Austri - 11.11.1993, Blaðsíða 8
8
AUSTRI
Egilsstöðum, 11. nóvember 1993.
Oddvitar svara
Framhald af bls. 7
orðið til þess að styrkja og efla
byggð í fámennum sveitum eins og
Mjóafjarðarhreppi þá er það af hinu
góða”.
Jón Steinar Elísson
oddviti Tunguhrepps
„Kostir sameiningar eru: Aukin
verkefni hins stóra sveitarf. skil-
virkari stjómun og markvissari á-
kvarðannataka. Tvímælalaust mun
þessi sameining styrkja Egilsstaða-
bæ sem þjónustumiðstöð fyrir hér-
aðssvæðið. Ókostir eru: Miklar
vegalengdir að þéttbýliskjarna jað-
arbyggðar falla utan við svokallað-
an þjónustuhring sem er 30 mín.
akstur að þéttbýli. Jaðarbyggð er
homsteinn hverrar sveitar. Án
markvissra aðgerða til að efla bú-
setu jaðarbyggða svo sem með
sýnilegum aðgerðum í vegabótum
og snjómokstri er sameining til lít-
ils.
Það verður erfitt verk ef af sam-
einingu verður fyrir hina nýju
sveitarstjóm að þurfa að flokka
íbúa hins nýja sveitarfélags niður
eftir búsetu í fyrsta og annars
flokks íbúa. Þeir eiga jú allir rétt á
sömu þjónustu en ef samgöngur
verða ekki stórbættar verður erfitt
að veita hana. Það má líkja þessum
sameiningaráformum við skot á
körfu, hún gæti stöðvað fækkun
íbúa í Tunguhreppi en skotið gæti
geigað, þá er ver af stað farið en
heima setið.“
Aðalbjörn Björnsson odd-
viti Vopnafjarðarhrepps
“Þegar maður skoðar kosti og
galla þess að Vopnafjarðarhreppur
sameinist Skeggjastaðahreppi er
það nokkuð ljóst að slík sameining
skiptir engum sköpum fyrir Vopna-
fjörð. Þessari sameiningu fylgja
engu að síður mun fleiri kostir en
ókostir. Nú þegar er samstarf þess-
ara sveitarfélaga það mikið að
skrefið til sameiningar er mun létt-
ara heldur en fyrir mörg önnur.
Stóra málið er það að sameinað
sveitarfélag verður fjölmennara og
þá jafnframt öflugra sem gerir því
auðveldara að taka við þeim verk-
efnum sem rikið ætlar sveitarfélög-
unum á næstu árum. Með þessari
sameiningu tökum við þátt í að
fækka og stækka sveitarfélögum í
landinu og samfara því að færa
aukin völd frá höfuðborginni heim
í hérað”.
Albert Eymundsson forseti
bæjarstjórnar, Höfn
“Grundvallaratriðið í sameining-
arhugmyndum sveitarfélaga er
styrking sveitarstjómarstigsins.
Það er aðeins hægt með því að fela
sveitarfélögum aukin verkefni.
Með flutningi verkefna frá ríkinu
til sveitarfélaganna flyst frum-
kvæði, ráðstöfunarréttur, atvinnu-
tækifæri o.fl. heim í hémð. í dag
era miklir og dýrir milliliðir í flest-
um málaflokkum og tvíverknaður
víða. Við höfum einfaldlega ekki
efni á þessu flókna, dýra og mið-
stýrða kerfi. Allan fómarkostnað-
inn sem þessu fylgir greiðum við
landsbyggðarfólkið í störfum og
kostnaði á Suðvesturhomi landsins.
Eina leiðin sem ég sé til að reyna
að spyrna við fótum og snúa þess-
ari þróun við er að stækka sveitar-
félögin og flytja verkefni til þeirra.
Verkefni sem hvergi eiga annars-
staðar heima en á vettvangi fólks-
ins sem nýtir þjónustuna. Með
flutningi málaflokka, sem talað er
um í dag, gætu fjárhagsleg umsvif
svæðanna aukist yfir 50%. Sam-
fara þessu skapast möguleikar á að
hagræða og skipuleggja þjónustuna
vel og nýta þannig fjármagnið bet-
ur fyrir íbúana. Það er mikilvægt
að við landsbyggðarfólkið sýnum
að við erum tilbúin að axla þessa á-
byrgð. Þessi aðgerð ætti líka að
stuðla að breyttum viðhorfum
gagnvart dreifbýlinu. Það er nauð-
synlegt að breyta þeim neikvæðu
viðhorfum sem endurspeglast í því
að ekki sé hægt að veita meiri og
betri þjónustu í dreifbýlinu og á
landsbyggðinni, þjónustu sem er
sótt á höfuðborgarsvæðið í dag.
I mínum huga era engin mál eða
verkefni tengd sameiningunni mjög
flókin eða erfið úrlausnar. Þó geri
ég mér fulla grein fyrir að jafn
viðamikil breyting og gert er ráð
fyrir er viðkvæm og vandasöm og
það verða ekki allir sáttir við niður-
stöðuna hver sem hún verður. En
ég treysti sveitarstjómarmönnum
fyllilega til að leysa þau mál með
hagsmuni íbúanna að leiðarljósi.
