Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 17
EYJAN 17DV 9. OKTÓBER 2020
Á meðan
Íslendingar
herða
sóttvarnir eru
Svíar að slaka
á þeim.
MYND/GETTY
ásökunum. Hafi hjarðónæmi
verið markmiðið þá hafi ekk-
ert verið gert til að spyrna á
móti faraldrinum.
Hins vegar telur hann ekki
raunhæft að miða allar að-
gerðir og stefnumótun að
mögulegu bóluefni en alls
kostar óvíst sé hvenær slíkt
bóluefni verði tilbúið til dreif-
ingar. Að hans mati er veiran
komin til að vera hér næstu
árin og þurfi því að miða að-
gerðir að þeim raunveruleika
og læra að lifa með henni.
Áhættuhópar í forgang
Helst er sænskum yfirvöldum
umhugað um áhættuhópa. En
þau hafa viðurkennt að þeim
hafi til að byrja með mistekist
að vernda þá hópa með full-
nægjandi hætti.
Mikill meirihluti þeirra sem
látist hafa í Svíþjóð af völdum
veirunnar voru íbúar á öldrun-
arheimilum eða einstaklingar
sem nutu umönnunar í heima-
húsum. Tegnell hefur sagt að
ef hann gæti breytt einhverju
í viðbrögðum Svíþjóðar við
veirunni þá væri það að hlúa
betur að áhættuhópum við
upphaf faraldursins.
Íslenski viðmælandi DV í
Svíþjóð segir að hann hafi
tekið eftir gagnrýni á yfirvöld
við upphaf faraldursins enda
gekk veiran hratt fyrir landið
og gífurlega margir létust.
Hins vegar hafi umræðan
undanfarið verið á aðra leið.
Ánægja sé með þær mark-
vissu og íhaldssömu aðgerðir
sem hafi verið ráðist í enda
megi sjá það nú á stöðunni.
Smitstuðull hafi lækkað mikið,
smituðum hafi fækkað sem og
þeim sem þurfi að leggjast inn
á gjörgæslu.
„Það hafa ekki orðið mark-
tækar breytingar á þessu
smitgengi síðustu vikunnar.
Menn héldu að þetta færi aft-
ur af stað í haust þegar skól-
arnir byrjuðu aftur og annað.
En það hefur ekki orðið enn.
Þetta er öðruvísi ferill á út-
breiðslunni en eins og í til
dæmis Danmörku og Noregi.
Þannig að menn eru að velta
fyrir sér hverjar séu möguleg-
ar ástæður og það eru ýmsar
skoðanir á því.“
Hann segir eðlilegt að
margir horfi nú til Svíþjóðar
og velti fyrir sér hvort sænska
leiðin hafi kannski ekki verið
jafn galin og menn héldu í
upphafi.
„Það er að beinast ákveðið
sviðsljós að Svíþjóð. Menn
eru að velta fyrir sér hvaða
aðgerða við höfum gripið til
og hvort hægt sé að læra eitt-
hvað af þeim. Eins hvort hægt
sé að líta á Svía sem einhverja
fyrirmynd núna.“
Viðmælandinn telur fulla
ástæðu til að líta til Svíþjóðar
og þeirrar stefnu sem hefur
verið tekin þar. Segist hann
geta rétt ímyndað sér þá
þreytu sem Íslendingar hljóti
að finna fyrir þegar nýjar
aðgerðir eru boðaðar svo til
vikulega án skýrrar stefnu
til frambúðar. Það hljóti að
skapa vissa undiröldu. Núna
sé ástandið gott í Svíþjóð.
„Ástandið hér er nokkuð
gott og ég verð bara að segja
að mér líður vel hér og er
nokkuð afslappaður.“
Það er áhugavert að bera
saman íslensku og sænsku
leiðina. Þeirri íslensku var í
upphafi fagnað en svo hallaði
hratt undan fæti í sumar og
mörg önnur ríki í heiminum
eru nú búin að skrá fyrrver-
andi fyrirmyndarríkið Ísland
á rauðan lista.
Svíþjóð sem var gagnrýnd
í upphafi fyrir alltof mikla
af slöppun virðist nú ætla að
verða næsta fyrirmyndarríki.
Hins vegar, bendir við-
mælandinn á, er ekki búið að
gera upp faraldurinn og hann
er langt frá því að heyra for-
tíðinni til. Tíminn einn muni
því leiða í ljós hvaða leið hafi í
reynd verið best. Til að komast
að því þurfi heimurinn fyrst
að komast í gegnum COVID.
Og sá tími er enn ekki runninn
upp og mun líklega ekki gera
það neitt á næstunni. n
Ástandið hér er nokkuð gott
og ég verð bara að segja að
mér líður vel hér og er nokk-
uð afslappaður.
Anders
Tegnell
sóttvarnalæknir
Svíþjóðar