Austri - 09.09.1993, Blaðsíða 1
38. árgangur.
Egilsstöðum, 9. september 1993.
32. tölublað
Tilboð opnuð
Vélás hf. með lægsta tilboðið
í veg að fyrirhugaðri brú á
Jökulsá á Dal
Á mánudaginn voru opnuð til-
boð í lagningu vegar að fyrirhug-
aðri brú yfir Jökulsá á Dal. En á-
ætlað er að hefja sem fyrst vinnu
við nýbygginguna. Kostnaðará-
ætlun hljóðaði upp á 69 milljónir
465 þúsund. Vélás Egilsstöðum
bauð lægst í verkið, 41 milljón 147
þúsund og 600 krónur, eða 59 %
af kostnaðaráætlun. Héraðsverk
bauð næst lægst 43 milljónir 731
þúsund krónur, eða 63 % .
Tólf aðilar buðu í verkið.
Tilboðs- Hlutfall af
upphæð kostnaðaráætlun
Arnarfell hf. 78.822.400 114%
G.Hjálmarsson 70.607.300 102 %
Vélal. Sigga Þór hf. 67.500.400 97%
V. Brynjólfsson 67.374.100 97%
Vökvavélar hf. 59.794.400 86%
Borgarverk hf 58.471.700 84%
Jarðverk sf. 54.661.100 79%
Átak hf. 54.051.300 78%
Klæðning hf. 53.843.000 78%
Njörður sf. 53.263.200 77%
Héraðsverk hf. 43.731.000 63%
Vélás hf. 41,147.600 59%
Reiknað er með að gengið verði
frá samningum fljótlega þar sem
stefnt er að því að klára veginn
áður en byrjað verður á byggingu
brúarinnar á næsta ári.
MM
Hlutfall ársverka á veg-
um hins opinbera
29% áHéraði
Byggðastofnun sendi nýlega frá
sér bækling “ Breyttar áherslur í
byggðamálum” sem í eru tillögur
að stefnumótandi byggðaáætlun
1994-1997
Þar kemur fram að milli áranna
1985 og 1990 fjölgaði ársverkum
hjá opinberum aðilum um tæp
4000. Athygli vekur hve þetta
hlutfall er hátt á Fljótsdalshéraði.
Um 29 % allra vinnandi manna
(ársverk) eru við störf á vegum
hins opinbera á Héraði.
Þó er hlutfallið hvergi hærra en á
Reykjavíkursvæðinu, má segja að
þriðji hver Reykvíkingur starfi hjá
því opinbera. Mest hefur aukning-
in orðið í skólakerfinu á höfuð-
borgarsvæðinu. Samdráttur hefur
orðið í fjölda starfsmanna í grunn-
skólum á landsbyggðinni. Telja
skýrsluhöfundar að upp úr þessu
fari að draga úr hinum öra vexti
sem hefur verið í opinberri þjón-
ustu, þó telja þeir að vænta megi
aukningar í félagslegri þjónustu.
Eru uppi áform um að auka þjón-
ustu við fatlaða á næstu árum og
segir í skýrslunni að sú þjónusta
muni verða dreifð um landið.
I skýrslunni kemur fram að hlut-
ur hins opinbera á vinnumarkaði
nemur yfirleitt um fimmta hverju
starfi. MM
Vopnafjörður:
Ný verslun, Kauptún,
opnuð
í ágúst sl. opnuðu hjónin Árni
Róbertsson og Guðrún Stein-
grímsdóttir, matvöruverslun að
Búðaröxl 3 þar sem áður var tré-
smíðaverkstæði kaupfélagsins.
Að sögn Árna er markmiðið með
þessum rekstri að reyna að ná niður
verði á öllum nauðsynjavörum á
staðnum. Aðspurður um framhald-
ið sagðist hann vera hæfilega bjart-
sýnn, en byrjunin lofaði góðu og
versluninni hefði verið tekið vel af
íbúum staðarins þessar tvær vikur
sem liðnar væru frá opnuninni.
Hann sagðist ekki ætla að flytja
vörur beint inn til landsins, eins og
margir í þessum rekstri, til þess
væri reksturinn of smár. Núna væri
þó komin aukin samkeppni á vöru-
verð á helstu nauðsynjavörum á
staðnum, en með tilkomu verslun-
arinnar eru nú tvær verslanir starf-
ræktar á Vopnafirði. Áður en þau
hjónin fóru út í rekstur matvöru-
verslunarinnar voru þau með um-
boðs- og heildsöluverslun í sama
húsnæði. Upphaflega keyptu þau
hluta af húsnæðinu eftir að kaupfé-
lagið hætti rekstri trésmíðaverk-
stæðisins í því. MM
Sigurður Bjarnason, bóndi í Hofsnesi og vitavörður í Ingólfshöfða ásamt Halldóri Ásgrímssyni,
horfa til hafs úr vitanum á Ingólfshöfða og virðafyrir sér báta fyrir landi og hvalfiska bylta sér í
sjónum, ábúðafullir á svip. Myndin er tekin í sumarferð KSFA sl. helgi. Austramynd:B.B.
