Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Side 37
Á gústa Eva Erlendsdóttir leik- og söng-kona er fædd ljónynja. Eins og brakandi eldur þá hefur Ljónið tilhneigingu til að
vera hlýtt, ástríðufullt og kraftmikið. Ljónin
eru hugrökk, sterk og ófeimin að vera þau
sjálf. Þau njóta sín oft í sviðsljósinu, en eru þó
oft feimnari og minni í sér en þau láta í ljós.
Einsetumaðurinn
Sálarleit | Sjálfsskoðun | Einvera | Leiðsögn | Innsæi
Fyrsta spilið er leiðsögn, mælt er með því að draga sig
í hlé frá amstri dagsins til þess að fá skýrari mynd af
komandi tíma. Þegar maður stígur út fyrir ákveðnar
aðstæður þá sér maður allt í betra ljósi. Það er líka
svo endalaust gefandi að gefa sér tíma til þess að
líta inn á við og gefa sér tíma til að átta sig á þörfum
sínum.
Tía í Bikurum
Ást | Kærleikur | Samband | Jafnvægi
Mikil hamingja og kærleikur fylgir þessu spili. Þú
finnur fyrir nægjusemi í þínum samböndum, bæði í
ástarmálum og fjölskyldu. Þér líður eins og hjarta þitt
gæti sprungið, það er svo mikil ást. Hér kemur inn
sterkt samband þar sem mikil virðing og skilningur
er fyrir hvoru öðru. Þetta spil kemur gjarnan upp
þegar fólk hefur gefið sér tíma til þess að vera með
sínum nánustu og þegar það hefur nært hvert annað
á líkama og sál.
Hamingjuhjólið
Velgengni | Karma | Örlög | Breytingar
Það fer ekki á milli mála að spilin eru þér hliðholl, það
ríkir mikill friður og þróun í betri átt. Mikil sjálfs-
vinna skilar árangri allt um kring. Hjólið er táknrænt
fyrir breytingar og minnir þig á að valið er ávallt þitt.
Stundum þarf maður bara að gefa sér tíma til að vita
nákvæmlega hvert það er sem maður vill stefna.
Skilaboð frá spákonunni
Þú virðist bara vera alveg með þetta, veist hvað þú
vilt og ert ófeimin að sækjast eftir því, áfram þú!
Varstu annars búin að kaupa þér gróðurhús?
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Ágústa Eva Erlendsdóttir
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
an 11.09. – 17.09.
Þér líður eins og hjartað gæti sprungið af ást
Frímann fór á skeljarnar
MYND/SIGTRYGGUR ARI
stjörnurnarSPÁÐ Í
L eikarinn Gunnar Hansson trúlofaðist kærustu sinni Hikoro Ara á dögunum. Gunnar Hansson er ástsæll leikari og
hvað þekktastur fyrir túlkun sína á ljóðskáld-
inu, rithöfundinum, mannvininum og bóhem-
anum Frímanni Gunnarssyni. Það er ný þátta-
röð í sýningu á RÚV.
Parið greindi frá gleðitíðindunum á Face-
book og lék DV forvitni á að vita hvernig þau
eiga saman ef litið er til stjörnumerkjanna.
Það getur verið viss áskorun fyrir Steingeit-
ina og Tvíburann að láta samband sitt ganga.
Þetta er vissulega ansi skrýtin pörun. En ef
þau geta bæði lagað sig að persónuleika hins
mun sambandið verða sterkara með tímanum
og að lokum betra en nokkuð annað samband
stjörnumerkjanna.
Tvíburinn á það til að vera algjör daðrari og
hans hugmynd um hvað má og má ekki er að-
eins óljósari en hjá reglusömu Steingeitinni.
En hún lætur ekki auðveldlega plata sig og á
auðvelt með að lesa Tvíburann og er fljót að
átta sig á því þegar hann er að spinna lygavef.
Staðreyndin er sú að samband Steingeitar-
innar og Tvíburans getur verið strembið.
Lykillinn að hamingjusömu sambandi milli
merkjanna er samskipti og þolinmæði. Finnið
sameiginlegt áhugamál og verið dugleg að tjá
ást ykkar hvort á öðru. n
Hiroko Ara
Steingeit
24. desember 1977
n Ábyrg
n Öguð
n Góður stjórnandi
n Skynsöm
n Besservisser
n Býst við hinu versta
Gunnar Hansson
Tvíburi
26. maí 1971
n Forvitinn
n Mikil aðlögunarhæfni
n Fljótur að læra
n Skipulagður
n Taugaóstyrkur
n Ákvarðanafælinn
MYND/SAMSETT
Tilfinningar, hreinsun og dulúð í kortunum…
Hrútur
21.03. – 19.04.
