Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2020, Page 38
38 SPORT 433 11. SEPTEMBER 2020 DV
KNATTSPYRNUSTJÖRNUR
SEM KLÚÐRUÐU Í COVID
Í vikunni greindi 433 frá því að landsliðsmennirnir tveir í enska landsliðinu,
þeir Phil Foden og Mason
Greenwood, hefðu boðið þeim
Láru Clausen og Nadíu Sif
Líndal upp á hótelherbergi til
sín. Fréttirnar vöktu heimsat-
hygli, enda eru þeir Foden og
Greenwood heimsfrægir, en
þeir spila hvor með sínu stór-
liðinu í Manchester-borg. Þeir
félagar eru þó ekki þeir fyrstu
til að koma sér í vandræði í
COVID-faraldrinum.
Sagði fólki að vera
heima en fór sjálfur út
Stjarna Aston Villa á síðasta
tímabili, Jack Grealish, hvatti
fólk til þess að halda sig
heima vegna kórónuveirunnar
í mars, en þá var útgöngubann
í Bretlandi. Grealish var þó
greinilega ekki að hlusta á
sjálfan sig, þar sem hann
fór sjálfur út daginn eftir.
Ekki nóg með það að hann
hafi brotið reglur útgöngu-
bannsins þá klessti hann líka
glæsilega Range Rover bifreið
sína. Götublöðin á Englandi
sögðu að Grealish hefði klesst
á tvo kyrrstæða bíla eftir að
hafa verið í gleðskap hjá Ross
McCormack, fyrrum liðs-
félaga sínum hjá Astona Villa.
Fjölmiðlamaðurinn Piers
Morgan hraunaði yfir Greal-
ish á sjónvarpsstöðinni ITV
eftir fréttirnar. „Hann var
að gera rétt þangað til hann
ákvað að heimsækja vini
sína í gleðskap, hvað er hann
að hugsa? Hvað varð um að
vera skynsamur?“ sagði Piers
Morgan. „Það hjálpar ekki
ástandinu þegar stjarna í
enskum fótbolta, brýtur regl-
urnar. Hann er fyrirmynd,
skammastu þín drengur.“
Grealish þurfti að horfast í
augu við afleiðingar hegðunar
sinnar. Hann baðst afsökunar
á hegðun sinni á samfélags-
miðlum sínum en afsökunar-
beiðnin dugði þó ekki til ein
og sér. Hann þurfti einnig að
borga 150 þúsund pund í sekt
til Aston Villa, en það eru
rúmar 27 milljónir í íslensk-
um krónum. Félagið sagði að
öll sektin myndi renna til góð-
gerðarmála.
Bauð vændiskonum heim
Kyle Walker, leikmaður enska
landsliðsins og Manchester
City, játaði í mars að hafa
keypt þjónustu hjá vændis-
konum á meðan útgöngubann
var í gildi í Bretlandi. Regl-
urnar voru skýrar um að
ekki mætti bjóða fólki heim
til sín, en Walker ákvað þrátt
fyrir það að fá tvær vændis-
konur heim til sín á þriðju-
dagskvöldi. Walker borgaði
þeim Louise McNamara og
ónefndri brasilískri konu
samtals 2.200 pund fyrir
heimsóknina. Það eru rúm-
lega 400 þúsund íslenskar
krónur.
Walker sá eftir þessu og
sendi frá sér yfirlýsingu
eftir að greint var frá þessu.
„Ég vil biðjast afsökunar á
þeim ákvörðunum sem ég
tók í síðustu viku. Ég skil að
í stöðu minni sem atvinnu-
maður, þá ber ég ábyrgð og
er fyrirmynd,“ sagði Walker
í yfirlýsingunni. „Ég vil biðja
fjölskyldu mína, vini, fótbolta-
félagið mitt og alla afsökunar,
á að hafa brugðist þeim.“
Svo virðist þó vera sem Wal-
ker hafi ekki lært af þessum
mistökum en snemma í maí
braut hann aftur reglur út-
göngubannsins, ekki bara
einu sinni í þetta skiptið held-
ur þrisvar sinnum á einum
degi. Walker heimsótti systur
sína, svo foreldra sína og loks
fyrrverandi eiginkonu sína og
börn.
„Ég tel mig ekki hafa neinn
annan kost en að tjá mig eftir
frétt dagsins,“ sagði Walker
eftir þetta. „Ég hef farið í
gegnum erfiðasta kafla lífs
míns undanfarið, ég tel að ég
verði að tjá mig. Þetta hefur
ekki bara áhrif á mig, þetta
hefur áhrif á heilsu fjölskyldu
minnar og barnanna minna.
Ég fór á miðvikudag í heim-
sókn til systur minnar með af-
mæliskort, ég vildi líka ræða
við aðila sem ég treysti. Hún
faðmaði mig, hvað átti ég að
gera? Ég fór svo til foreldra
minna til að sækja mat. Þetta
hefur verið erfitt fyrir þau.
Hvað hafa þau gert til að vera
birt í fjölmiðlum?“
Hélt risastórt partý
Fyrrum knattspyrnumaður-
inn Paul Scholes hélt risastórt
partý fyrir son sinn á heimili
sínu í Oldham á Englandi,
daginn sem útgöngubann var
sett á aftur í borginni í ágúst.
Paul Scholes, sem spilaði með
Manchester United allan sinn
feril, hélt upp á afmæli Arron
Scholes, sonar síns, í ágúst en
Arron var að fagna 21 árs af-
mæli sínu. Í myndböndum sem
tekin voru upp í veislunni má
sjá að fólkið þar hugsaði lítið
um sóttvarnaviðmið á meðan
það drakk áfengi og dans-
aði. Veislan hélt áfram fram
á nótt, á sama tíma og millj-
ónum manna á sama svæði var
bannað að koma saman í eigin
húsum.
Partýið vakti hörð viðbrögð
þar í landi, en til að mynda
sagði þingmaðurinn And-
rew Bridgen að Scholes væri
að setja virkilega lélegt for-
dæmi. „Ég bjóst við að fyrir-
mynd sem spilaði 66 leiki með
Englandi myndi sýna meiri
ábyrgð. Fólkið í Oldham gerir
sér fulla grein fyrir því að
svona ábyrgðarlaus hegðun er
ástæðan fyrir því að útgöngu-
bann var sett á aftur.“
Fólk sem býr í Oldham tjáði
sig einnig um málið í fjölmiðl-
um þar í landi. „Fjölskyldan
hefur verið að skipuleggja
þetta í margar vikur. Upphaf-
lega átti veislan að fara fram
á hóteli en þau þurftu að hætta
við það. Skömmu síðar fór orð-
rómur af stað um að veislan
yrði haldin heima hjá þeim
frekar. Þetta er brjálæði, þau
hunsuðu allar reglur bara því
þau vildu halda veisluna.“ n
Máni Snær
Þorláksson
manisnaer@dv.is
Kyle Walker fékk til sín vændiskonur. MYND/GETTY
Arron Scholes í partýinu.
Jack Grealish klessti bílinn sinn. MYND/GETTY
Þrátt fyrir að Bretland hafi fengið slæma útreið í faraldrinum virð-
ast atvinnumenn í fótbolta ekki hafa látið það stoppa sig við að
skemmta sér. Þeir Mason Greenwood og Phil Foden eru ekki einu
Englendingarnir sem klúðruðu rækilega í kórónaveiru-faraldrinum.