
inni í verslun eða á kaffihúsi,“
sagði gestur á staðnum þegar
DV bar að garði.
Margir mismunandi hópar
hafa haft samband við Spila-
kaffi og fengið að koma.
„Role play-hópar, vinkonu-
hópar, starfsmannahópar og
prjónahópar hafa verið að
koma til okkar. Þetta er góður
vettvangur til að vera út af
fyrir sig í stofu saman,“ segir
Svanhildur og hvetur hópa af
öllu tagi að heyra í þeim og
koma til þeirra.
að spila og fá léttar veitingar.
Þá er líka hægt að fá aðstoð
við spilið, kannski vantar
bara dómara og ég kem oft
á borðin til að skera úr um
hvað er rétt og hvað er rangt
í spilinu.“
Margir viðburðir fram undan
Á döfinni er að halda viðburði
á kaffihúsinu. „COVID hafði
talsverð áhrif á það hvernig
maður getur haldið viðburði.
Við höfum þó verið að finna
leiðir til þess að vinna með
þeim reglum sem sóttvarna-
læknir setur og hanna og
hugsa spilaviðburði innan
þess,“ segir Þorlákur.
„Það eru margir viðburðir
fram undan hjá okkur, það
eru þemaspilakvöld, tveggja
manna spilakvöld, PubQuiz í
alls konar flokkum, svo mun-
um við halda mót og halda
kennslu í spilunum fyrir mót-
ið,“ segir Svanhildur en þess
má geta að undanfarin ár
hefur Íslandsmeistaramótið
í Carcassonne verið haldið á
vegum Spilavina. Sigurvegari
mótsins fær síðan keppnisrétt
á heimsmeistaramótinu í spil-
inu. n
Ég kem oft
á borðin til
að skera úr
um hvað er
rétt og hvað
er rangt í
spilinu.
Eitt stærsta spilasafn
landsins og gott bjórúrval
Það sem Spilakaffi hefur upp
á að bjóða, annað en veitingar
og drykki, er aðgangur að
einu stærsta spilasafni lands-
ins. „Fyrir suma er það mikill
kostnaður að kaupa sér stórt
spil og hérna gefst fólki kost-
ur á að spila spilin, án þess að
kaupa þau.“
Spilakaffi býður þó ekki
aðeins upp á mikið úrval af
spilum, úrvalið af bjór er
ekki síðra. „Við erum nördar
og vildum vera með bjóra
frá litlum brugghúsum. Þess
vegna erum við líka með
spennandi úrval af góðum ís-
lenskum bjórum.“
Spilavinir hafa haldið opin
spilakvöld í versluninni und-
anfarin 13 ár. „Hér kynnist
fólk sem deilir sama áhuga-
máli. Það myndast ákveðin
menning og stemning í kring-
um það. Fólk getur komið
hingað einsamalt og hitt aðra
sem hafa sama áhugamál.
Það hefur mikill vinskapur
myndast hér og spilahópar
orðið til.“
Spilakvöldin hafa verið
haldin reglulega en þó hefur
alltaf liðið einhver tími á
milli, vika eða tvær. Með
opnuninni á Spilakaffi getur
fólk hist og spilað saman alla
daga vikunnar. „Það er hægt