Neikvæðu hliðar málsins eru að
mínu viti léttvæg á vogarskálinni
þegar kostir og gallar sameiningar-
innar era vegnir”.
Friðmar Gunnarsson
oddviti
Fáskrúðsfjarðarhrepps
“Satt er það að hvaðeina orkar
tvímælis þá gert er.
Sameiningu sveitarfélaga hefur
undan farið verið haldið fast að
landsmönnum og kosningar nálg-
ast. Menn hljóta að hugsa, sem svo
hvað er það sem baki býr. Þetta
gæti nú verið ágætt en hefur ekki
samstarf hreppanna gengið. Hér
hafa hreppamir sameinast um sum
mál sem þurfa hefur þótt og efni
staðið tíl. Hafa menn trú á því að
auknir fjármunir muni streyma út
um land eftir sameiningu. Verð-
mætasköpun þjóðarinnar verður
væntanlega sú sama eftir sem áður.
Auðvitað væri mjög þægilegt að
vita það með fullri vissu að eftir
sameiningu yrði samgöngumálum
stóram betur sinnt, snjómokstur
stór aukinn, félagslegri þjónustu
haldið uppi út í ystu æsar o.s.frv.
En því miður halda margir að svo
einfalt verði þetta ekki. Verða ekki
sveitarfélög eftir sameiningu afar
misjafnlega á vegi stödd. Þetta fyr-
irhugaða sveitarfélag Fáskrúðs-
Búða-, Stöðvarfjarðar- og Breið-
dalshreppur, tekur yfir þó nokkurt
landsvæði. Þéttbýlin þrjú þurfa að
sjálfsögðu sitt. Félagsleg þjónusta
í fullum skrúða yrði vegna fjar-
lægðar feikna dýr. Er þá líklegt, að
sveitarfélag við þessar aðstæður
standi jafn vel að vígi og t.d. annað
sveitarfélag svipað að íbúatölu að
öllu leyti innan sama fjallahrings
og þar af leiðandi mun miklu minni
fjarlægðir að ræða. Forvitnilegt
hefði verið að fá að vita hvort ríkis-
valdið gerði ráð fyrir að jafna
þennan aðstöðumun og þá eftir
hvaða reglu.
Ef til vill dettur einhverjum í hug
að ólíkt þægilegra sé fyrir Alþingi
að afgreiða ákveðna summu til
hverrar sveitar úti á landi og það
verði svo heimamenn, sem skipti.
Það hefur þó enginn sagt að þannig
muni meira fjármagn berast út á
land og ekki er langt síðan að í
sjónvarpsþætti sagði þekktur maður
að höfn hér og höfn þar o.s.frv.
vitnaði síst um fjármálastjórn til
fyrirmyndar. Heyrst hefur að
sparnaður verði í yfirstjórn, þar
sem sveitarstjómamönnum fækki
sömuleiðis hreppstjórum og fólki í
nefndum, og satt er nú það. En
reynsla Eyjafjarðarsveitar vitnar
ekki þar um. Fyrir íbúa Fáskrúðs-
fjarðarhrepps virðist mér blasa við
að við sameiningu eiga þeir greið-
ari aðgang að þeirri starfsemi sem
haldið er úti á vegum sveitarfélag-
anna. Þar á móti kemur að þeir
samþykkja að leggja niður sitt
gamla sveitarfélag og gerast um
aldur og ævi minnihlutahópur í
nýju samfélagi með því áhrifaleysi
sem því fylgir”.
Gunnar Sigurjónsson
oddviti
Skeggjastaðahrepps
“Hvað varðar þessi tvö sveitarfé-
lög hér, Skeggjastaðahrepp og
Vopnafjarðarhrepp, að óbreyttum
forsendum höfum við engan ávinn-
ing af sameiningu. Hins vegar að
breyttum forsendum miðað við það
að við ætlum að efla þetta stjóm-
sýslustig, efla sveitarstjómimar
með því að færa aukin verkefni til
þeirra þannig að þau geti sinnt
þessum auknu verkefnum og bætt
sína þjónustu, skapað íbúunum
betri aðstöðu í heimabyggð. Þá get
ég að sjálfsögðu ekki verið á móti
sameiningu.
Eitt er alveg ljóst að það era á-
kveðin verkefni sem á að færa til
sveitarfélaganna. Árið 1995 á
skólinn að færast til sveitarfélag-
anna og miðað við horfur í skóla-
málum þá sýnist mér nú að skólinn
sé ekki verr settur í höndum sveit-
arfélaga en í höndum ríkisins. En
þá spyr ég á móti; hvernig verður
með fræðsluskrifstofurnar? Verða
þær starfræktar áfram á sama
grundvelli og verið hefur?