Egilsstaðir:
Hlutafélag stofnað um Randalín handverkshús
Hlutafélag hefur verið stofnað
um rekstur handverkshúss á Eg-
ilsstöðum undir nafninu Randalín
handverkshús. Hluthafar eru 46
og upphæð hlutafjár 1685 þús-
und. Undirbúningur að stofnun fé-
lagsins hefur staðið um nokkurra
mánaða skeið og efndu upphafs-
menn Randalínar, nokkrar konur á
Egilsstöðum og Héraði, til ýtarlegr-
ar kynnningar á fyrirtækinu í maí í
vor. Randalín verður til húsa þar
sem Dyngjan var áður, og leggur
Egilsstaðabær félaginu til húsnæði
og vélakost í tvö ár. Töluverðar
endurbætur hafa verið gerðar á hús-
næðinu í sumar og hafa að þeim
unnið áhugakonur um stofnun
Randalínar. Handverkshúsið verð-
ur formlega opnað síðustu helgina í
september og verður í tilefni af
opnuninni sett upp sýning á göml-
um hannyrðum. Þá fer fram kynn-
ing á námskeiðum þeim sem halda
á í vetur og væntanlegri starfsemi
hússins. Áætlað er að starfsemi
Randalínar verði tvíþætt annars-
vegar saumastofa með 4-6 starfs-
mönnum og hinsvegar námskeiða-
hald. Að sögn Láru Vilbergsdóttur
verður farið rólega af stað, sauma-
stofan hefur nú þegar með höndum
sérverkefni sem unnið er að og
framundan er hönnunar og þróun-
arvinna á væntanlegri framleiðslu.
Stjórn Randalínar handverkshúss
skipa Anna Ingólfsdóttir, stjómar-
formaður, Ólöf M. Guðmundsdótt-
ir, varaformaður, Lára Vilbergs-
dóttir, Guðrún Tryggvadóttir og
Karólína Ingvarsdóttir. I varastjóm
sitja Kristín G.Magnúsdóttir, Ólöf
Ragnarsdóttir og Ágústa Þorkels-
dóttir.
AÞ
Frá vinstri: Anna Ingólfsdóttir, ÓlöfM. Guðmundsdóttir, Lára Vilbergsdóttir, Karólína
Ingvarsdóttir og Guðrún M. Tryggvadóttir.
Stöðvarfjörður
Skortur á íbúðarhúsnæði
til vandræða
orðið. Þá er nýr skólastjóri, Torvald
Gjerde frá Noregi, að hefja störf
við tónlistarskólann en Pétur Máté,
sem verið hefur skólastjóri kveður
eftir þriggja ára dvöl og flytur í
þéttbýlið við Faxaflóa. AÞ
Verktakar frá Trésmiðju
Djúpavogs eru þessa dagana að
steypa 1200 m2 þekju á bryggj-
una á Stöðvarfírði og hillir þar
með undir lok þeirra hafnar-
framkvæmda sem staðið hafa í
mörg ár. Að sögn Alberts Geirs-
sonar, sveitarstjóra, hefur atvinnuá-
stand verið gott í sumar. Full vinna
hefur verið í frystihúsinu, en
Kambaröstin og smábátar sjá því
fyrir hráefni auk þess að “færeyski”
togarinn Atlandic Jane hefur land-
að afla sínum í tvígang á Stöðvar-
firði, í allt um 75 tonnum. Aðeins
eitt hús er í smíðum í þorpinu,
skrifstofu og afgreiðsluhús á veg-
um Gáma hf, en þeir sjá um af-
greiðslu Samskipa. Þá hefur Mal-
land hf á Djúpavogi unnið við að
steypa gangstéttir sem má segja að
séu þær fyrstu í þorpinu. Ekkert í-
búðarhúsnæði hefur verið byggt í
nokkur ár og veldur húsnæðisskort-
ur vandræðum, en að sögn Alberts
er mikið hringt á hreppsskrifstof-
una af fólki sem hefur áhuga á að
setjast að á Stöðvarfirði til lengri
eða skemmri tíma en húsnæðis-
skortur veldur því að ekki getur af
Eirtu sinni sá ég hvalfisk.