Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Síða 29
KYNNING 29DV 11. SEPTEMBER 2020
D agatölin slógu heldur betur í gegn enda vorum við að bjóða upp á verð sem sást alls ekki
hér á landi. Við komum líka strax
auga á mikið ósamræmi í verði á
kynlífstækjum almennt. Það var oft
hátt í 50% verðálagning hjá íslensk-
um heildsölum, ofan á það sem varan
kostar á til dæmis Amazon, með
flutningi, sköttum og öllu því sem
það kostar einstakling að flytja inn
eina vöru. Því vatt þetta fljótt upp
á sig og síðan þá höfum við haft það
að leiðarljósi að bjóða upp á fyrsta
flokks kynlífstæki á frábæru verði.
Nú erum við spennt að tilkynna að
við ætlum að bjóða upp á algerlega
sturluð kynlífstækjadagatöl í ár. Við
erum viss um að þetta eigi eftir að
klárast mjög fljótt og því er ráðlegt
að þeir sem hafa áhuga á að panta
dagatölin geri það sem fyrst,“ segir
Vilhjálmur.
Unaðsleg kynlífstækjadagatöl í
forsölu: Fyrstur pantar fyrstur fær
Á föstudaginn 11. september hefst
forsala á nýjum og spennandi kyn-
lífstækjadagatölum hjá Hermosu.
„Í fyrra fundum við ekkert dagatal
sem stóðst okkar kröfur, en núna í
ár höfum við landað tveimur frá-
bærum dagatölum sem henta alls-
konar pörum. Þetta eru ótrúlega
vegleg dagatöl og það sem gerir þau
frábrugðin flestum öðrum er að þau
innihalda ekki bara vörur frá einum
framleiðanda. Hægt er að velja um
Premium-kynlífstækjadagatal og svo
Classic-dagatal.“
Úrvalsvörur í svefnherbergið
Premium-dagatölin eru sérlega
vegleg með frábært úrval af hágæða
kynlífstækjum. Dagatalið kostar
39.990 kr. en verðmæti varanna er
um 150.000 kr. „Þetta eru 28 vörur,
sem þýðir að í sumum gluggum eru
fleiri en ein vara. Þá er meðalverðið
á hverri vöru fyrir sig 1.428 kr. sem
er lægra verð en á ódýrustu vörunni
í dagatalinu. Við erum að tala um
Womanizer-vörur, paratæki, alvöru
leðurvörur, múffur, titrara, sleipi-
efni og alls konar unaðstæki til þess
að gera desemberskammdegið að
skemmtilegasta tíma ársins.“
Sígildar unaðsvörur
Hitt dagatalið er alls ekki síðra.
Dagatalið er á 24.990 kr. en verð-
mæti varanna er um 80.000 kr.
„Vörurnar í þessu eru mjög góðar og
sígildar, en vörumerkin eru minna
þekkt. Við höfum þó verið að selja
frábærar vörur frá þessum aðilum
og við vitum að þetta eru flott
vörumerki. Þarna eru kegal perlur,
titrarar, dildóar, sogtæki, bdsm-
dót, typpahringur og paratæki. Það
verður enginn svikinn af þessum
munúðarpakka.“
Samdægurs sendingarþjónusta
„Við vinnum sífellt að því að bæta
þjónustuna hvar sem hægt er, en
viðskiptavinir okkar hafa kunnað
Tryllt jóladagatöl fyrir fullorðna fólkið
Hermosa er ein stærsta og farsælasta netverslun með kynlífstæki á Íslandi í dag. Upp-
hafið má rekja til þess að eigendurnir, Vilhjálmur Þór Gunnarsson og Kristín Björg Hrólfs-
dóttir fluttu inn kynlífstækjadagatöl og komu auga á verðósamræmi á markaðnum.
Kristín og Vilhjálmur eru spennt að tilkynna að þau ætla að bjóða upp á algerlega sturluð kynlífstækjadagatöl í ár. MYND/VALLI
Kíktu við í hermosa.is og skoðaðu úrvalið.
Facebook: Hermosa.is
Instagram: hermosaisland
vel að meta góða verðið, fríu heims-
endinguna og hvað vefsíðan er þægi-
leg og einföld í notkun. Okkar mark-
mið hefur alltaf verið að einskorða
úrvalið við fyrsta flokks vörur. Eins
og við segjum oft, þá nennir enginn
að skoða 300 dildóa í leit að þeim
eina rétta. Við erum búin að leggjast
í rannsóknarvinnuna til að einfalda
þér lífið.
Það nýjasta hjá okkur er að nú
bjóðum við upp á samdægurs heim-
sendingu, sækja á N1 á leið heim úr
vinnu eða í vöruhús. Ef pantað er
fyrir hádegi þá geturðu fengið vör-
una heimsenda samdægurs. Þetta
er í raun engu flóknara en að panta
pizzu. Þú færð sms þegar varan fer
í bílinn og svo annað þegar það eru
15-20 mínútur í að hún kemur til
þín. Það þarf því ekki að bíða heima
í heilan dag eftir heimsendingu. Ef
fólk vill sækja, þá er hægt að sækja
sendingar frá kl. 17 og fram á kvöld
á allar N1 stöðvar. Þessi kostur
hentar mörgum sem vilja kippa
pakkanum með sér heim úr vinnu og
vilja ekki þurfa að vera heima. Einn-
ig er hægt að sækja sjálfur í vöru-
húsið fyrir kl. 17.00 á daginn.
Einnig höfum við bætt við lifandi
spjalli á síðunni okkar. Þá geta við-
skiptavinir náð í okkur á næstum
hvaða tíma sólarhringsins sem er.
Við erum nánast alltaf við, því við
getum hvort heldur sem er svarað í
tölvunni eða símanum.“ n
S o g t æk i n f r á
Womanizer hafa
tröllriðið kynlífs-
tækjamarkaðnum
undanfarið.
Fjarstýrðu eggin
frá Easy Toys
passa vel í nær-
buxurnar. Makinn
fær svo fjarstýr-
inguna og getur
kveikt á egginu
hvar og hvenær
sem er. Gefðu frá
þér stjórnina, þú
munt ekki sjá eftir
því.
Dagat ö l in eru
ótrúlega vegleg
og innihalda ekki
bara vörur frá ein-
um framleiðanda.
Fallegur paratitrari
frá We-Vibe sem
að mun krydda
vel upp á kynlífið
í desember. Tækið
virkar í flestum
s te l l ingum og
veitir báðum að-
ilum unað.