Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR 9. OKTÓBER 2020 DV TRUMP, COVID OG BARÁTTAN Hver skellurinn á fætur öðrum skekur herbúðir Donalds Trump þessa dagana. Nú blasir við allt önnur kosningabarátta en hann hafði vonast til að geta háð. Demókrat- ar geta náð stjórn á Hvíta húsinu og báðum deildum þingsins með þessu áframhaldi. Donald Trump Bandaríkjaforseti á skrifstofu sinni á hersjúkrahúsinu Walter Reed í útjaðri Washingtonborgar. MYND/GETTY Þ egar rétt rúmar þrjár vikur eru til kosninga í Bandaríkjunum blasir við kjósendum þar undar- legur og gjörbreyttur veru- leiki frá því fyrir viku síðan. Um síðustu helgi greindi for- setinn, Donald Trump, frá því að hann hefði greinst með CO- VID-19. Í vikunni gerðust svo atburðir sem fáa hefði getað órað fyrir. Trump lagðist inn á Walter Reed-hersjúkrahúsið í útjaðri Washingtonborgar skömmu síðar. Ekki lauk sögunni þar, en á Twitter og í sjónvarps- útsendingu frá forsetaskrif- stofu sjúkrahússins sagði Trump meðal annars að hann hefði það „stórkostlega“, að honum hefði „ekki liðið bet- ur í mörg ár“, að ekki væri ástæða til að óttast COVID, og að COVID ætti ekki að stjórna lífi fólks. Líklegt er talið að rót smits- ins sem nú gengur manna á milli innan Hvíta hússins sé viðburður sem Trump hélt í Rósagarðinum við Hvíta húsið þann 26. september. Til- kynnti Trump þar tilnefningu hans á Amy Coney Barrett í sæti hæstaréttardómara sem losnaði við fráfall Ruth Bader Ginsburg fyrr í mánuðinum. Að minnsta kosti tíu hafa greinst með smit sem voru á þeim viðburði. Fyrir utan hinn augljósa skell að greinast með veiru sem dregið hefur yfir 200.000 Bandaríkjamenn til dauða á örfáum mánuðum, þá er pólitíski skellurinn Trump þungur. Nánast frá upphafi faraldursins hefur Trump gert lítið úr honum og tillög- um sérfræðinga að viðbrögð- um, gert lítið úr viðbrögðum Demókrata í borgum eins og New York, sem fór mjög illa úr faraldrinum, og hæðst að grímunotkun mótframbjóð- anda síns, Demókratans Joes Biden. Skellur á skell ofan Pólitískur skellur Trumps er margþættur. Fyrir utan þá neyðarlegu stöðu að vera nú smitaður eftir allt sem að ofan var lýst, þá eru þrír Repúblik- anar í öldungadeildinni smit- aðir af COVID. Er nú ljóst að fresta verður nefndarfundum í öldungadeildinni sem fara þurfa fram samkvæmt reglum um staðfestingu á tilnefndum dómurum í Hæstarétt. Óvíst er hvenær nefndin getur kom- ið saman, en ljóst er að Trump á mikið undir því að nefndin klári sitt verk sem allra fyrst. Það yrði mikill sigur fyrir Trump að koma Barrett í dómarasætið fyrir kosningar enda myndi það bæði styrkja stöðu hans meðal íhaldssama og kristilega vængs flokks hans, og það mun óneitanlega setja þau málefni sem gerir Barrett umdeilda aftur á dag- skrá. Tæknilega hafa Trump og samflokksmenn hans til 20. janúar á næsta ári til að klára staðfestinguna á Barrett, og fjögur ár í viðbót skyldi Trump sigra. Þó er ljóst að þeir munu reyna allt til þess að klára dæmið fyrir 3. nóv- ember, kjördag. Trump sárvantar einmitt að koma málefnunum á dag- skrá og færa umræðuna frá COVID. Sem fyrr segir eru 200.000 látnir og milljónir til- fella um allt landið. Hagkerfi landsins hefur fengið mikinn skell og eftir að myndir birt- ust af honum sjálfum, bindis- lausum, bersýnilega