Eins og staðan er í dag þá er okk-
ur enginn hagur af sameiningu. En
ef við lítum til framtíðar þar sem
skólinn verður kominn yfir til
sveitarfélaganna árið 1995, öldrun-
arþjónustan, félagsþjónustan og
heilbrigðisþjónustan eða heilsu-
gæslan verður alfarin komin yfir til
sveitarfélaganna, þá er þetta
kannski ekki lengur spurning um
vilja heldur getu. Og þá er
kannski skynsamlegra að gera þetta
meðvitað í dag að sameina sveitar-
félögin og reyna að hafa áhrif á
hvemig málum verður háttað í
framtíðinni í þessu byggðarlagi
sem og á Vopnafirði, heldur en að
biðja um það eftir einhver ár.
Ég held að það vanti svör við
nokkram grundvallarspurningum
s.s. með hvaða hætti tekjur verði í
sameinuðu sveitarfélagi, framlag
jöfnunarsjóðs, hvernig verður staðið
að verkefna tilflutningi frá riki til
sveitafélaga um skólahald og hafn-
armál. Þurfum við t.d. að sætta
okkur við að hafnarvigtinni verði
lokað kl. 5 á hverjum degi og um
helgar. Hér er trillubátaútgerð og
menn hafa búið við mikið frjálsræði
í því hvenær þeir sæki sjó. Þar hafa
menn verið háðari veðrum og gæft-
um en stimpilklukku. Menn spyrja
sig svona spurninga. Þessu er nátt-
úralega erfitt að svara því að auðvit-
að vilja allir hafa sem mest frjáls-
ræði. Þá spyrja menn: Er sveitarfé-
lagið í stakk búið til þess að viðhafa
slíkt? Ég er alls ekki á móti sam-
einingunni en ég vil gjarnan fá að
heyra meira og sjá meira. Það era
allar líkur á að einhver svör um ó-
vissuþætti í sameiningarmálum
sveitarfélaga fáist á fjármálaráð-
stefnu sem haldin verður í Reykja-
vík daganna 11-12 nóvember”.
Hamborg
heimsótt
Allt sem maður þekkir ekki
hlýtur að koma að einhverju leyti á
óvart þegar það ber fyrir sjónir
manns.
Svo var fyrir mér með Ham-
borg. Ég hafði ímyndað mér hana
erilsama iðnaðar- og hafnarborg
og bjóst ekki við mikilli fegurð
þar. Önnur varð reyndin. Ég
dvaldi í Hamborg eina viku um
mánaðarmótin apn-maí 1990, var
að vísu mjög heppin með veðrið
enda var undran mín mikil yfir
gróðrinum og snyrtimennskunni.
Meira að segja þó vatnið í Alster
væri ekki tært þá var þar hvorki
drasl á floti né í fjöruborði.
í Hamborg eru mjög fallegir al-
menningsgarðar. Undirritaðri
fannst “Planten und blómen” bera
af þeim sem ég sá. Ég fór upp í
útsýnistuminn “Femsehen” sem
snýst í hring en þaðan er geysilegt
útsýni yfir borgina.
Eitt kvöldið fórum við í óperu-
hús “Hamborg opera”. Það var ó-
gleymanlegt kvöld. Annan dag
settumst við inn í kirkju og horfð-
um á myndir frá sögu Hamborgar.
Þær höfðuðu til allra tegunda til-
finninga lffsins, vöktu viðbjóð á
hörmungum stríðsáranna og undir-
Þórann Sigurðardóttir.
búningi þeirra. Sorg yfir örlögum
Hamborgar og íbúum hennar og
lotningu yfir kjarki og elju þess
fólks sem vann að uppbygging-
unni. Þar stendur efst hrifning á
konunum sem auðvitað vora í
meiri hluta vegna mannfalls í
stríðinu, þær söfnuðu saman múr-
steinsbrotum. óku í hjólböram eða
báru, söguðu og hlóðu og byggðu
saman heimili sín upp aftur. Og ef
ekki stæðu minjar sem með vilja
eru hafðar sem sýnishorn af afleið-
ingum striðsins tryði ekki fáfróð
kona úr friðsælu landi að Ham-
borg hefði verið rústir einar fyrir
45 árum.
Þórunn Sigurðardóttir,
Skipalæk.
Pennavinur
Austra barst bréf frá Emi Þorleifssyni í Húsey sem innihélt annað bréf frá
Austurríki. Er það frá stúlku sem hyggst eyða fríinu sínu á íslandi og óskar
hún eftir upplýsingum um Húsey. Stúlkan sem heitir Marion óskar einnig
eftir pennavini á Islandi. Hann/hún verður að hafa gaman af hestum og reið-
mennsku og vera á aldrinum 15-16 ára, eða undir 30 ára. Hægt er að skrifa á
ensku eða þýsku.
Skrifið til: Marion Reinitshuber
Amtlang 15
A 9201 Krumpendorf
Austria
J
Bændaskólinn á Hvanneyri
V
r
Bændadeild auglýsir
Innritun á vorönn stendur yfir
1. önn og 5. önn
Umsókn um skólavist sendist skólanum
fyrir 1. desember n.k.
Við veitum nánari upplýsingar í síma 93-70000
Skólastjóri
Sími 11122
Bjóðum 50% afslátt á flugi til Hafnar
á laugardögum og mánudögum.
kr. 4.775.- (m/flugvallask.)
Einnig er 20% afsláttur á öllu flugi innan
fjórðungs til áramóta.