Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 38
38 SPORT 433 9. OKTÓBER 2020 DV MIKIÐ GENGIÐ Á Í LÍFI KJARTANS HENRYS UNDANFARNAR VIKUR Viðtal sem Kjartan Henry Finnbogason fór í við danska fjölmiðla fór illa í forráðamenn félagsins, íslenski sóknarmaðurinn er harður í horn að taka innan sem utan vallar og segir hlutina umbúðalaust. Eftir farsælan feril í atvinnumennsku styttist í heimkomu. Hetja Vejle fyrir nokkrum vikum, en Kjartani var síðan hálfpartinn sparkað út skömmu síðar. MYND/GETTY Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Það gekk ýmislegt á í lífi Kjartans Henrys Finnbogasonar í liðinni viku; þessi 34 ára gamli at­ vinnumaður í knattspyrnu rifti samningi sínum við Vejle í Danmörku seint á mánudags­ kvöld og degi síðar gekk hann í raðir Horsens skammt frá. Kjartan þekkir hverja þúfu hjá Horsens, eftir farsæla dvöl þar frá 2014 til 2018. Mik­ il læti voru á bak við tjöldin þegar Kjartan yfirgaf Vejle, en hann treystir sér ekki enn til að fara út í smáatriði. Framkoma forráðamanna Vejle vekur mikla furðu meðal stuðningsmanna félagsins, framherjinn hafði leikið með félaginu í eitt og hálft ár og raðað inn mörkum. Það liggur því í augum uppi að eitthvað annað en frammistaða Kjart­ ans innan vallar var ástæða þess að félagið ákvað allt í einu að hætta að spila honum. „Það er ýmislegt búið að ganga á, ég ætla samt að sleppa því að fara út í smáatr­ iði á þessu augnabliki. Stað­ reyndin er hins vegar sú að ég kom til Vejle þegar liðið var nánast fallið úr dönsku úrvals­ deildinni. Ég átti að koma og reyna að hjálpa liðinu að halda sér uppi, en það tókst ekki. Ég tók ákvörðun um að fram­ lengja samninginn og hjálpa liðinu að komast upp, það tókst á endanum eftir langt og strangt kórónaveiru­tímabil. Ég endaði sem markahæsti leikmaður liðsins og allt gekk í blóma, síðan æxluðust hlut­ irnir þannig að minna krafta var ekki óskað. Það var ýmis­ legt sem gekk á sem ég get ekki farið út í,“ sagði Kjartan þegar hann var spurður út í þennan óvænta viðskilnað. Ekki í þessu til að eignast vini Eftir fyrsta leik tímabilsins fyrir örfáum vikum fór Kjart­ an Henry í viðtal við danska fjölmiðla, þeir furðuðu sig á því að hann hefði byrjað sem varamaður. Íslenski framherj­ inn sagði hlutina umbúðalaust: „Þetta er ótrúlega flókið, eig­ andi Vejle er ekki danskur, það er ekki algengt í Danmörku. Það þótti ekki heillandi að vera með 34 ára gamlan fram­ herja, sem er engin söluvara lengur. Það var eitthvað annað en frammistaðan á vellinum sem hafði áhrif á spilatíma. Ég er eins og ég er, ég er ekki í þessu til að eignast vini, heldur til að ná árangri innan vallar. Þegar ég er spurður þá svara ég á hreinskilinn hátt, ég fór í viðtal eftir fyrsta leikinn þar sem ég var spurður út í spila­ tímann og var heiðarlegur. Það var ekki tekið vel í það hjá þeim sem stjórna hjá félaginu.“ Eftir viðtalið sem Kjartan fór í fann hann að hann átti enga leið til baka, hann segir ýmislegt hafa gengið á bak við tjöldin, sem ekki þoli dagsljós­ ið alveg strax. „Ég fann það að þetta var búið eftir það viðtal, það var ýmislegt sem gerðist eftir það sem ég get farið út í síðar. Ég veit að það er öllu snarað yfir á dönsku í dag, ég verð því að passa mig á hvað ég segi.“ Eiginkonan með í för þegar samningi var rift Helga Björnsdóttir, eiginkona Kjartans, var með í för þegar hann hélt upp á skrifstofu Vejle seint á mánudagskvöld til að rifta samningi sínum. Helga er menntaður lögfræð­ ingur og gat því séð til þess að allt væri eftir laganna bók­ staf. Degi síðar skrifaði hann undir hjá Horsens, sem líkt og Vejle leikur í efstu deild. „Það var ýmislegt í boði en þetta gerðist allt mjög fljótt, ég fór niður á völl hjá Vejle 23:30 á mánudagskvöld, með eiginkonu minni sem er lög­ fræðingur, til þess að skrifa undir riftun á samningi, degi síðar skrifaði ég undir hjá Horsens og fór á mína fyrstu æfingu. Það kom til greina að koma heim til Íslands en ég var ekki tilbúinn til þess núna. Ég skoraði mikið á síð­ ustu leiktíð í 1. deildinni og ef maður getur skorað þar, þá á maður að geta skorað í efstu deild. Mér finnst ég eiga það skilið eftir söguna hérna og það sem hefur gengið á, að gefa allt sem ég á í eitt tíma­ bil til viðbótar. Það var fullt af möguleikum, en ekkert lið frá Íslandi sem hafði samband við mig.“ Heimkoma á næsta ári Kjartan á tvö börn sem þekkja lítið annað en að búa í Danmörku, hugurinn leitar þó heim og gæti Kjartan spilað hér á landi um mitt næsta sumar. Kjartan hefur alla tíð leikið með KR hér á landi og sögur um að hann snúi heim í Vesturbæinn heyrast reglu­ lega. „Strákurinn okkar sem er fjögurra ára er fæddur hérna í Danmörku, dóttir mín er 9 ára og hefur verið hér í fimm ár og er nánast dönsk. Við erum alltaf Íslendingar og komum heim, konan mín er komin í flotta vinnu. Það kæmi mér ekki á óvart ef heimkoman yrði næsti sumar þegar samningurinn er frá. Ég átti frábær ár með Hor­ sens síðast, við fórum úr því að verða gjaldþrota yfir í það að verða flottur klúbbur í úr­ valsdeild. Stærsta ástæða þess að ég valdi að koma hingað aftur er að ég er fimmtán mínútur að keyra á æfingu. Mér líður eins og ég sé að loka hringnum, ég kom hingað frá KR 2014 og er núna að loka hringnum erlendis aft­ ur hérna. Mér finnst eitthvað fallegt við það,“ sagði þessi öflugi framherji að lokum. n Ég veit að það eru öllu snarað yfir á dönsku í dag, ég verð því að passa mig á hvað ég segi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.