Hvöt - 01.02.1950, Síða 26
24
H V Ö T
]. mynd: 4-mannu Bell-hvirfilvœngja.
mjög er notuð til straiulgæzhi og björg-
unarstarfa.
Bretar létu sig fvrst í stað hvirfil-
vængjur litlu ski[)ta, enfla höfðu þeir
öðrum hnöppum að hneppa í stríðinu.
Skömmu eftir stríð kom fyrsta enska
livirfilvængjan, sem nokkuð kvað að,
fram á sjónarsviðið. Nefmlist sú Fairey
Gyrodyne.
Sú fluga er á margan hátt hin ný-
stárlegasta. Ekki mun byrjað að frarn-
leiða hana til almenningsafnota, en hún
státar á öllum brezkum flugvélasýning-
um og þykir mesta furðusmíð.
Onnur brezk flugvélasmiðja, West-
land. hefur gert samning við Si-
korskvverksmiðjuna bandarísku og
smíðar nú í nokkrum stíl 4 sæta hvirfil-
vængjur, Westland-Sikorsky S-5I, eftir
nýjustu teikningum Sikorskv’s, knúna
brezkum 525 hestafla Alvis Leonides
hreyfli. Sá hreyfill er eiiuiig notaður
í Fairey Girodyne.
í mörgum öðrum löndum er nú
unnið af kappi að tilraunum með hvirf-
i Ivængjur.
Helztu gerðir hvirfilvængna.
Þá er að víkja lítið eitt að gerð hvirf-
ilvængna.
Fljótt á litið gæti það virzt næsta
auðvelt að tengja skrúfu ofan á flug-
vélarbol og búa nauðsynlegum stýri-
tækjum, svo að hægt væri að fljúga
áhaldinu upp og niður og í allar áttir.
En margir örðugleikar verða á vegi
brautryðjandans.
Þegar slík fluga lvftist upp, veldur
átak skrúfunnar því, að bolur flugunn-
ar snýst í gagnstæða átt við snúning
skrúfunnar. Til þess að koma í veg
fyrir þetta er á mörgum hvirfilvængj-
um, m. a. á Sikorsky-flugunni og Bell-
flugunni, komið fyrir lítilli skrúfu
aftast á hlið flugunnar, sem vinnur
á móti þessum snúningi. (Sjá rnynd
1). Með því að stilla átak þess-
arar skrúfu má stjórna því, hvort
flugan heldur sömu stefnu eða snýst
til annarrar hvorrar hliðarinnar.
A nokkruin hvirfilvængjum eru not-
aðar gagnundnar skrúfur (contra-rotat-
ing airscrews). Eru þá tvær skrúfur