Austri


Austri - 23.09.1993, Blaðsíða 6

Austri - 23.09.1993, Blaðsíða 6
6 AUSTRI Egilsstöðum, 23. september 1993. GEVALIA Almennar kosningar 20. nóvember Kosið í 186 sveitarfélögum Í)U Ö ‘ f V ift '• / \w Vikulega Austri kemur Enginn betur fréttir semur Austri flytur fréttir góöar, sem allir vilja lesa óöar. Umdæmanefndir heimamanna í öll- um kjördæmum landsins hafa skilað tillögum sínum um sameiningu sveit- arfélaga á landinu. Verður kosið um tillögumar laugardaginn 20. nóvember næstkomandi og verður kosið á al- mennum kjörstöðum. Nefndimar sem vom átta gera tillögur um að sveitarfé- lögum fækki um 153, eða úr 196 í 43. Kosið verður í 186 af 196 sveitarfé- lögum. Verði tillögumar samþykktar verða sveitarfélög með innan við 500 íbúa 3 talsins en þau vom 142 hinn 1. des. sl. Sveitarfélög með 500-1000 íbúa yrðu 11 talsins en vom 22, sveitarf. með 1000-2000 íbúa yrðu 13 í stað 17, sveitarfélög með 2000-10.000 íbúa yrðu 11 en vom 12, sveitarfél. með 10.000-100.000 úbúa yrðu 4 en vom 3 og áfram yrði 1 sveitarfélag með yfir 100.000 íbúa. Meginmarkmiðið með sameiningu sveitarfélaga er að treysta byggð í landinu og efla stjóm heimamanna, að auðvelda flutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga og að auka þjónustu við íbúana og gera sveitarfélögunum betur kleift að takast á við núverandi verk- efni og væntanleg. Við gerð tillagna sinna hafa umdæmanefndimar enn- fremur haft að markmiði að sveitarfé- lögin myndi heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði þannig að þéttbýli og sveitir umhverfis það séu í sama sveit- arfélagi; að tekið sé tillit til landfræði- legra aðstæðna og samgangna eins og kostur er til að tryggja gott samgöngu- kerfi innan hvers sveitarfélags og að reynt verði að jafna tekjumöguleika sveitarfélaga frá því sem nú er. Um kosningamar sjálfar er vert að taka fram eftirfarandi: *Meirihluta greiddra atkvæða þarf til að tillaga um sameiningu teljist samþykkt. Það þýðir að vilji menn stuðla að sameiningu á sínu heima- svæði verða þeir að mæta á kjörstað. , * Hljóti tillagan ekki samþykki í öll- um sveitarfélögum sem lagt er til að sameinist, en í að minnsta kosti 2/3 þeirra, er viðkomandi sveitarstjómum heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykkt hafa, enda hamli ekki landfræðilegar ástæður. * Verði tillaga um sameiningu felld en umdæmanefnd telur að vilji íbú- anna standi til annars konar samein- ingar, er henni heimilt að leggja fram nýjar tillögur fyrir 15. janúar 1994. Greiða þarf atkvæði um hinar nýju til- lögur innan tíu vikna þar frá, þ.e. eigi síðar en 26. mars 1994. Byggt á fréttatilkynningu frá Samstarfs- nefnd um sameiningu sveitarfélaga. BYÐUR YKKUR VELKOMIN Óvenju fallegt, hagkvæmt og vel staðsett 0\SUHEIM/4/<d SKOLAVÖRÐUSTÍG 30 • SÍMI 623544 Ljóðagetraun Fyrir páskana í vor kom í blaðinu ljóða- getraun sem margir höfðu gaman af að spreyta sig á og höfðu nokkrir á orði að þeir vildu gjaman sjá meira af slíku. Þótt haustið sé mörgum annasamt og tómstund- ir strjálar kemur hér fyrir sjónir lesenda önnur slík getraun sem gott er að glíma við yfir vambasaumi og mörbrytjun. Getraunin er þannig, að úr ljóðlínu er búin til spum- ing og svarið á að vera auðvelt þeim sem kann eða kannast við viðkomandi ljóð eða stöku. Dregið verður úr réttum lausnum og bókaverðlaun veitt. Svörin verða að berast blaðinu fyrir 1. október n.k. Fullnægjandi svar telst: svar við spumingunni, heiti við- komandi ljóðs og höfundur. (Ath. Ekki verður tekið hart á heiti ef um stöku er að ræða, enda oft ekki um neitt sérstakt nafn að ræða). Svör sendist til: Austri, pósthólf 173, 700 Egilsstöðum. 1. Hver var, mín aleigan dýrmætust löngu? 2. Hvar skal aðgát höfð? 3. Hvar gnauðar kaldur gustur? 4. Hverjir syngja og verða grænir f sól- skininu? 5. Hvar liggur lítil rúst? 6. Hvar birtust kostir fullhugans? 7. Hvað eflir alla dáð? 8. Hver býr upp í háa hamrinum? 9. Hvar hallar helgum degi? 10. Hver saumaði rósir í samfelluna sína? 11. A hvað horfi ég hugfangin í hlýja sumarblænum? 12. Hvað glóir í mannsorpinu? 13. Hvað skín á morgun? 14. Hvar söng í hverri jakaspöng? 15. Hvem leika lömb í kringum? 16. Hver er blómmóðir besta ? 17. Hver er eins og grannvaxin kona á gulum skóm? 18. Hvað bognar aldrei en brestur að lok- um? 19. Hvar heilsast fánar framandi þjóða? 20. Hvað blánar af berjum hvert ár? ViVi'V Vi'VV^ Við nefnum og þú velur I I I I 1" T I ' I I I I I I I I I I I I I I I I I 1 1, íslenskt hráefni / 2. Islenskt vinnuafl 1 Orkusparnaður í upphitun 4. Sprungufrí hús 5. Lítið viðhald húsa 6. Eldtrausthús 7. Stuttur byggingartími 8. Lægri byggingarkostnaður 9. Fjölbreytt útlit 10. Hússemendast EGILSSTÖÐUM MIÐAS 11, 700 EGILSSTAÐIR SÍMI97-11480 FAX 97-12323 STEYPUSTOÐ - STEYPTAR HUSEININGAR GLERVERKSMIÐJA - VERKTAKASTARFSEMI 97 Góða skemmtun AÞ

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.