Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Qupperneq 36
36 FÓKUS 11. SEPTEMBER 2020 DV
Af hverju
kannast
ég svona
við þau?
Flestir kannast við að sjá sömu
leikurunum bregða fyrir í hinu og
þessu en þekkja þá ekki af nafni
eða fyrri verkum. Oft eru sömu
leikararnir að spretta upp hér
og þar en virðast aldrei fá aðal-
hlutverk. Hvaða fólk er þetta og
hvað heitir það?
MARGOT ROBBIE
Margot heimsótti ófá heimili hérlendis á hverjum degi í áströlsku þátt-
unum Nágrannar sem hafa verið sýndir hérlendis á Stöð 2 í áratugi, en
fyrsti þátturinn var framleiddur 1985. Leikkonan kom fyrst fram í þáttunum
2008 og lék unglingsstúlkuna Donnu í þrjú ár. Fljótlega fór hún þó að gera
það gott í Hollywood og er í dag afar eftirsótt og lék meðal annars á móti
Leonardo DiCaprio í The Wolf of Wall Street og var tilnefnd til Óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í I, Tonya.
BARRY SHABAKA HENLEY
Nafnið eitt og sér ætti að vera nóg til þess að fólk læri
það utan að – en svo er ekki. Flestir kvikmynda- og
sjónvarpsunnendur hafa séð þessum þaulreynda
leikara bregða fyrir í hinum ýmsu hlutverkum en aldr-
ei virðist hann fá annað en lítil aukahlutverk. Hann
hefur leikið í fjölda kvikmynda sem leikstjórinn Mic-
hael Mann leikstýrir en svo virðist sem þeir séu miklir
vinir. Barry lék til dæmis í þáttunum Better Call Saul og
kvikmyndunum Rush Hour, Collateral og The Terminal.
ELIZABETH REASER
Eitt fyrsta starf Elizabeth var í einni vinsælustu sjón-
varpsseríu tíunda áratugarins, The Sopranos. Okkar
kona lék reyndar bara í einum þætti en það opnaði á
fleiri gestahlutverk í stórum þáttaröðum á borð við
Law & Order: Criminal Intent, Grey’s Anatomy, True
Detective, og Mad Men. Elizabeth hætti þó ekki þar
og lék í stórmyndunum Twilight Saga og hinni geysi-
vinsælu þáttaröð The Handmaid’s Tale.
JENNIFER GREY
Jennifer Grey skaust upp á stjörnuhimininn þegar
hún fór með hlutverk Baby Houseman í Dirty Dancing
(1987) sem varð ein vinsælasta kvikmynd níunda ára-
tugarins. Síðustu áratugi hefur Jennifer komið fram
í gestahlutverki í þáttum eins og Friends og House
M.D. En þú hefur kannski ekki kannast við hana vegna
fegrunaraðgerðar sem hún gekkst undir á nefi. „Ég fór
á skurðstofuna sem stjarna og var ómerkingur (e. no-
body) þegar ég kom út,“ sagði Jennifer.
CAROL POTTER
Carol Potter er bandarísk leikkona og þekktust fyrir
hlutverk sitt sem Cindy Walsh í Beverly Hills, 90210,
móður Brendu og Brandon Walsh. Hún hefur komið
fram í gestahlutverki í nokkrum þáttum síðan þá, eins
og NYPD Blue, Crossing Jordan, Greek og Medium.
GIOVANNI RIBISI
Antonino Giovanni Ribisi hefur leikið í fjölda kvik-
mynda svo sem Saving Private Rayan og Avatar, en
hann hefur skrifað undir samning um að leika í fjölda
framhaldsmynda um fagurbláu verurnar í Avatar. Þó
Giovanni hafi leikið í mörgum stórmyndum eru fæstir
sem þekkja nafn hans og líklega muna flestir eftir
honum sem undarlega bróður Pheobe í gamanþátt-
unum Friends.
EDDIE KAYE THOMAS
Eddie er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í American
Pie-kvikmyndunum auk fjölda þáttaraða. Eddie er ekki
sonur Mr. Bean, þó hann sé undarlega líkur honum.
Edd ie byrjaði að leika sjö ára gamall og lék í sínu fyrsta
Broadway-leikriti 12 ára.
MYND/GETTY