Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Side 21
HANNES STEINDÓRSSON Hannes er vinsæll fasteignasali og starfar hjá fasteignasölunni Lind. Hannes er heimakær, vill hafa minimalískt og smart í kringum sig og stundar líkamsrækt af kappi. SKÚLI ANDRÉSSON Skúli er draumurinn sem læðist að sögn vina hans. Bæði er maðurinn virki- lega skemmtilegur og eldklár. Skúli er kvikmyndagerðarmaður og ljósmynd- ari og hefur starfað bæði hjá RÚV, Reykjavík studios og hjá Össur. Hann er frá Djúpavogi og þeir sem þekkja til segja hann sannkallaðan draum. Fyndinn, flippaður og fagur. SÖLVI SNÆR MAGNÚSSON Sölvi er þekktur smekkmaður og gekk lengi undir nafninu Sölvi í Sautján, eftir að hafa unnið hjá fyrirtækinu í mörg ár, meðal annars sem listrænn stjórnandi. Síðan stofnaði hann tískuvöru- verslunina Retro, stýrði auglýs- ingasölu hjá 365 og starfaði við hönnun hjá Ellingsen. Í dag er Sölvi einn eigenda Laundromat Café við Austurstræti. EMIL PÁLSSON Knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson frá Ísafirði leikur með norska liðinu Sandefjord, en liðið leikur í úr- valsdeildinni. Emil lék með FH áður en hann fór í at- vinnumennsku og hefur í gegnum tíðina brætt nokkur hjörtu með breiðu brosi og fögrum lokkum. Svo er bara spurning hvort hann lokkar til sín sanna ást til Nor- egs? Heyrst hefur að húðflúrin, þvottabrettið, hvítar tennur og góður fatasmekkur Emils, sé bara toppurinn á ísjakanum. RAGNAR AGNARSSON Leikstjórinn og kyntröllið Raggi Agnars er ekki leiðinlegur. Raggi er einn eigenda SagaFilm og hefur starfað við kvikmynda-, auglýsinga- og sjónvarpsþáttagerð um árabil. Raggi stundar líkamsrækt af kappi, drekkur ekki áfengi, er lunkinn í golfi og hvers manns hugljúfi. MYND/FACEBOOK MYND/AÐSEND MYND/INSTAGRAM MYND/INSTAGRAM FÓKUS 21DV 9. OKTÓBER 2020 M Y N D /T W IT T E R

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.