Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Side 27
Nýtt skrautblóm nú vaxið á
akri Alþýðubandalagsins
TÍMAVÉLIN
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
S teingrímur J. Sigfús-son er forseti Alþingis og þingmaður Vinstri
grænna. Hann þarf vart að
kynna fyrir lesendum, enda
verið kjörinn fulltrúi Íslend-
inga á Alþingi í tæplega fjóra
áratugi. Hins vegar hefur
mikið vatn runnið til sjávar
síðan ungi hugsjónamaðurinn
Steingrímur – þá aðeins 28
ára gamall – settist fyrst á
þing árið 1983. Steingrímur
var þjóðinni þá kunnur sem
íþróttafréttamaður með sér-
stakt dálæti á blaki, en hann
hafði þó lengi brunnið fyrir
pólitík, eða allt frá því að
hann kynntist sósíalisma í
skiptinámi á Nýja-Sjálandi.
Nýtt skrautblóm
Tíminn birti síðar grein
þar sem sagði um hinn nýja
þingmann: „Nýtt skrautblóm
er nú vaxið á akri þingliðs
Alþýðubandalagsins. Stein-
grímur J. Sigfússon er hinn
vörpulegasti maður, íþrótta-
garpur og hefur ekki spillt
hinu þingeyska tungutaki
sínu í ólgusjó langskóla-
kerfisins.“ Steingrímur J. var
sestur á Alþingi og síðan þá
hefur hann ekki staðið þaðan
upp, enda líkaði honum vel
við starfið frá fyrsta degi.
„Þingmannsstarfið leggst
vel í mig og auðvitað vonast
ég til þess að hafa einhver
áhrif á þróun mála,“ sagði
Steingrímur í viðtali við
Helgarblaðið.
„Hinu er ekki að neita, að
ríkjandi skipulag á þessari
stofnun hefur tilhneigingu til
að aðlaga nýliðana að sjálfu
sér. Vissulega er hætta á
því að nýir þingmenn verði
fljótt „samdauna“ – svo ég
noti það neikvæða orð – og
hverfi fljótt inn í fjöldann.
Hafi þannig minni áhrif en
vonast var til.“
Eldast illa
Það hafa ekki margir þing-
menn afrekað það að sitja
jafnlengi á hinu háa Alþingi
og Steingrímur hefur, á sín-
um 37 árum á Alþingi. Það
muna þó kannski færri að
það var engan veginn ætlun
hans þegar hann var 28 ára
gamall og blautur á bak við
eyrun.
„Mér finnst þingmenn
vera fljótir að verða gamlir
og þreyttir. Þeir eldast illa.
Þetta er ég mest smeykur
við, og ég vona, að þing-
mennskan breyti mér ekki á
þennan hátt. Það versta sem
gæti komið fyrir, er að þing-
mennskan breytti mér í eitt-
hvað annað en ég vil vera.“
Var Steingrímur þeirrar
trúar að enginn þingmaður
ætti að sitja lengi á þingi í
einu. „Þeir steypast mikið í
sama mót. Það ætti enginn
að vera lengi á þingi í einu.
Menn ættu að taka sér hvíld,
þegar þeir eru orðnir þreytt-
ir.“
Bindismálið
Steingrímur settist fyrst
á þing fyrir Alþýðubanda-
lagið og var með sanni alþýð-
legur. Hann var ekki mikið
fyrir að klæða sig upp fyrir
þingstörfin og taldi jakkaföt
óheppilegan vinnuklæðnað.
Hann var því skammaður
fyrir að mæta óprúðbúinn til
þingstarfa og var málið kallað
Bindismálið. Það mál fékk þó
farsæla lausn. Sagði Stein-
grímur í áðurnefndu viðtali
fyrir 37 árum:
„Bindismálið, já. Þetta er
nú ekki stórmál, en jú, það er
komin lausn á því, eða áfangi
að lausn. Hæstvirtur forseti
neðri deildar Alþingis, Ingvar
Gíslason, hefur lýst yfir að
ég þurfi ekki að vera í jakka-
fötum og með bindi á deildar-
fundum.
Hann færir þau rök fyrir
þessu, að á sama hátt og menn
gátu aflagt kjólföt og pípuhatt
sem vinnuklæðnað á Alþingi
hljóti menn líka að geta aflagt
dökk jakkaföt og hálsbindi.
