Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 30
H æhæ. Ég á leyndar-mál sem ég hef ekki sagt kærustunni minni frá. Við höfum verið saman í eitt og hálft ár, því lengra sem líður á sam- bandið því erfiðara finnst mér að koma orðum að því. Leyndarmálið tengist fortíð minni, en ég fékk dóm og sat inni í 4 mánuði. Ég held að þetta muni koma henni mjög mikið að óvart og svo er ég að sjálfsögðu skíthræddur um að missa hana. Í dag gengur allt svo vel hjá mér að ég einfaldlega nenni ekki að „skemma” allt með því að henda þessari bombu á hana, en svo óttast ég að hún frétti þetta frá öðrum. Það væri skelfilegt. Kær kveðja, Einn í vanda. Enginn er vondur Blessaður. Já, þú ert vissu- lega í vanda staddur, en það er ekkert svo vandasamt að ekki sé hægt að finna á því bærilegar lausnir. Spurning þín ber þess merki að þér er annt um að koma hreint fram og nú þarf bara að finna bestu lausnina svo það sé framkvæmanlegt. Í starfi mínu hef ég lært að það er enginn vondur. Punkt- ur. En ástæður fyrir hegðun okkar geta verið margvís- legar, stundum gáfulegar og stundum ekki. Við búum yfir mismunandi reynslu, karakt- er og hæfni, og saman hefur þetta allt fjölþætt áhrif á það sem við gerum og gerum ekki. Stundum þarf fólk að taka ábyrgð á gjörðum sín- um, biðjast afsökunar, læra af þeim og/eða reyna að endurtaka ekki leikinn. Það lenda allir í því, en misilla. Af spurningu þinni að dæma hefur þú snúið við blaðinu og breytt til betri vegar, væri ekki gott að leyfa kærustunni þinni að meta það við þig? Ég ímynda mér að þetta hafi rúllað af stað eins og snjóbolti sem vex svo bara og dafnar og því stærri sem hann verður, því erfiðara er að stöðva boltann? Það segir okkur líka að það verður ekkert auðveldara að stinga á kýlið með tímanum. Hvað þarftu til þess að opna á þessa umræðu? Getur ein- hver aðstoðað þig? Getur þú undirbúið kærustuna þína undir fréttirnar? Örugg tengsl mikilvæg Heiðarleikinn er svo mikil- vægur í ástarsambandi. Mögulega gæti verið ráð að segja kærustunni þinni að þú viljir koma hreint fram og að þú þurfir að segja henni dá- lítið, en að þú eigir erfitt með að koma því frá þér. Þá gæti hjálpað að tína til hvaða af- leiðingar það eru sem þú ótt- ast og mögulega að þú viljir fá aðstoð við að gera þetta á eins góðan hátt og hægt sé. Það kæmi mér ekki að óvart að kærastan þín myndi þiggja þá aðstoð með þökkum. Ég á pínu erfitt með að hjálpa þér þar sem ég þekki ekki forsögu þína eða fyrir hvað þú varst dæmdur, en það gæti þá kannski reynst vel að byrja á að útskýra óskrifaða kafla úr fortíð þinni. Hvað leiddi til þess að þú varst dæmdur? Í hvaða hugleið- ingum varstu? Þessar upp- lýsingar geta dempað höggið hennar. Fyrir mér hljómar þetta eins og þið hefðuð gott af tækniæfingum sem einfalda ykkur að ræða saman, opna ykkur og eiga í nauðsyn- legum samskiptum. Slíkar æfingar gætu svo leitt til þess að þið mynduð byggja upp nægilegt traust til þess að þú gætir komið leyndarmálinu þínu frá þér með öruggum hætti. Örugg tengsl í sambandi snúast um að báðir aðilar séu öruggir til að tjá líðan sína og þarfir. Það er hægt að byggja upp örugg tengsl milli fólks, en það er tækni sem krefst æfingar. Hægt er að bera þetta saman við að ná góðri golfsveiflu eða þungu snatch-i í ólympskum lyftingum. Vilji og styrkur er eitt, en tæknin er svo annað. Þar getum við hjónabandsráðgjafar komið að góðum notum. Nýta fyrri reynslu Þekking þín er dýrmæt. Þú þekkir þína sögu, kærustuna þína og ykkar samskipti. Hverjir vissu af dómnum þín- um á sínum tíma? Hverjum hefur þú sagt leyndarmálið? Hvað gekk vel og hvað ekki í því samhengi? Getur þú nýtt þá reynslu? Er kærastan þín betur upplögð á ákveðnum tímum fram yfir aðra? Væri ráð að ræða við hana á sér- stökum stað? Getur einhver sem þekkir ykkur bæði gefið þér mat á stöðunni? Að lokum, án þess að gera lítið úr vandamálinu þínu, þá miklum við stundum fyrir okkur það sem framkallar hjá okkur óvissu. Það heitir kvíði og kvíðann þarf að hugsa til enda. Hvað er það versta sem getur gerst? Hvað gerir þú þá? Hver myndi þá hjálpa þér? Hverjar eru líkurnar á því versta? Hvað væri það besta í stöðunni? Þú ert sjálfur mjög vold- ugur þegar kemur að eigin hugsunum og það væri þér afar hollt að sefa kvíðann og óöryggið með því að svara ósvöruðum spurningum og útrýma þannig óvissunni. Þá ert þú sjálfur betur und- irbúinn þegar kemur að því að segja sannleikann, örugg- ari og veist í grófum dráttum hverjar afleiðingarnar geta orðið. Þannig munt þú rúlla þessu verkefni upp, hvernig svo sem það endar! Gangi þér sem allra best. n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. 30 FÓKUS 9. OKTÓBER 2020 DV Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem óttast að segja kærustunni leyndarmál úr fortíð sinni. FYRRVERANDI FANGI ÓTTAST AÐ SEGJA KÆRUSTUNNI FRÁ Sérfræðingur svarar MYND/HEIÐA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.