Þróun - 15.12.1951, Blaðsíða 1
Brá&um koma blessuö jólin,
börnin fara að hlakka til.
o.s.frv.
Senn koma jólin og kveikt verður
á jólakertunum. Undirbúningurinn
fyrir jólin er mikill, gert er hreint,
allt fægt og fágað, til þess að það
geti verið fínt og hreint á sjálfum
jólunum, keyptar eru jólagjafir, til
þess að gleðja þá nánustu og margt
fleira, og er þetta allt gott og bless-
að. En höldum við jólin hátíðleg á
réttan hátt, og hvers erum við í
raun og veru að minnast á jólunum,
og eru það í raun og veru allir, sem
gera sér fulla grein fyrir og hugsa
um þann mikla atburð, er gerðist
á jólunum? Eru jólin aðeins nokkr-
ir dagar, sem fólk fær frí frá störf-
um og getur borðað nóg af kræs-
ingum, lesið og skemmt sér? Nei,
það eru ekki nærri allir, sem gera
sér grein fyrir hátíðleik jólanna
og haga sér eftir því.
Það að koma í kirkju á jólunum
og hlusta á orð prestsins verður til
þess, að okkur finnst eins og við
sjáum fyrir okkur, þegar frelsarinn
fæddist og var 'agður í jötu, komu
vitringanna frá Austurlöndum og
þann fögnuð, er þeir fylltust við að
sjá hann.
Enn í dag fyllumst við fögnuði
og innri gleði og ljómi er í augum
fólksins, ljómi, sem maður sér ekki
dags daglega og einnig ríkir friður
yfir sálum okkar. Sumum okkar
finnst, að án kirkjugöngu séu jólin
lítils virði, því að einhver innri til-
finning hefur okkur yfir það
hversdagslega. Tilfinning þessi
fæst ekki með gjöfum, sem að vísu
er gaman að fá, en eru lítilsvirði
miðað við hina miklu gleði og ró
kirkjuferðarinnar, og ættu flestir að
sækja kirkju á jólunum, svo að þeir
geti átt raunveruleg jól, sem þeir
munu seint gleyma.
Einnig ættu allir að stuðla að því,
að þessi hátíð geti orðið öllum á
heimili þeirra til sannrar ánægju.
Ekki aðeins með því að gefa gjafir,
heldur og einnig að umgangast
aðra, þannig að engin hætta sé á,
að árekstrar eigi sér stað. Ef
allir stuðla að þessu, þá er enginn
vafi á því, að það mun ekki aðeins
ríkja jólafögnuður hið ytra hjá oss
heldur og einnig hið innra.
GLEÐILEG JÓL!
]llllllllll!lllllMIIII!lllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII!IIIII!llllir
= Gagnfræðaskólanemendur |
| senda bæjarbúum |
| sínar beztu jólaóskir
og óska þeim
gæfu og gengis |
á komandi ári. =
| Málfundafélagið Hviöt. |
ii 5
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiliiiiiiiiiniiiiuiiiiuiu
LANDSBÓKASAFNj
18668.1 !
ÍSLANílS I