Þróun - 24.03.1943, Blaðsíða 5
Þ R Ó U N
5
íslenzki þjóðfáninn.
Um aldir og ár liafa Íslending-
ar verið að berjast fyrir fullu
frelsi þjóðinni til handa. öllum
sönnum föðurlandsvinum er þrá-
in eftir frelsi hjartans mál.
Viðurkenndur þjóðfáni er eitt
augljósasta tákn fullkomins sjálf-
stæðis — fáni sem nota má hvar
í heiminum sem er. Barátta Is-
lendinga fyrir sérstökum þjóð-
fána var bæði löng og hörð. Því
miður er okkur Islendingum
margt betur gefið, en að vera
sammála um hlutina, og sem við
mátti búast voru ekki allir á eitt
sáttir, er velja skyldi slíkt þjóð-
areinkenni.
Bláhvíti fáninn hlaut rniklar
vinsældir og voru fögur kvæði
orkt til hans. — Hann var talinn
táknrænn og hreinn, og sýna svo
vel það, sem mest væri áberandi
í íslenzkri náttúru. Víst var það,
að þessi fáni var fallegur, og fag-
urt og þróttmikið kvæði Einars
Benediktssonar, sem hann orkti
til hans: „Rís þú unga Islands-
merki — upp með þúsund radda
hrag“, en Einar átti hugmyndina
að þessari l'ánagerð. En ]>essi
fáni var ekki talinn nógu auð-
kennilegur frá fánum Svía og
Grikkja, en þess er mikil þörf,
einkum á styrj aldartímum, þar
sem mest veltur á því, að hver
fáni verði sem bezt aðgreindur
frá öðrum.
Matthías Þórðarson fornminja-
vörður átti hugmyndina að þrí-
lita fánanum, þeim sem nú er
þjóðfáni okkar.
Árið 1914 úrskurðaði konungur
hann sem löggiltan þjóðfána Is-
lands og höfum við ástæðu til að
vera honum þakklátir fyrir það.
Þessi fáni hefir orðið allri
þjóðinni kær. Hann hefir verið
sjómönnunum sverð og skjöldur
og varðveitt þessa litlu fámennu
þjóð frá miklu mann- og eigna-
tjóni í þessum hildarleik, sem nú
er háður í heiminum. Hann er
fegursti og óflekkaðasti þjóðfán-
inu sem blaktir á heimshöfunum.
Hann er táknræn mynd af Is-
landi í öllu —- bláma himinsins
og fjallanna, tákn jöklanna og
cldsins i iðrum fósturj arðarinnar,
og hann er tákn hinnar óslökkv-
andi frelsisþrár, sem í öllum
sönnum Islendingum býr. — Við
vonum, að þessi fáni verði ætíð
hreinn og óflekkaður og megi
hef j ast til vegs og virðingar með-
al þjóðanna. — Æska þessa lands
elskar þennan fána og vonast
eftir, að henni muni auðnast að
vinna marga sigra undir bonum
á komandi tímum.
S. Hjörleifsson.
★
Árshátíðin.
Með ágóða þeim, sem fæst af
árshátíðinni að þessu sinni, lang-
! ar Gagnfræðaskólann til að
i leggja fram lítinn skerf til söfn-
i unarinnar út af Þormóðsslysinu.
Einnig langar okkur til að sýna
hug okkar til sundlaugarmálsins
með einhverri smáupphæð eftir
| okkar getu. Þar að auki erum
i við eins og venjulega að safna
fé til skólaferðalags okkar, en
nú mun það verða ærið fjárfrekt
að ferðast með 30 manna. hóp.
Af þessum sökum öllum von-
um við, að bæjarbúar virði það
á betri veg og bregði okkur ekki
um okur, þótt inngangseyrir sé
nokkuð hár. — Aftur á móti
höfum við aldrei lagt meira í und-
irbúning skemmtunar okkar og
vonumst því eftir, að fólk
skemmti sér vel.
★
Skemmtiskrá.
Oft vill það valda nokkurri
truflun á skemmtunum, þegar
fólk er að hvíslast á og spyrjast
fyrir um, hver þessi og hinn sé,
sem með skemmtiatriði fer. Sér-
staklega er þetta afleitt, þar sem
mjög margir fara með skemmti-
atriði eins og er á skólahátið-
inni.
Þess vegna hefir verið lagt í
þann kostnað að prenta sérstaka
skemmtiskrá, þar sem sjá má
nöfn allra þeirra, sem skemmta.
Verður skemmtiskráin seld á-
samt aðgöngumiðum, og áður en
skemmtunin hefst í hvert sinn.
R(
.úgur er meðal hollustu
næringarefna. — Gefið börn-
um yðar, og etið sjálf, meira
af rúgbrauði.
Reynið rúgbrauð l'rá Bök-
unaríélagi Isfirðinga.
Bæði seydd og óseydd.
Ekkert brauðgerðarhús á
Vesturlandi framleiðir nú
meira af þessari brauðteg-
und en Bökunarfélagið.
Nýtízku tæki til brauðgerðar.
Ef þið viljið vera vel klædd
þá kaupið Herra- og JDömu-
frakka í
Verzlunin P A RI S.
Ef þið viljið borða góðan mat
þá kaupið matvöru í
Verzlunin Bræðraborg.
Bíó Alþýðuhússins
sýnir
Föstudag
Laugardag og
Sunnudag kl. 9
Flóttamennirnir.
Spennandi amerísk mynd frá
Metro.
Aðalhlutverkin leika:
Clark Gable
og
Joan Graford.