Hvöt - 01.02.1950, Blaðsíða 3
»/7S'
1. tölubldS
Reykjavík. 1. febrúar 1950
18. árgangur
ÍJTGEFANDI: SAMBAND BINDIN DISFÉLAGA í SKÓLUM
Árarp ritnefndar
Góðir félagar.
Eins og ykkur mun flestum vera kunnugt og frá er skýrt á öðrum stað
í blaði þessu, samþykkti síðasta þing S. B. S. að afnema styrk þann, er Sam-
bandið hefur veitt útgáfu mánaðarblaðsins Einingar, en leggja í þess stað
alla áherzlu á útgáfu „Hvatar“.
Telur ritnefndin augljóst, að með samþykkt þessari hafi Sambandsfélagar
tekið sér á herðar auknar skyldur við blað sitt. Verðum við nú öll
að sýna í verki, að við viljum, að blað þetta geti orðið Sambandinu til meiri
sóma og styrktar en nokkru sinni áður, — ella hlýtur fyrrnefnd samþvkkt
þingsins að skoðast marklaus og beinlínis skaðleg.
Ritnefndin vill leggja allt kapp á að gera blaðið svo vel úr garði sem
kostur er, bæði bvað snertir fjölbreytni og efnisgæði.
Hún heitir því mjög eindregið á ykkur öll, félaga Sambandsins, er eitt-
hvað getið af mörkum látið til blaðsins, að liggja ekki á liði ykkar. Kemur
þar ti! greina bvers konar fræði- eða skemmtiefni, sem ætla má að eigi erindi
til íslenzkrar skólaæsku.
Jafnframt óskar ritnefndin eindregið eftir því, að skólafólk sendi blað-
inu athugasemdir um allt, er að bindindismálum lýtur, ekki síður þeir, sem
utan við bindindissamtökin standa. Myndu slíkar athugasemdir verða rædd-
ar í Hvöt, eftir því sem rúm leyfði, og fullri þagmælsku heitið um nöfn bréf-
ritara, ef þess væri óskað. Hins vegar yrðu nafnlaus bréf ekki rædd.
Ritnefndin beinir svo þeim sérstöku tilmælum til stjórna bindindisfélag-
anna, að þær reki af fremsta megni erindi blaðs þessa, hver í sínum skóla.
Efni til blaðsins, svo og bréf og athugasemdir, óskast sent formanni S. B. S„
Laufásvegi 45 B, Reykjavík, eða einhverjum ritnefndarmanna.
LAMDSPÓKASAFN
ja : 8 1.557
í, SI.AN i JS