Aukið sjálfstraust flæðir til þín
þessa vikuna, elsku Hrútur. Sjálfs-
traustið hjálpar þér að taka þær
ákvarðanir sem henta þér best.
Vinnan og heimilislífið gengur líka
betur í kjölfarið. Þú ert á réttri
braut.
Naut
20.04. – 20.05.
Stundum þarf maður að ganga
í gegnum smá hiksta til þess að
ákveðið samband geti þroskast
frekar. En það mun einmitt reyna
aðeins á þessa vikuna. Ekki
bugast, þú sérð síðar að þið verðið
nánari eftir þessa uppákomu.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Þú ert með ansi marga bolta í
loftinu þessa dagana. Þín lausn
felst einfaldlega í því að biðja
um hjálp og forgangsraða. Þér
leiðist allavega ekki, sem er lúxus-
vandamál.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Ef það er einhvern tíma tími fyrir
Krabba-dansinn þá er það núna!
Og já, á almannafæri! Láttu
vaða. Hverjum er ekki sama hvað
öðrum finnst. Það ríkir mikil gleði
á bak við þennan dans. Skemmti-
legir tímar fram undan og lausnir á
vandamálum í sjónmáli.
Ljón
23.07. – 22.08.
Út fyrir endamörk alheimsins! Þú
ert Bósi ljósár þessa dagana og
ert að huga að stórum breytingum.
Ljónið er í stuði og finnst lífið of
stutt til þess að taka ekki smá
áhættu. Hlustaðu gaumgæfilega á
þessa tilfinningu. Hver veit hvert
hún leiðir þig?
Meyja
23.08. – 22.09.
Eitthvað vantar upp á róman-
tíkina þessa vikuna. Það er svo
skrítið að vera einmana í samveru
annarra. Mögulega getur þú sjálf/
ur kryddað upp á tilveruna eða
planað skemmtilegt stefnumót sem
mun fylla upp í einmanaleikann.
Stundum verðum við sjálf að vera
breytingin sem við þurfum í líf
okkar.
Vog
23.09. – 22.10.
Þú átt ekki sérlega auðvelt með að
koma hlutum í verk þessa vikuna.
Dagdraumar flækjast fyrir og þú
nennir lítið að taka þátt í skyldum
sem fylgja raunheiminum. Reyndu
að gera pláss fyrir bæði, til þess að
koma örlitlu í verk.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Eitthvað þarf að peppa upp starfs-
andann og þú gætir verið lausnin.
Hvernig væri að plana litla óvissu-
ferð til þess að hrista upp í liðinu?
Það þarf ekki mikið til, en lítið
framlag gæti skilað miklu.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Yfirnáttúrulegir hlutir eru að gerast
í kringum þig. Skilaboð að handan?
Ertu að hlusta? Þetta er dular-
fullt líf sem við lifum. Ef vinur þinn
stingur upp á að fara í heilun þá
er núna góður tími til þess að gefa
sér tíma í það. Mögulega leynast
svörin þar.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Hmm… Lastu ekki örugglega
spána í síðustu viku, eða ertu bara
enn þá að mana þig upp í að segja
það sem þú ert að hugsa upp-
hátt? Æfing í að setja mörk og tjá
tilfinningar og skoðanir, mun létta
á allri tilveru þinni. Persónulegur
sigur er í kortunum þínum fyrir lok
vikunnar.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Ja, hérna hér. Það er ýmislegt
sem kemur upp á yfirborðið þessa
vikuna og kallar á smá hreinsun.
Það gæti tekið á tilfinningalega
en að lokum verður mikill léttir.
Þú veist það nú þegar að það er
kominn tími til að kveðja þá sem
ekki upphefja okkur.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Fiskurinn er frekar næmur í eðli
sínu. Í þessari viku ertu óvenju
berdreymin/n. Geymdu dagbók við
rúmið þitt. Og finndu svo gömlu
draumaráðningabækurnar frá
ömmu þinni. Leiðbeinendur að
handan eru að reyna að hjálpa þér
með næstu skref.
EINSETUMAÐURINN
10
BIKARAR
HAMINGJUHJÓLIÐ
FÓKUS 37DV 11. SEPTEMBER 2020