veikum, þá kunna margir Bandaríkja- menn að spyrja sig: Ef hann getur ekki verndað sjálfan sig, hvernig getur hann verndað mig? Þriðji pólitíski skellurinn er að hann er nú fastur inni. Trump hefur frá upphafi sótt styrk sinni í fjölmenna fjölda- fundi. Þar nýtur hann sín ber- sýnilega best, umkringdur stuðningsmönnum og í þeim kringumstæðum hefur hann vakið hvað mesta athygli. Það sýnir sig ef til vill best í því að svo til öll „stóru mál“ Trumps í kosningabaráttunni 2016, veggurinn á landamærunum við Mexíkó, harðari innflytj- endastefna, að vernda banda- rísk störf og tryggja þjóðinni hagstæðari viðskiptasamn- inga voru öll tilkynnt á þeim vettvangi. Kosningabarátta Trumps fer nú að mestu leyti fram á Twitter. Trump hefur meira að segja þurft að draga úr auglýsingaherferð sinni sök- um fjárskorts hjá framboðinu. Forskot Bidens eykst Trump hefur allt árið átt í vök að verjast og hefur fylgi Bidens frá formlegri til- nefningu hans sem forseta- frambjóðandi Demókratanna óslitið mælst hærra en fylgi Trumps. Trump mátti því alls ekki við atburðum vikunnar. En eins og DV fór yfir í síð- asta blaði þá eru það fyrst og fremst niðurstöður einstakra ríkja sem skipta máli. Trump varð jú forseti árið 2016 með minnihluta atkvæða. Því er ekki úr vegi að skoða hvernig staða Trumps er eftir ríkjum. Eins og svo oft áður eru allar líkur á því að endurkjör Trumps muni standa og falla með Flórída. Miðað við skoð- anakannanir sem gerðar voru eftir ævintýralegar kappræð- ur kappanna í þarsíðustu viku er Biden að auka forskot sitt um allt landið. Eftir stendur að nánast óhugsandi er að Trump sigri í kosningunum án sigurs í Flórída. Það er þó ekki nóg. Hann þyrfti að snúa Pennsylvaníu, Georgíu, Ohio, Michigan og Norður-Karól- ínu til sín. Það mun reynast honum þrautin þyngri. Skoð- anakannanir sýna Biden með meirihluta í öllum þessum ríkjum. Ólíkindatólið Trump er þó líklegt til alls og ljóst að Repúblikanar hafa ekki, og munu ekki, gefast upp. Leggja kapp á að halda í öldungadeildina Meirihluti í öldungadeildinni er jafnframt undir í næstu kosningum. Benda kannanir til þess að Repúblikanar gætu verið að missa meirihluta sinn í efri deildinni. Fari svo að Re- públikanar missi Hvíta húsið og öldungadeildina fengi Biden nokkuð öflugt veganesti inn í fyrsta kjörtímabil sitt. Barack Obama, forveri Trumps í Hvíta húsinu, fékk sams konar vega- nesti en þótti hafa nýtt sér það illa. Síðasti Demókratinn til að njóta þess munaðar á undan Obama var Bill Clinton á sínum fyrstu tveimur árum í embætti, 1993-1995. Kosið er um 35 sæti í öld- ungadeildinni að þessu sinni og benda skoðanakannanir til þess að Demókratar eigi vísan sigur í 14 þeirra og Repúblik- anar í 18. Fleiri Repúblikanar eru nú að verja sæti sín en Demókratar og kosningarnar því Repúblikana að tapa. Sam- kvæmt skoðanakönnunum eins og þær blasa við í dag eiga Demókratar 49 sæti vís og Repúblikanar 48. Of lítill munur er á frambjóðendum í Montana, Iowa og Norður- Karólínu til að hægt sé að spá fyrir um úrslitin með nokkru móti. Mega íbúar þessara þriggja ríkja því búast við að sjá öll auglýsingapláss í blöð- um, sjónvarpi og neti undir- lögð kosningaáróðri. n Heimir Hannesson heimir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.