Mér finnst að menn ættu
að geta klæðast þeim vinnu-
fatnaði sem þeim líður vel í
og mér hafa alltaf þótt jakka-
föt heldur óþægilegur vinnu-
klæðnaður.“
Steingrími fannst þó eðli-
legt að taka tillit til hefða í
klæðaburði. Sést hann í dag
ekki í ræðustól öðruvísi en
í jakkafötum með bindi og
hefur sem forseti Alþingis
skammast í öðrum þing-
mönnum fyrir að leika slíkt
ekki eftir.
„Þetta er sama vitleysan og
á skemmtistöðum, þar sem
þeir sem bregða út frá venju
í klæðaburði eru veiddir úr
við útidyrnar vegna þess
að þeir þykja líklegastir til
óskemmtilegra uppátækja.
Þetta rekur sig allt aftur til
þess tíma þegar stéttaskipt-
ing var undirstrikuð í klæða-
burði,“ sagði Steingrímur við
Helgarpóstinn.
Framsóknarmaður?
Þarna í sögu Steingríms
talaði hann um sjálfan sig
sem sósíalista, eins og sjá
má í viðtali sem birtist við
hann í blaðinu Austurland í
desember 1988. Þá var Stein-
grímur orðinn ráðherra og
var nokkur spenna fyrir því
hvað þessi vinstri sinnaði
maður ætlaði sér að gera í
embætti. Hins vegar voru
ekki allir sem litu Steingrím
þeim augun.
Eftir að hann var kosinn
varaformaður Alþýðubanda-
lagsins árið 1989 birtist
grein í Morgunblaðinu þar
sem Steingrímur var berum
orðum kallaður „framsókn-
armaðurinn í Alþýðubanda-
laginu“ og rök færð fyrir
þeirri fullyrðingu.
„Andstæðingar hans innan
Alþýðubandalagsins kalla
hann íhaldssaman fram-
sóknarmann og gamaldags
stjórnmálamann. Samherjar
hans aftur á móti eiga vart
nægilega sterk orð til að lýsa
kostum hans, einkum mikl-
um dugnaði og þrautseigju.“
Gamall í anda
Þótti Steingrímur gamaldags
í skoðunum og hugsunum og
gerðu margir að því grín að
skoðanir hans í bland við
skeggið og skallann bæru
þess merki að hann væri í
raun mun eldri í andlegum
árum en raunaldur hans
sagði til um.
„Einn af fyrrverandi
blaðamönnum Þjóðviljans
segir að Steingrímur sé elsti
Íslendingur sem hann hafi
kynnst, að því leyti að hann
hefði haft, á þessum tíma,
sömu skoðanir og má finna
hjá mönnum á sextugsaldri.
Það hefði verið helst á honum
að skilja að hefja bæri orf og
ljá aftur til vegs og virðing-
ar.“
Leiðtogi framtíðarinnar
Í greininni í Morgunblaðinu
var spurt hvort svo gamal-
dags þingmaður gæti orðið
leiðtogi í framtíðinni. „Sem
fyrr segir er Steingrímur
mjög metnaðarfullur og
margir telja líklegt að hann
stefni hærra en í varafor-
mannsembættið. Spurningin
er hvort maður sem andstæð-
ingar telja stjórnmálamann
fortíðarinnar geti orðið leið-
togi framtíðarinnar.“
Þeirri spurningu er auð-
svarað í dag. Eftir 37 ár á
þingi og eftir að hafa verið
hluti af forystu Vinstri
grænna frá því að flokkurinn
var stofnaður, má með sanni
segja að hann gat vel, og varð
leiðtogi framtíðarinnar. n
Steingrímur hefur tekið jakkafötin í sátt. MYND/ANTON BRINK
Íþróttafrétta-
maðurinn fór
á þing.
MYNDTIMARIT.IS
Steingrímur J. Sigfússon ætlaði sér aldrei að sitja lengi á þingi. Eftir tæpa fjóra
áratugi á Alþingi verður að teljast ljóst að hann hafi síðan alfarið skipt um skoðun.
FÓKUS 27DV 4. SEPTEMBER 2020