Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Síða 32
Matseðill
Helgu Völu
Morgunmatur
Skyr með nýja granólanu hennar
Tobbu, sem reyndar er hættu-
lega gott. Kaffi.
Millimál
Ávextir, hrökkbrauð eða soðið
egg á nefndasviði þingsins – og
kaffi – en oftast ekkert.
Hádegismatur
Fjölbreytt, stundum skyr, stund-
um einhver matur, stundum
brauðsneið – já og kaffi.
Millimál
Á góðum degi ávextir, of oft bara
eitthvað drasl. Já og svo enn þá
meira og meira kaffi.
Kvöldmatur
Egg, grænmeti, fiskur, pasta,
salat, súpa, bara alls konar, yfir-
leitt ekkert kaffi.
Risarækjupasta í Sweet Chili rjómaostasósu
350 g De Cecco pasta
50 g smjör
1 msk. ólífuolía
1-2 rauð chili
skorin í þunnar sneiðar
½ púrrulaukur, sneiddur
5-8 hvítlauksrif, smátt söxuð
2 pakkar af risarækju
frá Sælkerafiski
½ askja Philadelphia
sweet chili rjómaostur
2 dl hvítvín
Salt og pipar
Steinselja smátt söxuð
Hitið olíu og smjör á pönnu. Steikið
hvítlauk, púrrulauk og chili í 1
mínútu og bætið þá risarækjunum
saman við.
Bætið rjómaosti saman við og síðan
hvítvíni. Látið malla í smá stund og
smakkið til með rjómaosti, hvítvíni,
salti og pipar.
Setið pastað í skál og látið risarækj
urnar saman við. Stráið jafnvel chili
flögum og smátt saxaðri steinselju
saman við.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Léttir grænmetisréttir eru í uppáhaldi hjá Helgu Völu. MYND/ANTON BRINK
32 MATUR 11. SEPTEMBER 2020 DV
Algjör nammigrís og elskar
litríkan og bragðsterkan mat
Helga Vala er sannkallaður þúsundþjalasmiður. Hún er alþingismaður, leikkona og lög-
fræðingur. Hún er einnig mikill matarunnandi. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi?
H elga Vala Helgadóttir hefur setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna
síðan árið 2017. Hún er dóttir
hinna ástsælu leikara Helgu
Bachman og Helga Skúla-
sonar. Helga Vala fetaði í fót-
spor foreldra sinna og er lærð
leikkona. Hún er einnig lög-
fræðingur að mennt og fékk
lögmannsréttindi árið 2011.
Við fengum að vita hvernig
venjulegur dagur er í lífi
hennar.
„Ég er morgunhæna og
mæti því fyrir allar aldir
í ræktina mína, sem ég er
blessunarlega komin aftur
af stað í. Ég kem svo heim í
sturtu og morgunmat og hitti
fjölskylduna mína fyrir vinnu-
daginn á Alþingi, sem er oft
og tíðum ansi fjölbreytilegur
og mislangur,“ segir hún.
Algjör nammigrís
Helga Vala segist fylgja býsna
hollu mataræði en hennar
veikleiki er sætindi.
„Ég vildi að ég gæti svarað
að ég fylgdi í hvívetna hollu
og sykurlausu mataræði en
þá væri ég að ljúga. Ég er al-
gjör nammigrís og bara verð
að taka mig taki oft í viku til
að sleppa því að úða í mig alls
konar sykurgúmmelaði,“ segir
hún.
„Mataræði mitt er hins veg-
ar býsna hollt. Ég borða tölu-
vert af grænmeti, ávöxtum,
korni og fiski, en minna af
kjöti í seinni tíð. Léttir græn-
metisréttir eru í uppáhaldi en
einnig salat og ítalskir réttir
hvers konar.“
Helga Vala nýtur sín í eld-
húsinu og hefur yndi af að
standa lengi í eldhúsinu og
elda alls konar litríkan mat.
„Ítalskan, indverskan, mar-
okkóskan eða bara hvað sem
er og þá skiptir útlitið máli.
Matur verður að vera lokk-
andi fyrir augað auk þess að
vera bragðgóður og mér skilst
að ég sé bara fínasti kokkur.
Að minnsta kosti fer það orð
af mér hjá stórfjölskyldunni
sem fær stundum að njóta
afurðanna. Eldhúsverkin
verða þannig mitt jóga, nokk-
urs konar hugleiðsla þar sem
ekkert truflar nema suðan í
pottunum og uppskriftin sem
þarf að fylgja hóflega mikið,“
segir Helga Vala.
Hóflega mikil ást
„Uppáhalds máltíðin er máltíð
með fjölskyldunni og vinum,
þar sem setið er lengi og
spjallað um allt milli himins
og jarðar. Alls konar brögð,
alls konar litir og alls konar
fólk. Matartíminn er sam-
verustund sem best er að sé
passlega lífleg og lekker. Líka
þegar fram er borin soðin
ýsa og kartöflur með smjöri.
Matseldin þarf alls ekki að
vera einhver flækja heldur
bara hóflega mikil ást,“ segir
Helga Vala.
Aðspurð hver uppáhalds
uppskrift hennar sé þessa
stundina nefnir Helga Vala
risarækjupastarétt Berglindar
á Gulur rauður grænn og salt.
„Það eru reyndar nánast allar
uppskriftir þaðan afbragð,“
segir hún. n
Matseldin
þarf alls ekki
að vera ein-
hver flækja
heldur bara
hóflega mikil
ást.